Alþýðublaðið - 12.01.1991, Side 1
LAUGARDAGUR
12 JANÚAR 1 99T
Landsbergis forseti i heimsókn á heimili utanríkisráöherra-
hjónanna við Vesturgötu snemma t vetur. í gær spurði
Landsbergis í fréttatíma á franskri sjónvarpsstöð: „Hvers
vegna hringja vestrænir stjórnmálamenn ekki á „heitu lín-
una til Gorbatsjovs?" íslenska rikisstjórnin hefur lagt sitt til
málanna nú þegar.
JÓN BALDVIN VILL NATO-FUND VEGNA LITH-
AEN ! Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sendi
í gær utanríkisráðherrum aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins bréf í tilefni atburðanna í Litháen. í bréfinu segir ut-
anríkisráðherra að íslenska ríkisstjórnin telji ástandið
komið á það alvarlegt stig að það gefi tilefni til að Atlants-
hafsbandalagið taki það sérstaklega til umfjöllunar.
Þá leggur utanríkisráðherra til að utanríkisráðherrar
Atlantshafsbandalagsins sameiginlega eða hver fyrir sig
að þeir sendi mótmæli til utanríkisráðherra Sovétríkjanna
vegna þróunar mála í Litháen, Sovétríkin hvött til þess að
stöðva beitingu hervalds þegar í stað og að áhersla sé lögð
á friðsamlega lausn deilnanna með samningaviðræðum
sem byggi á grundvallarreglum Helsinki sáttmálans.
Á VETTVANGI ALÞÝÐUFLOKKSINS: Þröstur Ól-
afsson hagfræðingur gekk í Alþýðuflokkinn í gær. Þröstur,
sem lengi var einn af framámönnum í Alþýðubandalaginu,
segist ekki hafa haft nein afskipti af málum i bandalaginu
í þrjú ár. „Ég var búinn að gera það upp við mig að ef ég
skipti mér af stjórnmálum aftur gerði ég það á vegum Al-
þýðuflokksins. Stefna hans höfðaði til mín. Það er fyrst og
fremst sú ákvörðun sem ég tek í dag,“ sagði Þröstur í viðtali
við Alþýðublaðið í gær.
Barnaskattar á
íslandi
Finnur Birgissson, arkitekt á
Akureyri, skrifar merka grein
jaar sem hann kafar djúpt ofan
í vandamál sem steðja að ís-
lenskum fjölskyldum. „Lág-
markskrafan er að hæfilegur
rekstrarkostnaður heimilanna
verði friðhelgur fyrir skatt-
heimtumönnum", segir hann.
Þingmenn vilja
meiri völd
Þingmenn hyggja nú mjög
að breyttum starfsháttum í Al-
þingi. Þeir vilja meiri völd, sem
þeir tefja að verði fram-
kvæmdavaldinu til aukins að-
halds. Tryggvi Harðarson skrif-
ar um breytta skipan mála í
þinginu.
Fjórtán nýir
borgarar
Við Ijúkum vikunni eins og
ævinlega, bjóðum velkomin
nýfædd börn á fæðingarstofn-
unum Reykjavíkur. Þau eru
fjórtán að þessu sinni.
Aðeins fyrir þá
riku að veikj-
ast eftir helgi
Sjúklingar munu frá
mánudegi þurfa að
leggja ad fullu út fyrir
læknisþjónustu utan
spítalanna, ef ekki semst
í deilu sérfrædinga við
ríkið. Greiðslurnar geta
numið tugum þúsunda.
Formaður Læknafélags
Reykjavíkur segir að
læknar hafi talið sig
ganga frá samningum
um jólin, en nú sé ljóst að
á fundi í Tryggingaráði,
sem á að halda í dag,
muni ráðið fella samn-
ingana.
„Það eru eins og æðri
máttarvöld hafi kippt í
spotta," sögðu talsmenn
lækna er þeir kynntu stöðu
samningamála á frétta-
mannafundi í gær. Frá og
með mánudegi eru samn-
ingar lausir og þá verða
sjúklingar sjálfir að leggja
út þegar þeir fara til læknis
hafi samningar ekki náðst
fyrir þann tíma. Algeng-
ustu greiðslur fyrir læknis-
þjónustu eru í kringum
fimm þúsund krónur en
þær geta numið tugum þús-
unda. Sjúklingar eru
tryggðir hjá Trygginga-
stofnun ríkisins, en til þess
að fá reikninga endur-
greidda, verður að breyta
greiðslufyrirkomulagi.
Læknar segja að ekki sé
um raunverulega launa-
samninga að ræða. Fyrst og
fremst sé um hækkanir að
ræða vegna aukins kostn-
aðar af stofum, en rekstrar-
kostnaður sé 50—60% af
innkomu. Læknum þykir
kyndugt að Flugleiðir og
Eimskip geti leiðrétt sína
taxta vegna kostnaðar-
auka, bankar hækkað
vexti, en læknar megi ekki
leiðrétta vegna aukins
kostnaðar. Um 400 þúsund
komur eru á stofur á ári og
er hætt við að mikil örtröð
verði hjá Tryggingastofnun
ef hver og einn sjúklingur
verður að framvísa sínum
reikningi í stað þess að
læknar hafa fram að þessu
sent inn reikninga á mán-
aðarfresti. Tryggingaráð,
sem endanlega afgreiðir
samningana, fundar í dag.
Ákvörðun var frestað í gær,
en í dag er búist við að ráð-
ið muni fella samningana.
í gær kallaði heilbrigði-
ráðherra lækna á sinn fund
og skilst læknum að ríkis-
stjórn telji samningana brot
á þjóðarsátt, þó að ekki hafi
fengist á hreint hvaða atriði
samninganna gangi lengra
en sáttin góða. Ekki tókst
að ná sambandi við heil-
brigðisráðherra síðdegis í
gær.
DÆGURLÖG FLUTT
UT: Menntamálaráðherra
hefur skipað nefnd sem á
að kanna áhuga á sam-
vinnu um að kynna ís-
lenska list erlendis. Henni
er einnig falið að kynna ís-
lenska dægurtónlist á er-
lendri grund. í nefndinni
eiga sæti: Halldór Guð-
mundsson, Jakob Frímann
Magnússon, Jón Sveinsson
og Guðrún Ágústsdóttir.
VERKIN TALA: Sigurdur Pétursson, formaður Sam-
bands ungra jafnaðarmanna, hefur verið ráðinn kosninga-
stjóri fyrir Alþýðuflokkinn í komandi alþingiskosningum.
Sigurður segir að hann muni samræma baráttuna í kjör-
dæmunum og hafa yfirumsjón með áróðursmálum. Fyrsta
lota kosningabaráttunnar sé þegar hafin með fundum ráð-
herra flokksins í öllum kjördæmum landsins undir kjörorð-
unum „Verkin tala.“ Jón Baldvin Hannibalsson fjalli um
störf flokks og stefnu framundan á fundi í Valaskjálf á Egils-
stöðum í dag.
LEIÐARINN í DAG
„Verkin tala" heitir leiðari Alþýðublaðsins í dag. Þar
eru reifuð helstu fyrirheit Alþýðuflokksins fyrir síð-
ustu þingkosningar 1987 og efndir flokksins. Al-
þýðublaðið bendir á, að sá dómur sem stjórnmála-
flokkar hljóta á spjöldum sögunnar byggist ekki á
slagorðunum né loforðunum heldur á verkunum
sjálfum sem framkvæmd voru.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: VERKIN TALA.
Styttist í stríö eöa nást einhverjir samningar?
Baker til Sýrlands-
de Cuellar til Íraks
James Baker, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna,
var væntanlegur til fundar
vid Hafez al-Assad, forseta
Sýrlands, í Damaskus í dag
samkvæmt diplómatísk-
um heimildum í gær. Sýr-
lendingar eru þátttakend-
ur í hernaðarundirbún-
ingnum gegn Irökum við
Persaflóa. Nú eru aðeins
þrír dagar þar til frestur
sá sem Sameinuðu þjóð-
irnar gáfu írökum til að
hafa sig á brott frá Kúvæt
rennur út.
Víða um heim leita menn
nú leiða til að koma í veg fyrir
stríð. Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, ætlar að hitta ieið-
toga íraka í Bagdad um helg-
ina og búist er við að hann
bjóði írökum að senda hlut-
lausar friðargæslusveitir, án
bandarískra hermanna, til
Kúvæt að því tilskildu að ír-
akar verði á brott með her
Aðstoðarutanríkisráðherra
írans, Mahmoud Vaezi, sem
hefur verið í Evrópu síðustu
daga, segir að írakar kunni
að hverfa frá landinu að hluta
til á síðustu stundu. Neyðar-
ástandið við Persaflóa sé til
komið vegna þess að írakar
hafi misreiknað sig í upphafi
og geri þeir það ekki aftur
muni þeir hverfa með hluta af
liði sínu frá Kúvæt fyrir 15.
janúar.
Þótt íslendingar eigi sinn
þátt í samþykkt Sameinuðu
þjóðanna um beitingu her-
valds eftir 15. janúar þýðir
það ekki, að íslendingar séu
stríðsaðilar, komi til stríð.
Víða um heim biðja menn
fyrir friði þessa dagana, í
kirkjum, í skólum og víðar.
Þá eru skoðanir allskiptar um
hvort það eigi að láta til skar-
ar skríða gegn írökum verði
þeir ekki á brott með her sinn
frá Kúvæt fyrir þann 15. janú-
ar.
Fólk um allan heim biður þess að ekki komi til strfðs. Þessi stulka
cjnn fvÁ L'indi
hamoar hinu albióðlaaa friðarmerki
RITSTJÖRN rp 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR r 681866