Alþýðublaðið - 12.01.1991, Síða 2
2
Laugardagur 12. janúar 1991
FRtTTASK ÝKIMGI
Stjórnarskárbreytingar vœntanlega í ár:
Alþingi vill
auka vald sitt
Margir þingmenn vilja nú setja framkvæmdavaldinu þrengri skorður og auka völd Alþingis. Væntanlegar er brevt-
ingar á stjórnarskránni á þessu ári sem miða í þá átt.
Ljóð myndir
pappírsflugvélar
Ungur rithöfundur, Hlynur
Hallsson, 32 ára, gaf nýlega út
ljóðabók með ofangreindu
nafni. Hlynur er stúdent frá MA
1988 og stundar nú nám við
Myndlista- og handíðaskólann.
Hér er um að ræða fyrstu Ijóða-
bók Hlyns, 37 Ijóð ásamt jafn-
mörgum myndum, sem hann
hefur að sjálfsögðu gert sjálfur.
Hlynur gefur út bók sína í 200
eintökum, þar af eru 100 tölusett
og árituð. Bókin fæst í Hlaðvarp-
anum og nokkrum bókabúðum í
Reykjavík og á Akureyri.
ÍO þúsund kynnast
glimunni
Forystumenn glimumála kynna
íþrótt sína, þjóðaríþróttina, af
miklu kappi. Á síðasta ári var
glíman kynnt meira en 10 þús-
und ungmennum í grunnskólum
landsins. Nokkrir forráðamenn
glímunnar hafa annast þetta
starf, fyrst Jóhannes Svein-
björnsson, glimukappi Sunn-
lendinga, þá Rögnvaldur Ólafs-
son, formaður Glímusambands
íslands, og nú síðast Jón M.
Ivarsson, ritari sambandsins. Og
meira um glímu: Ólafur Hauhur
Olafsson úr KR var einróma
kjörinn glímumaður ársins 1990.
Hann varð glímukóngur Islands
í fjórða sinn á síðasta ári — vann
auk þess með fáheyrðum yfir-
burðum.
Forseti orðar átján
Um áramótin fengu 18 íslend-
ingar heiðursmerki hinnar ís-
lensku fálkaorðu, sem fjölmargir
renna að sjálfsögðu hýru auga
til. Þeir sem orðaðir voru að
þessu sinni eru: Adalsleinn Víg-
mundsson, bifreiðarstjóri, Egill
Rúnar Friöleifsson, kórstjóri
Kórs Öldutúnsskóla, Erika Frið-
riksdóllir, hagfræðingur, Finnur
Kristjánsson, fyrrum kaupfé-
lagsstjóri, Geir Arnesen, yfir-
verkfræðingur, Guðrún Helga-
dóttir, forseti sameinaðs Alþing-
is, Helga Velurliöadóttir, Ingþór
Sigurbjörnsson, mátarameistari,
Séra Jón A. Baldvinsson, sendi-
ráðsprestur, Kristrún Ólafsdóttir,
Olafur Björn Guömundsson, yf-
irlyfjafræðingur, Pálmi Jónsson,
forstjóri Hagkaups, dr. Sigmund-
ur Guðbjarnason, háskólarekt-
or, Sigríður Schiöth, söngstjóri,
Sigurður Björnsson, bóndi á Kví-
skerjum, Sigurður Björnsson,
óperustjóri, dr. Sigurður Helga-
son, prófessor, og Örlygur Hálf-
danarson, bókaútgefandi.
Efnilegur tenór
heldur tónleika
Islendingar vaða í góðum tenór-
um eins og kunnugt er. Einn
þeirra efnilegustu í dag er Guð-
björn Guðbjörnsson, kornungur
Álftnesingur, sem er nú fastráð-
inn við óperuna í Kiel. Guðbjörn
átti að syngja á Ijóðatónleikum
Geröubergs á mánudaginn kem-
ur. Vegna lasleika Guðbjörns
verður hins vegar að fresta tón-
leikunum um viku, þeir verða
mánudaginn 21. janúar.
Það virðist almennur
vilji fyrir því meðal
þingmanna að breyta
deildaskiptu Alþingi i
eina mólstofu. Til þess
þarf að gera breytingar
ó stjórnarskránni en tvö
þing þurfa að sam-
þykkja slikar breyting-
ar og kosningar verða
að fara fram i millitið-
inni. Auk þess eru
rœddar breytingar
varðandi útgáfu bráða-
birgðalaga, þingrofs-
réttinn og að ráðherrar
sitji ekki á þingi.
TRYQQVI HARÐARSON
SKRIFAR
Árni Gunnarsson, forseti neðri
deildar Alþingis, telur næsta full-
víst að á þessu þingi verði lagt
fram frumvarp um breytingar á
stjórnarskránni. Hversu víðtækar
þær verða fer eftir því hvað tekst
að ná almennri samstöðu um. Það
er nokkuð Ijóst að almenn sam-
staða er um að þingið starfi í einni
deild en um hin atriðin sem voru
rakin hér að framan eru skoðanir
meira skiptar.
Ein málstofq__________________
Deildaskipting Alþingis á rætur
að rekja til ársins 1874 þegar
danski konungurinn setti íslend-
ingum stjórnarskrá. Þá var hins
vegar kosið til deildanna með mis-
munandi hætti. í efri deild voru þá
6 konungskjörnir alþingismenn
og auk þess 6 landskjörnir. Með
því móti höfðu hinir konungs-
kjörnu fulltrúar vald til að stöðva
mál í efri deild Alþingis. Nú er eng-
an slíkan mun að finna á deildum
Alþingis né kosið til hvorrar um
sig sérstaklega.
Mörgum finnst deildaskipting
Alþingis orðin úrelt og þunglama-
legt fyrirkomulag. T.d. hafa Danir
aflagt deildaskiptingu á þingi sínu
fyrir allnokkru. Víða er þó að
finna deildaskipt þing en þá er oft
um það að ræða að hlutverk deild-
anna er að einhverju leyti mis-
munandi og ekki kosið til þeirra á
sama hátt eða einu lagi.
Efri deild breska þingsins, lá-
varðadeildin, er til að mynda
næstum valdalaus. 1 henni sitja að-
alsmenn, háklerkar og þeir sem
aðlaðir hafa verið. Deildin hefur
þó ákveðið frestunarvald á sam-
þykktir neðri deildarinnar og get-
ur lagt fram frumvörp.
í Bandaríkjunum eru deildirnar
um margt ólíkar. Til öldungadeild-
arinnar er kosið sérstaklega og á
þar hvert ríki 2 fulltrúa án tillits til
stærðar þess. I fulltrúadeildinni fer
það eftir fólksfjölda hversu marga
þingmenn hvert ríki fær og er sú
tala breytileg. T.d. getur eitt ríki átt
yfir 50 fulltrúa í fulltrúadeildinni
og annað 1 meðan bæði ríkin eiga
2 fulltrúa í öldungadeildinni.
Lagafrumvörp þurfa samþykki
beggja deilda í Bandaríkjunum
líkt og hér. Auk þess hefur öld-
ungadeildin sérstök hlutverk, eins
og það að samþykkja skipan ráð-
herra og skipan í ýmis önnur opin-
ber embætti. Eins þarf öldunga-
deildin að samþykkja milliríkja-
samninga sem forseti Bandaríkj-
anna og ríkisstjórn hans gerir.
Bráðabirgðalögin
bur*??? ~
Það er engin nýlunda hér á landi
að deilt sé um rétt til setningar
bráðabirgðalaga. Ýmsir vilja af-
nema hann með öllu en aðrir
þrengja réttinn til bráðabirgða-
lagasetningar meira eða minna.
Rétturinn til að setja bráða-
birgðalög hér á landi er frá þeim
tíma þegar þing kom saman að-
eins annað hvert ár og stóð í um
það bil sex vikur. Auk þess var
ekki hægt að kalla þing saman
með stuttum fyrirvara eins og
tæknilega er mögulegt nú.
Setning bráðabirgðalaga er yfir-
leitt, takmarkaðri — að minnsta
kosti í reynd — í nágrannalöndun-
um en hér á landi. Oft er slíkt
hugsað sem neyðarréttur ef til
styrjaldar- eða neyðarástands
kemur. Þá hefur setning bráða-
birgðalaga hér á landi oft valdið
miklum deilum.
Eins og málum er nú háttað hef-
ur framkvæmdavaldið í reynd haft
rétt til að setja bráðabirgðalög
sýnist því svo þrátt fyrir efasemdir
ýmissa þar um. Forsætisráðherra
ber hins vegar að ganga úr skugga
um að slík lög njóti meirihlutafylg-
is á Alþingi. Það hefur ekki alltaf
legið fullljóst fyrir, eins og t.d. þeg-
ar ríkisstjórnin setti bráðabirgða-
lög um kjarasamninga í sumar.
Verði bráðabirgðalög ríkisstjórnar
ekki staðfest af Alþingi jafngildir
það vantrausti á hana og ber
henni þá að segja af sér.
Þingrofsrétturinn
i höndum____________________
forsætisráöherra____________
Hér á landi eins og víða erlendis
er rétturinn til að rjúfa þing og
boða til nýrra kosninga í hendi for-
sætisráðherra. Ýmsum finnst að
með þessu hafi framkvæmdavald-
ið óeðlilega mikið yfir löggjafar-
valdinu að segja. Hér á landi hefur
stundum verið um það samið við
myndun ríkisstjórnar að forsætis-
ráðherra rjúfi ekki þing nema með
samþykki annarra stjórnaraðila.
Hvort slíkt samkomulag heldur
stjórnarfarslega er þó allt annað
mál.
í þessu tilliti er Noregur nokkuð
sér á báti en þar er ekki hægt að
rjúfa þing. Það skal sitja út kjör-
tímabilið á hverju sem gengur og
sjá menn á því bæði kosti og galla.
Sama er að segja um Bandaríkin
en þess ber að gæta aö þar er ekki
um þingræði að ræða heldur er
framkvæmdavaldið, forsetinn,
kosinn sérstakri kosningu. Að-
skilnaður löggjafarvaldsins og
framkvæmdavaldsins er þar mun
gleggri en víðast hvar annars stað-
ar.
Þrátt fyrir að Frakklandsforseti
sé kosin beinni kosningu getur
hann rofið þing hvenær sem hann
vill en þó ekki tvisvar á sama ár-
inu. Eins er hann miklu háðari
þinginu en forseti Bandaríkjanna.
Þótt forseti Frakklands útnefni for-
sætisráðherra er það tilskilið að
hann njóti trausts meirihluta
þingsins. Þeir tveir velja síðan
aðra ráðherra í samkomulagi.
Ýmsir alþingismenn vilja tak-
marka þingrofsréttinn meira en
nú er eða leggja hann af með öllu.
Þá kemur einnig til greina að það
verði bundið samþykki Alþingis
sjálfs hvort rjúfa ætti þing og boða
til nýrra kosninga.
Rádherra sitji ekki__________
á Alþingi____________________
Þá hafa ýmsir verið þeirrar
skoðunar að ráðherrar ættu ekki
að sitja á Alþingi og taki varamað-
ur sæti þingmanns sem verður
ráðherra. Með þessu vilja menn
skerpa skilin á milli löggjafans og
framkvæmdavaldsins auk þess
sem það þykir bæði trufla störf
ráðherra og Alþingis að ráðherra
skuli þurfa að vera viðstaddir at-
kvæðagreiðslur í þinginu.
í Noregi og Svíþjóð til að mynda
sitja ráðherrar ekki í þinginu held-
ur taka varamenn sæti þeirra.
Hins vegar sitja menn í Bretlandi
áfram í þinginu þótt þeir verði ráð-
herrar líkt og hér á landi.
Sjálfstæðismenn hafa reyndar
haldið þessari hugmynd á loft og
viljað jafnframt fækka þingmönn-
um sem nemur ráðherrunum. í til-
lögum sem þeir hafa kynnt leggja
þeir til að ráðherrarnir, og þá jafn-
framt ráðuneytin, verði 9 og al-
þingismennirnir 55, eða samtals
jafnmargir og nú sitja á Alþingi.
Þá vilja þeir jafnframt að kjör-
dæmaskipaninni verði breytt,
þannig að um helmingur þing-
manna verði kosnir í einmenn-
ingskjördæmum en hinn helming-
urinn af landslistum. Með því ætti
að fást meiri jöfnuður og réttari
dreifing þingsæta til flokkanna.
Allt i einum graut___________
Eins og staðan er nú hér á landi
má segja að hjá framkvæmdavald-
inu og löggjafarvaldinu sé allt
meira og minna í einum graut.
Mörgum þingmönnum finnst að
framkvæmdavaldið sé of valda-
mikið á kostnað þingsins og að
sömu mennirnir setji lögin og fari
með framkvæmdavaldiö. Eins að
framkvæmdavaldið hafi svo og
svo mikla möguleika til að snið-
ganga löggjafarvaldið.
Dæmi um slíkt eru t.d. aukafjár-
veitingar og bráðabirgðalög auk
þess sem ráðuneytin ráðstafa oft
fjármunum sem engin heimild er
fyrir í fjárlögum.
Þær hugmyndir sem eru á kreiki
um breytingar á stjórnarskránni
eiga það sammerkt að þær stefna
að auknu valdi til þingsins og að
setja framkvæmdavaldinu þrengri
skorður. Oft orkar tvímælis hversu
langt vald ráðherra og ríkisstjórn-
ar nær.
Það er ekki eingöngu á íslandi
sem deilt er um valdsvið fram-
kvæmdavaldsins. T.d. telja sumir
öldungadeildarþingmenn í
Bandaríkjunum að forsetinn geti
ekki hafið stríð gegn írökum án
samþykkis deildarinnar. Forsetinn
er æðsti yfirmaður herafla Banda-
ríkjanna og æðsti yfirmaður utan-
ríkismála en þarf þrátt fyrir það
staðfestingu öldungadeildarinnar
fyrir milliríkjasamningum eins áð-
ur er getið. Dómstólar í Bandaríkj-
unum hafa hins vegar vísað frá
kæru um þetta efni frá öldunga-
deildarþingmönnum á þeirri for-
sendu ekki sé hægt að kæra það
sem hugsanlega kann að henda.
Flestir hafa verið sammála um
það í alllangan tíma að nauðsyn-
legt væri að gera breytingar á
stjórnarskránni. Minna hefur hins
vegar orðið úr verki í því efni en
nú stefnir sem sagt í að eitthvað
verði gert. Hversu víðtækar breyt-
ingarnar verða á eftir að koma á
daginn.