Alþýðublaðið - 12.01.1991, Page 5
Laugardagur 12. janúar 1991
UMRÆÐA
Barnaskattar á íslandi
I mai sl. felldi stjórnarskrárdómstóll Þýskalands
úrskurð um skattamál, sem vakið hefur mikinn
fögnuð þarlendra skattgreiðenda, en um leið sett
fjármálaráðherra landsins i nokkurn vanda. Skatt-
greiðandi haf ði krnrt tekjuskattslögin fyrir dómstól-
um á j»eim grundvelli, að i jteim vœri ekki tekið það
tillit til framfœrslukostnaðar barna, sem stjórnar-
skráin kvseði á um að skylt vmri. Skattgreiðandinn
vann málið; dómurinn kvað upp j»ann grundvallar-
úrskurð að túlka bmri stjórnarskrána á þann hátt að
, , lágmarksframfmrslueyrir fjölskyldunnar skyldi
vera tekjuskattsfrjáls". í framhaldi af þvi úrskurð-
aði dómstóllinn að ákvmði skattalaganna um frá-
drátt vegna barna og barnabmtur, sem giltu 1983
til 1985 og kmrð höfðu verið, fullnmgðu ekki þessu
megins jónarmiði og vmri þvi i andstöðu við st jórnar-
skrána.’i
FINNUR BIRGISSON ARKITEKT SKRIFAR
Afleiðingar þessa dóms eru þó
miklu víðtækari en svo að þær
taki einungis til þessa tiltekna
tímabils. Sérfræðingar eru al-
mennt sammála um að dómurinn
þýði að núgildandi ákvæði um til-
lit til framfærslubyrðar séu einnig
ólögleg, sömuleiðis upphæð per-
sónufrádráttar og jafnvel ýmsir
aðrir frádráttarliðir. Eftirleiðis
muni löggjafanum ekki lrðast að
ákveða einhverjar slumpupphæð-
ir í barnafrádrátt, persónufrádrátt,
námsfrádrátt o.s.frv. heldur skuli
slíkar upphæðir ákveðast eftir
raunhæfu mati á viðkomandi
kostnaðarlið.
Sérfræðingar þýska fjármála-
ráðherrans hafa viðurkennt að
frádráttur vegna barns verði að
hækka úr 3.024 mörkum á ári í
6.000 (um 19 þús. ísl. kr. á mánuði)
og fjölskyiduráðuneytið telur að
skattleysismörk einstaklings verði
að miðast við 840 mörk á mánuði
í stað 468 marka nú.
íslenska stjórnarskráin er löngu
úrelt plagg og engan höfum við
stjórnlagadómstólinn, þannig að
ólíklegt er að svipuð uppákoma
verði hér. Engu að síður ætti þetta
mál að verða okkur umhugsunar-
efni. Hvernig skyldi þessum mál-
um vera háttað hjá okkur? Hvaða
tillit er tekið til framfærslu barna
við álagningu tekjuskatta hér?
Hér á landi eru skattleysismörk
einstaklings nálægt 55 þúsund
krónum-'1 og eru því töluvert
hærri en í Þýskalandi. í þeim sam-
anburði verður þó að taka tillit til
þess að virðisaukaskattur er miklu
hærri hér. Við álagningu tekju-
skatta er ekki tekið tillit til barna-
eignar, en barnafólk fær hins veg-
ar greitt til baka lítilræði, sem kall-
ast barnabætur. Þær nema nú kr.
4.455 á mánuði vegna barna yngri
en 7 ára en eru helmingi lægri
vegna 7—16 ára barna. Síðan ekki
söguna meir, foreldrar unglinga
eldri en 16 ára og ungs fólk í fram-
haldsnámi njóta engrar tillitsemi í
íslenskri skattalöggjöf.
Barnabætur þessar samsvara
því að skattleysismörk fjölskyld-
unnar hækki um kr. 11.200 á mán-
uði fyrir hvert barn yngri en 7 ára,
en um 5.600 krónur fyrir eldra
barn. Þessar upphæðir eru aug-
Ijóslega ekki í neinu samræmi við
raunverulegan framfærslukostnað
barna og myndu því ekki standast
dóm þýska stjórnlagadómstólsins.
Engin raunveruleg rök eru heldur
fyrir því að minna tillit sé tekið til
eldri barna, því að þau eru síst létt-
ari á fóðrunum.
Þetta veldur því að íslenskir for-
eldrar borga í raun háa skatta af
framfærslulífeyri barna sinna —
fyrst með háum virðisaukaskatti
ofan á flest það, sem til þarf, og síð-
an með um 40% tekjusköttum þar
á ofan. Tafla 1 sýnir m.a. að for-
eldrar þurfa að vinna fyrir
28.300—36.400 krónum til þess að
eiga fyrir 20 þús. króna mánaðar-
legum útgjöldum vegna afkvæmis
síns. Reiknað er með að 5% launa
fari í lífeyrissjóð og til stéttarfé-
lags.
Tafla 1
Nauðsynl.
tekjur
Barna-
bætur
Tekju-
skattar
L.sj.
o.fl.
Ráðst.
fé
Hlutaf.
tsk. (no)
Yngra en 7 ára
7—16 ára
Eldra en 16 ára
28.264
32.313
36.364
4.455
2.228
0
11.305
12.925
14.545
1.413
1.616
1.818
20.000 24,2%
20.000 33,1 %
20.000 40,0%
Taflan sýnir þó,ekki nema hluta
skattheimtunnár, því eftir er að
skoða hlut virðisaukaskattsins. Ef
reiknað er með að hann leggist á
% hluta útgjaldanna, er hann
3.108 krónur af þessum 20 þús-
undum og reynist þá heildarskatt-
heimta af tekjum þeim, sem afla
þarf til framfærslu barnanna
eftir að tekið hefur verið tillit til
barnabóta — vera frá 35,2% til
48,5%, sbr. töflu 2.
Tafla 2
Nauðsynl.
tekjur
Skattar
alls (no)
Hlutf.
tsk. + VSK
Yngra en 7 ára
7—16 ára
Eldra en 16 ára
28.264
32.313
36.364
9.959
13.805
17.654
35,2%
42,7%
48,5%
Með öðrum orðum: Tekjuskatt-
ar ríkis og sveitarfélaga einir
hækka fjárþörf (nauðsynlegar
tekjur) vegna framfærslu barna
um 34—73% frá því sem hún væri
ef tekjur til þeirra hluta væru
skattfrjálsar, og samanlögð (Tsk
+ VSK) hækkar skattheimtan
fjárþörfina um 59—105%.
Til fróðleiks má geta þess, að
hjón, sem áttu 250 þús. kr. aflögu
í lok nýliðins árs og keyptu sér
hlutabréf fyrir þá aura, fá endur-
greiddar 100 þús. kr. frá fjármála-
ráðuneytinu á næsta ári. Hjón,
sem framfleyttu tveimur börnum,
5 og 8 ára að aldri og þurftu til þess
að afla tekna upp á 727 þús. kr.
(m.v. forsendurnar hér að ofan),
sem þau greiddu af í tekjuskatta
kr. 290.800, fengu hins vegar að-
eins endurgreiddar í formi barna-
bóta um 80 þús. krónur frá hinu ís-
lenska velferðarríki. — Þau hjón
eru sennilega ekki í sístækkandi
hópi lukkulegra hlutafjáreigenda.
Þó að þannig séu lagðir háir
skattar á rekstrarkostnað fjöl-
skyldnanna, gegnir öðru máli um
álagningu tekjuskatts á ísiensk
fyrirtæki. Þar gildir sú sjálfsagða
meginregla að fyrirtækin eru ekki
iátin greiða tekjuskatt, nema þau
skili hagnaði — tekjurnar séu um-
fram rekstrarkostnaðinn. Pappírar
og fyrirtæki njóta því ólíkt meiri
velvildar í skattakerfinu en börn-
Sem fyrr segir eru ekki líkur á
að íslenski fjármálaráðherrann fái
á sig svipaðan áfellisdóm æðstu
dómstóla og þýskur kollega hans,
þótt sök hans sé sú sama. Hróplegt
óréttlæti skattkerfisins blasir við
og á án nokkurs vafa sinn þátt í
þeirri óáran, sem víða herjar í
þjóðfélaginu, en leggst þó einkum
á tiltekna kynslóð og börn henn-
ar: Greiðsluerfiðleikar hjá þús-
undum heimila, skilnaðir og upp-
lausn fjölskyldna, 700 gjaldþrot
einstaklinga í Reykjavik einni a
síðasta ári, hærri sjálfsmorðstíðni
ungra manna en í nokkru öðru
Evrópulandi.
Það tók ráðandi verðbólgukyn-
slóð ótrúlega langan tíma að átta
sig á nauðsyn bráðra úrbóta, þeg-
ar vaxtaokur og ónýtt kerfi til fjár-
mögnunar íbúðarhúsnæðis
steypti fjölda fólks í glötun á ný-
liðnum áratug. Nu verður hún að
átta sig á því í snatri að núverandi
skattkerfi er líka bölvaldur, sem
heggur í sama knérunn og það
verður að laga. Lágmarkskrafan
er að hæfilegur rekstrarkostnaður
heimilanna verði friðhelgur fyrir
skattheimtumönnum ekki síður
en rekstrarkostnaður fyrirtækj-
anna.
Finnur Birgisson.
"Sjá grein í DER SPIEGEL 50/1990
''Upphæðir í greininni miðast við
seinni hluta ára 1990.
Sparileiðir
íslandsbanka
fœra þér vœna ávöxtun!
Á síbastlibnu ári nutu sparifjáreigendur góbra vaxtakjara hjá íslandsbanka.
Ávöxtun Sparileibanna árib 1990 var þessi:
Sparileiö _'/
Sparileiö
Sparileiö
Sparileiö* /
Ársávöxtun Raunávöxtun
10,8% - 11,4% 3,4% - 3,9%
7 7,7% - 12,0%
13,31%
3,7% - 4,6%
5,75%
10,17%
6,10%
*Sparileiö 4 var hleypt af stokkunum l.september 1990.
Ávaxtaðu spariféþitt á árangursríkan hátt.
Farðu þínar eigin leiðir í sparnaði!
ISLASIDSBANKI
- í takt við nýja títna!