Alþýðublaðið - 12.01.1991, Qupperneq 8
lll
, ALÞJtoA
LÍFTRVGGINGARFÉLAGIÐ1
LAGMÚJ 5 - RFYKJAV1K
sánd 681644
MÞBUBUfilB
rg^yjaassaEBBaíj • ■-■:l , '.nabsj.v
HBBHBB
Sovéski
herinn
nálgast
þinghúsið
Sovésk fallhlífasveit gerði
áhlaup í gær á aðalstöðvar lithá-
ísku varnarmáladeildarinnar í
Siauliai, sem er 100 km norð-
vestur af Vilnius, herma opin-
berir starfsmenn lýðveldisins.
Stuttu síðar hermdi Rolandas
Barysas, fréttastjóri litháísku frétta-
stofunnar ELTA, að lögreglunni i
Viinius hefðu borist fréttir af því að
sovéski herinn nálgaðist þinghúsið.
Þar höfðu þúsundir sjálfstæðisbar-
áttumanna fylkt liði til þess að verj-
ast árás andstæðinganna, ekki að-
eins hersveitarinnar heldur og hins
herskáa minnihlutahóps þeirra
manna er berjast gegn sjálfstæði.
Bryndrekar höfðu þá þegar flutt
til herafla um alla borgina, og mun
forseta lýðveldisins ekki hafa verið
tilkynnt um herflutninginn fyrr en í
þann mund sem hann átti sér stað.
Hermenn búnir sjálfvirkum vopn-
um vöktuðu hlið hervirkis síns og
höfðu gersamlega undirlagt eina
aðalgötu borgarinnar herfarartækj-
um sínum.
Barysas fréttastjóri sagði að her-
sveitirnar hefðu einnig gert áhlaup
á blaðabyggingarnar, þar sem væru
ritstjórnarskrifstofur allra þeirra
meginblaða sem gefin eru út í nafni
sjálfstæðisbaráttunnar, tæki eyði-
lögð og púðurskotum skotið. Sam-
kvæmt frönskum heimildum voru
a.m.k. þrír Litháar og særðir í átök-
unum
Motieka, varaforseti Litháa hefur
hvatt alla borgarbúa Vilnius, eink-
um karlmenn, til þess að verja þing-
og stjórnarhúsin og gefa gaum að
upplýsingum litháíska sjónvarpsins
og útvarpsins.
A öðrum vígstöðvum háðu and-
stæðingar sjálfstæðisbaráttunnar
sitt stríð, þeir hófu verkfall í 7 verk-
smiðjum borgarinnar um morgun-
inn til þess að ítreka kröfur sínar um
afsögn litháíska þingsins og beina
stjórn Sovétforsetans.
Forseti Sovétríkjanna, Míkhaíl
Gorbatsjov hafði á fimmtudaginn
fyrirskipað leiðtogum aðskilnaðar-
stefnunnar að hlíta sovéskum lög-
um ellegar taka afleiðingunum, en
talsmaður sovéska hersins vísaði
sama dag á bug orðrómi um hugs-
anlegt valdarán.
Varnarmálaráðherrann í Moskvu,
hefur varist allra frétta um álit sitt á
hinu ríkjandi ófremdarástandi.
I RÐ I SAU KAS KATTU R
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
til íbúðarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaskattur af vinnu manna sem
unnin er á byggingarstað íbúðarhús-
næðis er endurgreiddur. Endurgreiðsl-
an nærtil virðisaukaskatts af:
• Vinnu manna við nýbyggingu íbúðar-
húsnæðis.
• Hluta söluverðs verksmiðjufram-
leiddra íbúðarhúsa hér á landi.
• Vinnu manna við endurbætur og við-
hald á íbúðarhúsnæði í eigu umsækj-
anda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
• RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis
til sölu eða leigu.
• RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir,
janúar og febrúar, mars og apríl, maí
og júní, júlí og ágúst, september og
október, nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Sérstakt uppgjörstímabil
vegna endurbóta og við-
halds á árinu 1990
Beiðni um endurgreiðslu vegna við-
halds og endurbóta (búðarhúsnæðis
sem unnið var 1990 skal skilað í einu
lagi til skattstjóra í síðasta lagi 20.
janúar 1991. Athygli skal vakin á því að
frumrit sölureikninga skal fylgja um-
sókn um endurgreiðslu vegna vinnu
við endurbætur og viðhald.
Hvenær er endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma fer endur-
greiðslan fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
Launamiðar og
húsbyggingarskýrsla
Athygli skal vakin á því að þeir sem
sækja eða hafa sótt um endurgreiðslu
virðisaukaskatts af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði á árinu 1990 skulu fylla
út launamiða (RSK 2.01) fyrir 20. janúar
1991 vegna greiddra launa og verktaka-
greiðslna. Launamiðann skal senda til
skattstjóra.
Þeir sem sótt hafa um endurgreiðslu
vegna nýbyggingar skulu einnig senda
skattstjóra húsbyggingarskýrslu (RSK
3.03) með skattframtali sínu.