Alþýðublaðið - 22.01.1991, Side 2

Alþýðublaðið - 22.01.1991, Side 2
2 Þriðjudagur 22. janúar 1991 Ekki alveg hættur í málaferlum Blaðið Feykir á Sauðárkróki tók Björn á Löngumýri tali um dag- inn og spurði hann tíðinda — um riðuna sem komin er upp hjá hinum aldna höldi á Löngumýri, um hvað nú tekur við þegar hann hefur ekki lengur fé til að hugsa um: „Flestir menn eru nú dauðir áður en þeir ná mínum aldri, svo ég býst varla við að verða til stórræðanna hér eftir," segir Björn sem sem átti met- sölubók fyrir jólin. Hann kveðst ekki á því að skrifa fleiri bækur, nema það yrði „innansveitar- króníka", það væri af nógu að taka í sinni sveit. Björn kvartar yfir „kjarklausum útgefendum", þeir hafi ekki þorað að prenta meira af bókinni sinni, sem var uppseld síðustu dagana fyrir jól — einmitt þegar bóksalan var mest. Björn segir að iokum að hann sé ekki hættur málaferl- um. Hann sé i máli út af kvótan- um. „Ég held ég sé ekki í fleiri málum núna," segir kappinn. Bubba skotið ref fyrir rass Veslfirska fréllabladiö segir frá því að Bubba Morlhens hafi ver- ið skotið ref fyrir rass í að minnsta kosti einu byggðarlagi landsins — Bolungarvík. Þar voru íbúarnir einhuga um val á hljómplötum fyrir jólin, menn vildu „sitt fólk", Magnús Má og Ástu Björk, sem urðu langsölu- hæst í verslunum þar um slóðir. Plötusalar á Vestfjörðum kvört- uöu ekkert undan sölunni, hún var svipuð og vant er, þrátt fyrir vaxandi samkeppni virðisauka- skattslausra bóka. Fyrirlestur um börn og lestur Kristín Aðalsteinsdóttir umsjón- armaður sérkennslunáms held- ur fyrirlestur í stofu B 201 í Kenn- araháskóla íslands kl. 17 í dag. Kristín mun fjalla um skilning barna á lestri og tilgangi með lestri. Byggir hún erindi sitt á at- hugun sem hún gerði fyrir skömmu og ræðir m.a. hvort nið- urstöður hennar gefi vísbend- ingar um heppilegar aðferðir til lestrarkennslu. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Horntónleikar Á fimmtudaginn heldur Sinfón- íuhljómsveitin þriðju tónleika í rauðri tónleikaröð. Á efnisskrá eru fjögur verk, eftir Tsjajkovskí, Mozart og Schumann. Einleikar- ar aö þessu sinni verða hornleik- ararnir Hermann Baumann, Joseph Ognibene, Þorkell Jóels- sonogEmilFridfinnsson. Hljóm- sveitarstjóri er Peler Sakari. Frambjóðendur og kjördæmisráð Alþýöuflokksins i Austurlandskjördæmi undirbúa nú kosningabaráttuna af krafti og kostgæfni. Alþýöuflokkurinn á Austurlandi: MÖÐARSATT UM BYGGÐASTEFNU Reykjavíkur eða annarra þéttbýl- isstaða vegna þess að það hefur ekki geta búið hér með börn sín sem eru fötluð." — Hvert er þitt mat á hinni pólitísku stöðu í fjórðungnum? „Hér ætti jafnaðarstefnan að njóta mikils fylgis. Það er erfitt að meta núna styrkleikahlutföllin milli einstaka flokka. Mér virðist eins og að fólk sé ekki að reyna svo mikið í augnablikinu að gera upp á milli flokkanna heldur eiga mál eins og atvinnuöryggi og lífs- afkoman hug þess allan. Það er al- veg Ijóst að fólk kemur til með að kjósa stjórnmálaflokka út frá þvi hversu trúverðugir þeir reynast í því að standa vörð um búsetuna, lífsbjörgina og lífskjörin. KvóTi, landbúnaður og kjaraiöfnun_________________ Við leggjum fram í þessari kosn- ingabaráttu kröfu um sáttmála sem við köllum „þjóðarsátt um byggðastefnu" sem byggist á nokkrum grundvallaratriðum. Ég vil í fyrsta lagi nefna að kvótinn verði tryggður heima í héraði. Að bændum og búaliði verði búin betri rekstrarskilyrði og þannig gert kleift að framleiða ódýrari landbúnaðarvörur. Að kostnaður við húshitun og verð á raforku verði jafnað. Að gert veröi átak í samgöngumálum. Lögð verði mikil áhersla á nýsköpun í at- vinnulífinu á landsbyggðinni. Aukin verði sjálfsákvörðunarrétt- ur fyrirtækja og sveitarfélaga. Hið pólitíska vald beini fjárfestingum sínum ekki síður út á landsbyggð- ina heldur en í Reykjavík og að þjónustustofnanir verði reistar á 'landsbyggðinni eins og aðstæður frekast leyfa. Þá þarf að hækka laun verkafólks og vinna þannig að aukinni kjarajöfnun. Ég hef drepið hér á nokkur at- riði sem verður að taka á við myndun næstu ríkisstjórnar að af- loknum kosningum. Þá verða þetta forgangsmál Alþýðuflokks- ins á Austurlandi," sagði Gunn- laugur Stefánsson að lokum. „Ég met stöðuna þannig að Alþýðuflokkurinn fái mann inn á Alþingi eftir kosningarnar i vor í fyrsta skipti i áratugi, eða frá þvi ffyrir kjördæmabreyting- una árið 1959. Það mat mitt byggist á þvi að listinn okkar er skipaður heimafólki, ungu og kraftmiklu fólki, og ég tel að jafnaðarstefnan eigi mikinn hljómgrunn hjá fólki hér núna," sagði Hermann Ni- elsson sem skipar annað sæti lista Alþýðuflokksins á Austfjörðum ffyrir alþingiskosningarnar við Al- þýðublaðið. TRYGGVI HARÐARSON SKRIFAR Frambjóðendur Alþýðuflokks- ins í Áusturlandskjördæmi og kjördæmisráðið funduðu í Vala- skjálf á Egilsstöðum sl. laugardag til að undirbúa kosningabaráttuna fram undan. Mikil hugur var í Al- þýðuflokksmönnum fyrir austan þegar blaðamaður Alþýðublaös- ins leit þar við. Alþýðuflokkurinn í Austur- landskjördæmi var fyrstur til að ganga frá framboðslista sínum, 1. desember sl. Austurland er víð- feðmt kjördæmi og oft erfitt aö ná saman fólki víðs vegar að yfir há- veturinn. Því lögðu fundarmenn ofurkapp að skipuleggja allt sem best enda verður hver og einn frambjóðandi að reka kosninga- baráttuna á sínum stað meira eða minna upp á eigin spýtur. Alþýðublaðið ræddi við fram- bjóðendur og fer viðtal við Gunn- laug Stefánsson, prest á Heydöl- um, sem skipar efsta sæti Á-list- ans, hér á eftir. Gunnlaugur var fyrst spurður hvort hann myndi setjast á þing að afloknum kosn- ingum. Þvi ráða kjósendur „Eg veit það ekki. Því ráða kjós- endur. En ég veit að það er mjög brýnt fyrir Austurland aö eignast þingmann í Alþýðuflokknum svo berjast megi fyrir hagsmunum kjördæmisins sem víðast." — L’m hvað mun kosninga- baráttan snúast á Austfjörð- um? „Kosningabaráttan mun snúast um lífskjörin, búsetuna og lífs- björgina. Þetta eru þau þrjú lykil- atriði sem kosningabaráttan mun snúast um þessu sinni." — Hver er staða atvinnulífs- ins í fjórðungnum? „Hún er á mjög viðkvæmu stigi vegna þess að í gildi eru kvótalög sem ógna grundvelli sjávarþorp- anna með því að kvótinn er eins og á hverfandi hveli. Einnig á land- búnaöurinn í vök að verjast. Á þessum burðarásum hvílir at- vinnulífið hér í fjórðungnum. Það skiptir því öllu hvernig á þessum málum verður haldið á næstu mánuðum og í nánustu framtíð." — Hvað með nýsköpun í at- vinnulífinu? „Það er búið að tala um nýsköp- un i atvinnulífinu lengi og margt hefur verið reynt. Sumt hefur tek- ist en annað mistekist en það er al- veg Ijóst að hér þarf að koma til nýsköpun sem getur boðiö upp á ný atvinnutækifæri. Ég nefni dæmi eins og ferðaþjónustu. Þá nefni ég fiskeldi en þaö virðist hafa gengið bærilega vera með fiskeldi hér í fjórðungnum. Þá nefni ég ýmiss konar smáiðnað, t.d. við matvælaframleiðslu sem er verið að huga að og getur átt framtíð fyrir sér hér á landi. Eins má nefna skógrækt og frekari full- vinnslu sjávarafurða." Hvorki löggq né læknir — Hvernig eru íbúar Aust- fjarða settir í félagslegu tiiliti? „Þetta er mjög víðlent kjör- dæmi og fólk býr við mjög mis- munandi aðstæður. í stærri byggðakjörnum er félagsleg þjón- usta orðin allgóð en á smærri stöð- um er hún takmarkaðri. Þegar við erum að tala um menningarlíf og félagslega þjónustu hér á lands- „Viö leggjum fram i þessari kosn- ingabaráttu kröfu um sáttmála sem við köllum „þjóðarsátt um byggðastefnu," sem byggist á nokkrum grundvallaratriðum," seg- ir Gunnlaugur Stefánsson sem leið- ir lista Alþýðuflokksins á Austfjörð- um. byggðinni annars vegar og Reykjavík hins vegar, þá erum við að tala um tvo ólíka heima. Hvort það er hins vegar hægt að tala um gott eða verra í þessu tilliti er af- stætt. Ég get tekið sem dæmi að þar sem ég bý er enginn læknir. Auð- vitað vildum við hafa lækni bú- settan í byggðarlaginu en svona hefur þetta verið og við höfum orðið að una því. Ég get nefnt fleiri dæmi um þjónustu sem við njót- um ekki. T.d höfum við enga lög- reglu í minu byggðarlagi eða fé- lagsmálastofnun. Það er skortur á margvíslegri þjónustu sem við verðum þá að sækja eitthvað ann- að og það oft langar leiðir. Ég er t.d. í stjórn Þroskahjálpar hér á Austurlandi og við höfum valið þá leið að reyna að efla og styrkja þá þjónustu sem veitt er að Vonarlandi á Egilsstöðum eins og frekast er kostur. Þar hefur átt sér stað gríðarlega mikil uppbygging á síðustu árum og unnið hefur ver- ið sérstaklega gott starf af því starfsfólki sem þar vinnur. Hitt vit- um við líka, að fólk hefur þurft að flytja héðan úr fjórðungnum til

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.