Alþýðublaðið - 07.03.1991, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 07.03.1991, Qupperneq 3
Fimmtudagur 7. mars 1991 3 INNLENDAR FRÉTTIR FRÉTTIR Í HNOTSKURN Bergur Þórðarson, markaðsstjóri FIAT á Islandi, óskar Einari Einarssyni góðs gengis í keppninni á Spáni. FIAT STYRKIR HLAUPARAl Italska verslunarfélagið hf., sem hefur umboð fyrir Fiat-bíla, hefur ákveðið að styrkja Einar Einarsson, frjálsíþróttamann í Ármanni, þannig að hann geti betur sinnt íþrótt sinni. Einar er nú far- inn utan til að keppa á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss í Sevilla á Spáni. Hann á íslandsmet í 60 metra hlaupi sem hann setti í síðasta mánuði, 6,86 sek- úndur, einnig í 50 metra hlaupi, 5,60 sek. Framtíðarmaður í mikilli framför og honum og öðrum keppendum okkar í Sevilla fylgja bestu óskir. SMATT ER FAGURT: Enski heimspekingurinn John Papworth kemur til landsins um helgina í boði Birtingar. Papworth er sjötugur, kunnastur er hann fyrir að vera upp- hafsmaður hreyfingarinnar Smátt er fagurt, eða á hans móðurmáli „Small is beautiful". Hann stjórnar í dag útgáfu málgagnssvonefndraFjórða-heims-samtaka. Fjórða heim- inn mynda að hans sögn smáþjóðir og þjóðabrot af ýmsu tagi, sem öðrum fremur hafa það hlutverk að ryðja braut nýjungum í stjórnmálum, einkum hvað varðar umhverfis- hugsun og samstarf mannkyns þrátt fyrir ólík trúarbrögð, menningarmun og misrétti. Papworth kemur fram á fundi Birtingar á Kornhlöðuloftinu á þriðjudaginn kl. 20.30. Papworth, sem er prestur í ensku biskupakirkjunni, mun taka þátt í messu hjá séra Pálma Matthíassyni í Bústaða- kirkju á sunnudag kl. 14. VEGALAUS B0RN: Forráðamenn Barnaheillar segja að þeim fari fjölgandi börnunum í velferðarþjóðfélagi okk- ar, sem kalla megi vegalaus. Sum þeirra eiga ekki í nein hús að venda, eiga ekki neina forsjáraðila, og oft eiga þau við slík hegðunarvandamál að stríða að ekkert fóstur- heimili sér fært að taka við þeim. I fyrra voru 17 þessara barna vistuð á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Vegalaus börn eru þó mun fleiri að sögn Gunnars Sand- holt hjá fjölskyldudeild félagsmálastofnunar borgarinnar. Hann telur þau geta verið um fimmtíu talsins. Barnaheill efnir nú til málþings 15. mars nk. í Gerðubergi um vanda- mál þetta. Myndin er af stjórnarformanninum og alþingismanninum Guðmundi H. Garðarssyni ásamt stjórninni. FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ HAGNAÐIST VEL: á síðasta ári skilaði rekstur Fjárfestingarfélags Islands góðum hagnaði, 32,3 milljónum króna, en það er 18,4% raunarðsemi af eigin fé. Veltan var 17,9 milljarðar króna, meira en 50% aukning frá fyrra ári. Ákveðið var á aðal- fundinum að auka hlutafé félagsins um 30 milljónir króna og auka með því dreifingu eignaraðildar, en 400 hluthafar eru í félaginu. Stærstu hluthafar eru íslandsbanki hf., Burð- arás hf. (Eimskip), og Lífeyrissjóður verslunarmanna. í stjórn voru endurkjörnir: Guðmundur H. Gardarsson, formaður, Þórður Magnússon, varaformaður, Tryggvi Pálsson, Kristján Ragnarsson og Hörður Jónsson. VINSTRI VÆNGURINN: Nýtt stjórnmálafélag hefur verið stofnað í Reykjavík. Hlaut það nafnið Vinstri væng- urinn. í stjórn eru: Birna Þórðardóttir blaðamaður, Guðlaug Teitsdóttir kennari, og Sigurður Einarsson vélskólanemi. Eins og nafnið bendir til mun hið nýja félag starfa vinstra megin á væng stjórnmálanna, leggur áherslu á verkalýðspólitík og andstöðu við aðild að NATO. Mikil afföll en stödugt verö á íbúöum HÚSBRÉFIN REYNAST VEL „Húsbréfakerfið er í sjálfu sér mjög gott en ég tel að það þurfi að koma því yfir í bankakerfið í stað þess að búa til stórt bákn sem heitir Hús- næðisstofnun. Annars verður maður oft gáttað- ur á hversu fjármála- þekkingu almennings er ábótavant og spyr sig hvort ekki séu brotalam- ir í skólakerfinu,“ sagði Ingvar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í samtali við Alþýðublað- ið. . Ingvar sagði að hann ræki sig oft á að fólk vissi ekki muninn á verðtryggðum og óverð- tryggðum lánum né muninn á raunvöxtum og nafnvöxtum. „Það er ennþá mjög takmarkað sem almenningur veit um húsbréfakerfið en ég held að þegar fólk hefur reynt það og kynnst því sé það almennt ánægt með fyrirkomulagið," sagði Ingvar ennfremur. Hins vegar kom fram í máli Ingvars að ýmislegt mætti betur fara í húsbréfa- kerfinu en með því hefðu verið teknir upp nýir við- skiptahættir og það tæki fólk tíma að átta sig á þeim. Hann sagði að afföll af hús- bréfum væru nú meiri en góðu hófi gegndi og hlyti það að koma fram í hærra húsnæðisverði ef svo verð- ur áfram. Hins vegar hefðu alltaf verið afföll við hús- næðiskaup og miðað við fyrri tíma væru 10% afföll af húsbréfum ekki óeðlileg. Þá væri afgreiðsla Húsnæð- isstofnunar vegna hús- bréfaviðskipta of hæg mið- að við eðlilegan gang. Annar löggiltur fast- eignasali, Óskar Mikaels- son, tók mjög í sama streng. Hann kvað hús- bréfakerfi þjóna sínu hlut- verki mjög vel. Hins vegar væri fólk ennþá að átta sig á því. Afgreiðslutíminn hjá Húsnæðisstofnun væri samt of langur núna, um sex vikur. Hins vegar hefði biðtíminn verið breytilegur og ástandið t.d. gott sl. haust. Óskar kvað húsbréfakerf- ið ekki skapa tímabundna spennu á fasteignamarkað- inum eins og gamla kerfið. „Fasteignaverð hefur verið mjög stöðugt að undan- förnu og raunar ríkti mesta verðstöðvun á fasteignum sem ég man eftir. Það er ekki til komið vegna sölu- tregðu heldur virðist sem framboð og eftirspurn hafi haldist í hendur," sagði Ósk- ar. Þá kom fram í máli Ósk- ars að húsbréfakerfið væri erfitt fyrir ungt fólk sem væri að festa kaup á sinni fyrstu íbúð og það þyrfti með einhverju móti að koma til móts við þann hóp. Hins vegar hentaði húsbréfakerfið venjulegu fjölskyldufólki miklu betur en gamla kerfið og gerir því auðveldara um vik að stækka við sig eftir þörfum. Fasteignasalar segja að þrátt fyrir mikil afföll af húsbréfum hafi það a.m.k. ekki enn komið fram í hærra íbúðaverði. Afföllin koma fram þegar og ef selj- andi vill leysa út húsbréf sem hann fær við sölu íbúð- ar. Geymi hann hins vegar húsbréfin bera þau 6% raunvexti. Afföllin lenda því á seljanda húsnæðis en ekki kaupanda meðan þau koma ekki fram í hærra íbúðarverði. Karl Steinar Gudnason gagnrýnir byggðastefnu og stjórn Byggdastofnunar HILLUR FULLAR AF PAFPÍRUM — um ekki neitt segir Karl Steinar „Loft,“ kallar Karl Stein- ar Guðnason tillögur að breytingum á Byggða- stofnun, sem forsætisráð- herra mælti fyrir í lok síð- ustu viku. Karl Steinar segir að varla sé stafkrók að finna í frumvarpinu sem ekki sé þegar heimild fyrir að framkvæma sam- kvæmt núgildandi lögum. Þingmaðurinn segir stjórn stofnunarinnar hafa stuðlað að því að allar hillur séu fyllt- ar af pappír um ekki neitt. Vissulega geti verið um góð- ar hugmyndir að ræða, en starfslið hafi lítið með að gera hvort hugmyndum sé hrint í framkvæmd. Það skorti ekki frekari heimildir til að auka við skýrslugerð í Byggða- stofnun ríkisins — nær væri að koma gagnlegum hug- myndum í framkvæmd. Samkvæmt frumvarpinu á Byggðastofnun meðal annars að semja fjögurra ára áætlun í byggðamálum og ráðherra að leggja hana fram á Alþingi til afgreiðslu. Karl Steinar kvað ástæðulaust að tíunda atriði sem þegar væru á verk- sviði stofnunarinnar. Ef menn tryðu því að skýrslu- gerðir skiluðu sérstökum ár- angri, þá fælist í tillögunum botnlaust vantraust ,á stjórn Byggðastofnunar fyrjr skort á frumkvæði. í tillögunum sé gert ráð fyrir að meirihluti opinberrar þjónustu verði á landsbyggðinni, en væri ætl- ast til að Alþingi samþykkti að svo skyldi verða, væri komið í „ansi austrænt kerfi.“ Karl Steinar taldi ófært að halda óbreyttum kúrs í byggðamálum. Byggðastefna hefði fram að þessu einkum birst í því að mismuna land- svæðum. Mjög hafi t.d. hallað Landssambána flugbjörgun- arsveita, Landssamband hjálparsveita skáta og Skák- samband íslands sáu sig knú- in til'að mótmæla framsetn- ingu og efnisinnihaldi bréfs Slysavarnafélags íslands til allsherjarnefndar vegna á Suðurnes þar sem þrjú hundruð manns gengju at- vinnulausir sem stendur. Sagði þingmaðurinn að í byggðamálum þyrfti að stefna burt frá því sem verið lagafrumvarps um sjóðs- happdrætti. Ofangreind sam- tök töldu sig vera í góðri sam- vinnu við Slysavarnafélagið í þessu máli og gagnrýna harð- lega umrætt bréf félagsins til Alþingis. í bréfi samtakanna þriggja segir: „Það er því al- hefði, þar sem milljóna- hundruðum hefði verið mok- að í ákveðin fyrirtæki og byggðarlög án þess að menn vissu til hvers. rangt sem Slysavarnafélagið heldur fram í bréfi sínu, og beinlínis ærumeiðandi fyrir okkar félagasamtök, að við séum að nýta okkur það ástand sem er í þyrlumálum Landhelgisgæslunnar okkur til fjáröflunar." Þyrla Landheigisgæslunnar á flugi yfir Reykjavík í gær. A-mynd: E.ÓI. Slysavarnafélagið ærumeiðandi

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.