Alþýðublaðið - 07.03.1991, Side 7
Fimmtudagur 7. mars 1991
Götótt og dýrt dagvistunarkerfi:
Greiða allt að
35 þúsund á mánuði
Atvinnuþátttaka kvenna er hvergi i heiminum
meiri en á íslandi, nema ef vera kynni að Svíþjóð
einni undanskilinni. Árið 1975 var þetta hlutfall
67% en i dag er það komið upp i 90%, hið hœsta
sem þekkist á byggðu bóli. Þá er vinnutimi á íslandi
lengri en annars staðar á Norðurlöndum. Árið 1987
var meðalvinnutimi kvenna i fullu starfi 48 timar, en
karla 57 timar.
30—35 þúsund á______________
mánuði fyrir barn___________
í ljósi þessara staðreynda er dag-
vistun barna á vegum opinberra
aðila hér á landi æði götótt. Árið
1986 höfðu aðeins 36% barna 6
ára og yngri pláss á opinberri dag-
vistarstofnun, og aðeins 3% barna
á aldrinum 7—10 ára fengu inni á
skóladagheimilum.
Margrét Vallý Jóhannsdóttir,
deildarstjóri hjá dagvistun barna
hjá Reykjavíkurborg, segir að víða
í borginni séu alllangir biðlistar en
annars staðar sé ástandið bæri-
legt.
Það var hins vegar almenn
skoðun forystumanna í launþega-
samtökunum sem Alþýðublaðið
hafði samband við að stjórnvöld
og borgaryfirvöld hefðu illa sinnt
þessum málaflokki.
Sérstaklega var bent á að staða
ungra foreldra, sem ekki eiga í
önnur hús að venda en að leita til
einkadagheimila og dagmæðra,
væri slæm. í Reykjavík kostar slík
einkavistun nú a.m.k. 25 þúsund á
mánuði. Þegar tekið er tillit til
þess að skattleysismörkin eru ekki
ýkja há, má bæta nokkru við
þessa upphæð, og getur þá látið
nærri að kostnaður við vistun eins
barns geti verið á bilinu 30—35
þúsund á mánuði.
Yfir 90% kvenna_____________
á vinnumarkaði______________
Hvergi í heiminum er atvinnu-
þátttaka kvenna eins almenn og á
Islandi. Það er staðreynd að staða
kvenna á vinnumarkaði er al-
mennt lakari en staða karla.
Launamunur á milli kynjanna er
verulegur, þannig eru heildartekj-
ur kvenna í fullu starfi um 60% af
launum karla í fullu starfi.
Aukin atvinnuþátttaka kvenna
hefur í fyrsta lagi beinst að tak-
rhörkuðum sviðum hins opinbera,
aðallega í mennta- og heilbrigðis-
kerfinu. í öðru lagi hefur þátttak-
an beinst að almennri þjónustu,
þ.e. afgreiðslu- og þjónustustörf-
um.
Launaþróun í þessum starfs-
stéttum er í fullu samræmi við
aukna þátttöku kvenna, þ.e. hlut-
fallslega lækkandi laun miðað við
aðrar stéttir. Ef atvinnuþátttaka
kvenna er skoðuð kemur í ljós að
það eru fyrst og fremst giftar kon-
ur sem standa að baki þessari
aukningu.
í könnun sem BMH hefur gert
kemur fram að laun háskóla-
menntaðra kvenna í fullu starfi á
árinu 1988 eru tæp 75% af launum
fullvinnandi karla.
í lífskjarakönnun sem gerð hef-
ur verið kemur í ljós að 71%
kvenna sem eiga eitt barn er í
launaðri vinnu, 52% þeirra sem
eiga tvö börn, og 44% þeirra sem
eiga þrjú börn.
SkaWlagning barnafólks
Við íslendingar erum skatta-
kóngar á meðal OECD-þjóða í
óbeinum sköttum. En sú skatt-
lagning, sá tilkostnaður, sem flest-
ir foreldrar ungbarna greiða til að
komast út á vinnumarkaðinn er
greinilega of óbeinn til að rata inn
í tölur um óbeina skatta. Þessa gíf-
urlegu skattlagningu er vert að
hafa í huga áður en við sleppum
okkur í fagnaðarlátum yfir þeirri
niðurstöðu 0ECD að bein skatt-
heimta hér á landi sé minni en á
hinum Norðurlöndunum, og
minni en hún er að meðaltali í
OECD-ríkjunum.
Af 24 löndum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD)
var bein skattlagning hæst í Sví-
þjóð árið 1988. Lægst var hún í
Tyrklandi og næstlægst allra Evr-
ópuþjóða á Islandi.
Þessi mynd er frá dagheimili
sem rekið er í bárujárns-
húsinu fræga við Bergþórs-
götu. Þarna reka foreldrar
sjálfir heimilið.
A-mynd: E.ÓI.
DAGSKRÁIN
Sjónvarpið
17.50 Stundin okkar 18.25 Þvotta-
birnirnir 18.50 Táknmálsfréttir 18.55
Fjölskyldulíf 19.15 Steinaldarmenn-
irnir 19.50 Jóki björn 20.00 Fréttir,
veður 20.35 íþróttasyrpa 21.05 Ríki
arnarins (5) 21.50 Evrópulöggur
22.40 Háspenna — lífshætta 23.00
Ellefufréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Með Afa
19.19 19.19 20.10 Óráðnar gátur
21.00 Á dagskrá 21.15 Paradísar-
klúbburinn 22.05 Draumalandið
22.35 Réttlæti 23.25 Úlfur í sauða-
gæru (Died in the Wool) 00.55 CNN.
Rós 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 Morgunþáttur Rásar 1 07.32
Daglegt mál 07.45 Listróf 08.00
Fréttir og Morgunauki 08.30 Frétta-
yfirlit 8.32 Segðu mér sögu 09.00
Fréttir 09.03 Laufskálinn 09.45 Upp-
haf rússneska ríkisins 10.00 Fréttir
10.03 Morgunleikfimi 10.10 Veður
10.20 Við leik og störf 11.00 Fréttir
11.03 Tónmál 11.53 Dagbókin 12.00
Fréttayfirlit á hádegi 12.20 Hádegis-
fréttir 12.45 Veðurfregnir 12.48 Auð-
lindin 12.55 Dánarfregnir 13.05 í
dagsins önn 13.30 Hornsófinn 14.00
Fréttir 14.03 Útvarpssagan: Vefarinn
mikli frá Kasmir 14.30 Miðdegistón-
list 15.00 Fréttir 15.03 Leikrit vikunn-
ar 16.00 Fréttir 16.05 Völuskrín 16.15
Veðurfregnir 16.20 Á förnum vegi
16.40 Létt tónlist 17.00 Fréttir 17.03
Vita skaltu 17.30 Tónlist á síðdegi
18.00 Fréttir 18.03 Hér og nú 18.18 Að
utan 18.30 Auglýsingar 18.45 Veður-
fregnir 19.00 Kvöldfréttir 19.35 Kvik-
sjá 19.55 Daglegt mál 20.00 í tón-
leikasal 22.00 Fréttir 22.07 Að utan
22.15 Veðurfregnir 22.20 Lestur
Passíusálma 22.30 Leðurblökur, of-
urmenni og aðrar hetjur í teiknisög-
um 23.10 í fáum dráttum 24.00 Frétt-
ir 00.10 Tónmál 01.00 Veðurfregnir
01.10 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns.
Rós 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unfréttir 09.03 Níu fjögur 11.30 Þarfa-
þing 12.00 Fréttayfirlit og veður
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Níu fjögur
16.00 Fréttir 16.03 Dagskrá 17.30
Meinhornið 18.00 Fréttir 18.03 Þjóð-
arsálin 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Gull-
skífan 20.00 Lausa rásin 21.00 Þættir
úr rokksögu íslands 22.07 Landið og
miðin 00.10 í háttinn 01.00 Næturút-
varp á báðum rásum til morguns.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Fréttir
09.10 Páll Þorsteinsson 11.00 Valdís
Gunnarsdóttir 12.00 Hádegisfréttir
14.00 Snorri Sturluson 15.00 Fréttir
17.00 ísland í dag 18.30 Hafþór Freyr
Sigmundsson 22.00 Kristófer Helga-
son 23.00 Kvöldsögur 24.00 Kristó-
fer áfram á vaktinni 02.00 Þráinn
Brjánsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Bjarni
Haukur Þórsson 11.00 Geðdeildin
12.00 Sigurður Helgi Hlöðversson
14.00 Sigurður Ragnarsson 17.00
Björn Sigurðsson 20.00 Jóhannes B.
Skúlason 22.00 Ólöf Marín Úlfars-
dóttir 02.00 Næturbrölt Stjörnunnar.
Aðalstöðin
07.00 Á besta aldri. Morgunandakt
09.00 Fram að hádegi 09.15 Heiðar,
heilsan og hamingjan 09.30 Heimil-
ispakkinn 10.00 Hver er þetta? 10.30
Morgungestur
11.00 Margt er sér til gamans gert
11.30 Á ferð og flugi 12.00 Hádegis-
spjall 13.00 Strætin úti að aka 13.30
Gluggað í síðdegisblaðið 14.00
Brugðið á teik í dagsins önn 14.30
Saga dagsins 15.00 Topparnir takast
á 15.30 Efst á baugi vestanhafs 16.15
Heiðar, heilsan og hamingjan 16.30
Akademían 18.30 Smásaga Aðal-
stöðvarinnar 19.00 Eðaltónar 22.00
Á nótum vináttunnar 24.00 Nætur-
tónar Aðalstöðvarinnar.