Alþýðublaðið - 15.03.1991, Síða 1
42 TÖLUBLAÐ - 72. ÁRGANGUR
TVÖFALDUR1. vinningur
FÖSURDAGUR
15. MARS 1991
ÁRSÞINGIÐNREKENDA: Félag íslenskra iðnrekenda
hélt ársþing sitt í gær. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
hélt ræðu á þinginu um innri markað Evrópu. Sjá nánar
frétt á bls. 6.
EINKAVÆÐING ORKUFRAMLEIÐSLU? Víglund-
ur Þorsteinsson, sem látið hefur af formennsku Félags ís-
lenskra iðnrekenda, segir að þess sé ekki að vænta að
verulegur hagvöxtur sé fram undan. Hann yrði væntan-
lega óverulegur miðað við hvað er að gerast í samkeppni-
slöndum okkar. Víglundur varpaði fram þeirri hugmynd
að hugsanlega væri kominn tími til að einkavæða íslensk-
an orkuiðnað og örva þannig samkeppni á því sviði. ,,Við
eigum í dag fimm öflug orkufyrirtæki sem nú þegar eru
kjörin til slikrar einkavæðingar, þ.e. Landsvirkjun, Hita-
veitu Reykjavíkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Orkubú
Suðurnesja og Orkubú Vestfjarða," sagði Víglundur m.a.
á aðalfundi FIl.
VERKFALL FLUGLEIÐAFLUGMANNA? Féiag ís-
lenskra atvinnuflugmanna hefur boðað sólarhringsverk-
fall hjá Flugleiðum frá miðnætti aðfararnætur 29. mars,
sem er föstudagurinn langi. Flugleiðir telja kröfur flug-
manna samanlagt ígildi meira en 80% launahækkunar.
Samningar flugmanna runnu út í apríl á síðasta ári og hafa
verið lausir síðan. I gær var haldinn árangurslaus fundur
samningsaðila hjá sáttasemjara.
Bylting gegn
vímuefnavanda
Sæmundur Guðvinsson
skrifar um þingsályktunartil-
lögu Rannveigar Guðmunds-
dóttur og sex annarra þing-
manna Alþýðuflokksins.
Hálfnað ver þá
/2 hafið er
Þorlákur Helgason segir þó í
fréttaskýringu sinni að það
gildi ekki um Alþingi íslend-
inga. Hann ræðir vinnubrögð
Alþingis og víxlauppáskriftir
nú'rétt fyrir kosningar.
Harkan vex
„Það má til sanns vegar færa
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki verið harður í því að koma
stefnumálum sínum í fram-
kvæmd," segir Guðmundur
Einarsson í föstudagsspjalli
sínu.
Lánsfjárlög og álverstillögur afgreidd á Alþingi í dao,
6 milljarðar
bætast við
— Landsvirkjun verdur heimilað að taka lán til virkjana
Þrír milljarðar króna
bætast við á lánsfjárlög-
um í dag og rætt er um að
Landsvirkjun verði
heimilað að taka allt að
þriggja milljarða króna
lán vegna orkufram-
kvæmda í tengslum við
álver. 1,7 milljarða heim-
ild er gefin til kaupa á 55
þúsund fjár í haust í sam-
ræmi við undirritaðan
búvörusamning. Til að
fást við vanda loðnu-
verksmiðja er gert ráð
fyrir 600 milljónum
króna.
Lánsfjárlög og tillögur í
álversmáli koma til af-
greiðslu Alþingis í dag.
Fjárhags- og viðskipta-
nefnd neðri deildar mun af-
greiða lánsfjárlög áður en
þinghald hefst. Samkvæmt
frumvarpinu nú munu láns-
fjárlög að öllum líkindum
hækka um 3 milljarða, en
að auki verður Landsvirkj-
un heimilað að taka allt að
þrjá milljarða að láni til
virkjanaframkvæmda
vegna væntanlegs álvers.
Og talað hefur verið um að
300 milljónir króna þurfi til
að kaupa land undir álver.
Fiskveiðisjóður og Síldar-
verksmiðjur ríkisins munu
sameiginlega taka um 600
milljónir króna að láni og
100 milljónir fara til byggða
sem urðu illa úti í kjölfar
loðnubrests.
Óveðrið í byrjun febrúar
dregur dilk á eftir sér. 350
milljóna króna þarf að afla
sérstaklega vegna endur-
bóta. Ymsir smærri liðir
eru í viðbótinni á lánsfjár-
lögum. Ölfushreppi er til
dæmis heimilað að taka
135 milljónir að láni til end-
urbóta á hafnarmannvirkj-
um, en sú upphæð er bund-
in þeim skilyrðum að þil-
plötuverksmiðja rísi í Þor-
lákshöfn.
Lánsfjárlög munu hækka
um þrjá milljarða í dag frá
upphaflegri tillögu. Þegar
fjármálaráðherra lagði
frumvarpið fram hljóðaði
það upp á 11 milljarða og
875 milljónir. Nú er búist
við að endanlega talan
verði tæplega 15 milljarðar
króna.
REGLUGERÐ UM FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR: jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur gefið út
reglugerð um félagslegar íbúðir og Byggingarsjóð verka-
manna. í reglugerðinni er m.a. kveðið á um ábyrgð og
verksvið sveitarstjórna og húsnæðisnefnda, um lán til fé-
lagslegra íbúða, um byggingu eða kaup á félagslegum
íbúðum, um rétt einstaklinga til félagslegra íbúða og rétt-
arstöðu íbúðaeigenda og leigjenda, og um innlausn og
endursölu á félagslegum íbúðum.
ALÞJÓÐADAGUR NEYTENDARÉTTAR: í dag er ai-
þjóðadagur neytendaréttar. Frá því árið 1983 hafa Alþjóða-
samtök neytendafélaga, IOCU, haldið daginn hátíðlegan
ásamt neytendafélögum um allan heim. Neytendafélög
um heim allan hafa sett fram sjö meginkröfur sem lúta að
öryggi, upplýsingum, vali, áheyrn, bótum, fræðslu og um-
hverfi.
BÆNDUR STAÐFESTA BÚVÖRUSAMNING:
Stéttarsamband bænda staðfesti á fundi sínum i gær ný-
gerðan búvörusamning með miklum meirihluta atkvæða.
Samningurinn verður ekki staðfestur af ríkinu fyrr en nýtt
þing hefur fengið að fjalla um samninginn að afloknum
kosningum í vor og að því gefnu að það fallist á hann.
LEIDARINN í DAG
Alþýðublaðið fjallar um afturhaldsöflin í íslensku
þjóðfélagi í leiðara dagsins. Blaðið segir að svartasta
afturhaldið leynist hjá Framsókn og Alþýðubanda-
lagi og hin makalausa ræða Hjörleifs Guttormssonar
þingmanns um álmálið í fyrrakvöld sé talandi dæmi
um hvernig ofbeldisöflin misnoti sér lýðræðislegar
leikreglur.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: OFBELDISVERK AFTUR-
HALDSSINNA Á ALÞINGI.
Enginn kattarþvottur þetta
Nú þegar lýður að þinglokum er ekki seinna vænna en að skola af sér skítinn eftir veturinn og mæta hreinn
og strokinn í kosningabaráttuna sem er framundan. Þá dugar enginn kattarþvottur til. A-mynd: E.Ól.
RITSTJÓRN © 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR © 625566