Alþýðublaðið - 15.03.1991, Síða 2
2
\FRÉTTASKÝRING\
Föstudagur 15. mars 1991
Hálfnað verk
þá hafið er
— gildir þó ekki um Alþingi íslendinga
Fyrirspurnaþing mætti kalla samkunduna. Búið er að svara um 150 fyrirspurnum þingmanna, en mörg stórmál
frá ríkisstjórn eru enn óafgreidd, og enginn veit daginn fyrir þinglausnir hver útkoman verður.
Listalíf um helgina
Mikið er um að vera í sýningar-
sölum höfuðborgarsvæðisins
um helgina. í Hafnarborg og að
Vesturgötu 17 sýnir Kjartan
Gudjónsson, verulega fallegar
sýningar. Hjá Sævari Karli er
Pórunn S. Þorgrímsdóttir, list-
málari og leikmyndateiknari
með sýningu á verslunartíma
(hún er á meðfylgjandi mynd).
Pórdís Alda Sigurdardóttir sýnir
í Ásmundarsal. í Gallerí Borg er
sýning Ásgeirs Smára Einarsson-
ar, Borgarlandslag. í Nýlistasafn-
inu er sýning Kristins Gud-
brands Hardarsonar — og á
Kjarvalsstöðum eru verk Meist-
ara Kjarvals, Kjarval og Náttúr-
an.
Ljósmyndasýningar
Ljósmyndarar bladanna eru
með forvitnilega sýningu í Lista-
safni ASl, sem gaman verður að
skoða. Þeir fjölmörgu sem hafa
áhuga á Ijósmyndum sem list,
munu ennfremur skoða lslensku
Ijósmyndasýninguna á Kjarvals-
stöðum.
Hugleikur i nýju
leikhúsi
Hugleikur, áhugamannafélag
ungs leikhúsfólks, frumsýnir
spánýtt íslenskt verk annað
kvöld, Saga um Svein sáluga
spánnýtt íslenskt verk annað
ungu hans. Höfundar eru Unn-
ur Guttormsdóllir og Anna Krist-
ín Krístjánsdóttir. Frumsýnt er í
nýju „leikhúsi" að Brautarholti 8
í sal Kvikmyndaverksmiðjunnar
hf. Sýningar verða 10—12 talsins
fram til 8. apríl. Sími miðasölu
623047.
Geðsjúkdómar og
fordómar
Geðlæknafélag íslands heldur
opinn kynningar- og umræðu-
fund í Gerðubergi á laugardag
kl. 16. Tilgangurinn er að ræða
ýmis mál sem snerta geðlæknis-
fræði, geðsjúkdóma, fordóma og
framtíðarstefnur. Undanfarið
hefur mikið verið rætt og ritað
um vanda geðsjúkra í þjóðfélagi
okkar og vilja læknar nú leggja
orð í belg og örva umræðu um
þessi mál. Frummælendur verða
geðlæknarnir Magnús Skúlason
og Jón Brynjólfsson.
Finnsk
menningarvika
Finnsk menningarvika er að
hefjast i Reykjavík. Á morgun,
laugardag kl. 16, verður finnsk
bókakynning í Norræna húsinu.
Timo Karlsson, sendikennari
kynnir bækur sem komu út í
Finnlandi á síðasta ári. Gestur
bókakynningarinnar verður rit-
höfundurinn Kjell Westö, maður
um þrítugt, blaðamaður við
Hafvudstadsbladet í Helsinki.
Westö hefur átt miklu gengi að
fagna í ritstörfum sínum og vak-
ið mikla athygli í heimalandinu.
I Háskólabíói verður sýnd nýj-
asta kvikmynd Mika Kaurismak-
is, en hún heitir Amazon.
Alþingismenn haldo ó
morgun heim i kosn-
ingabaráttu og sjö mán-
aða fri — eða á vit ann-
arra starfa. Fólk hefur
að undanförnu litt botn-
að i þvi sem fram hefur
farið siðustu daga
þings. Nokkur hundruð
mál eru enn óafgreidd.
Enginn vissi i gær
hvaða mál fengju fulln-
aðarafgreiðslu. Seina-
gangur i þinginu er með
ólikindum, þar sem
langflest mál þurfa að
fara til umræðu og i
nefndir i hvorri deild
fyrir síg. Og á siðustu
dögum verða þingmenn
stikkfri, af þvi að kosn-
ingar eru á næsta leiti.
ÞORLÁKUR HELGASON SKRIFAR
Fyrirspurnaþing
Þing það sem nú er að ljúka
mætti kalla „fyrirspurnaþing."
Þingmenn hlaða inn fyrirspurn-
um, sem margar hverjar virðast
fyrst og fremst vera hugsaðar til
þess að vekja athygli fjölmiðla. Og
þegar prófkjör stjórnmálaflokk-
anna stóðu yfir í haust fylltust hill-
ur af fyrirspurnum til ráðherra og
voru augsýnilega lagðar fram til
að vekja athygli kjósenda á ágæti
fyrirspyrjenda.
Svipað er að segja um þings-
ályktunartillögur. Onefndur þing-
maður hefur að undanförnu lagt
inn eitt mál á dag í von um að eitt-
hvert þeirra fari í gegn. „Orð dags-
ins“ er póstur viðkomandi þing-
manns kallað á göngum. Mikil
vinna fer oft fram í nefndum. Fjöl-
mörgum aðilum í þjóðfélaginu er
ætlað að gefa umsagnir um mál og
þess vegna taka þau stundum
langan tíma í meðförum utan
þings sem innan. Það breytir því
ekki að hlutirnir ganga býsna seint
og erfitt er að sjá að málum sé rað-
að í forgangsröð.
Það er að vonum að almenning-
ur spyrji hvað allir þessir þing-
menn séu að gera? Hvernig standi
á því að mál séu á dagskrá um
miðjar nætur og þingmaður tali
fjórðung úr sólarhring?
Myndirðu liða þessi
vinnubrögð heimq____________
hjá þér?____________________
Hvað gerir heimili eða fyrirtæki
sem þarf að afgreiða 462 mál á
einum vetri? Og hefur einn dag til
stefnu? Reynir að komast að því
hvaða mál skipta máli og hver eru
þýðingarminni? Eru sum mál í
heimilisrekstrinum viljandi hun-
suð af því að fjölskyldunni er um
megn að takast á við þau eða af
því að allir vita að það er tilgangs-
laust að komast að niðurstöðu ef
fjárhagur leyfir ekki?
Tilefnið er augljóst. Alþingi ís-
lendinga hafði í gær tekið 462 mál
á dagskrá. Fram undan eru töðu-
gjöld, því að til stendur að þing-
heimur verði sendur heim á morg-
un — frá hálfnuðu verki að því er
sýnist. Aragrúi mála mun lenda í
pappírskörfunni og verða prentuð
að nýju og lögð fram á næsta
þingi, vegna þess að þau náðu
ekki fullnaðarafgreiðslu nú. Hvers
vegna eru þau ekki afgreidd? Þeir
sem fylgjast með þingstörfum
hljóta að sjá að venjuleg fjölskylda
myndi tæplega fallast á vinnu-
brögðin.
Setið á þjóðþriffamálum
Sum mál daga uppi af því að
flutningsmaður er ekki í réttum
flokki. Stjórnarandstaðan er í al-
mennum sætum. Fyrir framan þá
eru stjórnarliðar — og allra fremst
ríkisstjórn. Stjórnarfrumvörp hafa
alla jafna forgang. Þó ekki í öllum
tilvikum. Mörg stórmál sem ríkis-
stjórnin leggur fram í eigin nafni
daga uppi á þinginu. Tökum eitt
dæmi:
Ef frumvarp Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsmálaráðherra um að
loka gamla húsnæðiskerfinu frá
1986 nær ekki fram að ganga,
munu fimm þúsund fjölskyldur
búa við algjöra óvissu í þeirri bið-
röð sem fólkið hefur verið í. Allir
aðilar sem fjallað hafa um frum-
varpið út frá fjárhagslegri hlið
þess telja það hið mesta þjóðþrifa-
mál að eitt húsnæðiskerfi gildi
áfram. Allir — nema Alþingi ís-
lendinga? Framsóknarmenn „sitja
á málinu." Það er viðurkennd að-
ferð til að hindra að mál komist í
gegn sem viðkomandi er ekki sátt-
ur við. Stundum eru þetta einn eða
tveir þingmenn sem koma í veg
fyrir að þjóðþrifamál fari rétta leið
í gegnum þingið.
Stiórnarliðar sHlckffri
Þinglok nú eru með sérstökum
hætti, þar sem kosningar eru fram
undan. Það gerist æviniega rétt
fyrir kosningar að þingflokkar
vilja vera sjálfstæðir og verða laus-
beislaðri. Um einstaka mál eru
menn ekki sammála á ríkisstjórn.
Það hefur alltaf verið kunnugt, þó
að Steingrími sem verkstjóra hafi
tekist aö halda hópnum saman.
Landbúnaðarmálin eru slík mál,
álmálið á mörkunum og í húsnæð-
ismálum hafa núverandi og fyrr-
verandi félagsmálaráðherra
stundum verið eins og oddvitar
tveggja fylkinga. Sjávarútvegs-
stefnan er svo enn annað mál, þar
sem þingmenn skiptast í marga
flokka þvert á sína eigin flokka.
Nú, þegar kosningaskjálftinn er
farinn að villa mönnum sýn, koma
ágreiningsmálin aftur upp á yfir-
borðið. Stjórnarandstaðan segir
að ekki standi á henni að afgreiða
þingmál. Vandinn sé að ríkis-
stjórnin sjálf hafi ekki komið sér
saman um hvaða mál beri að af-
greiða fyrir þingmál. Þessa síðustu
daga gerist það að þingmenn eru
komnir í framboðsleik. Það var Ól-
afur Ragnar fjármálaráðherra sem
gaf þeim undir fótinn.
Ólaffur gaff út_______________
ffyrsta vixilinn
Ölafur Ragnar Grímsson sagði
fjölmiðlum frá því í síðustu viku að
það væri nauðsynlegt að flýta
ýmsum framkvæmdum. Tveir
rnilljarðar króna áttu að fara í það.
Ástæðan var sú að álverksmiðja
virtist vera langt undan. Það
reyndist vitleysa og enginn ráð-
herra kannaðist við loforð Ólafs.
Loforð ólafs reyndust fyrsti kosn-
ingavíxillinn.
Nú bíða þingmenn í röðum eftir
því að fá að vera með á víxlum. í
gær neituðu þrír þingmenn að fall-
ast á að ráðstafa peningum, sem
m.a. áttu að renna til verkafólks
sem varð af mikilli vinnu þegar
loðnan brast. Þeir áttu kjósendur
sem biðu eftir peningum. Þing-
mennirnir sögðu ófært að Ólafur
Ragnar fengi einn að ráðstafa
milljörðum. Og þóttust finna autt
víxilblað.
Aragrúi_______________________
óaffgreiddra mála_____________
Ljóst er að við þinglok, sem
væntanlega verða á morgun,
munu fjölmörg þingmál liggja
óbætt hjá garði. Um síðustu helgi
höfðu a) 175 frumvörp verið
lögð fram, en 38 orðið að lögum.
b) 88 þingsályktunartillögur
verið lagðar og 20 af þeim sam-
þykktar.
c) 20 skýrslur lagðar fram og 12
verið ræddar.
d) 162 fyrirspurnir verið lagðar
fram og 134 verið svarað.
Á þeim tíma sem liðinn er hafa
fjölmörg mál litið dagsins Ijós.
„Orð dagsins" berast enn og um-
ræður hafa dregist á langinn í
sumum málum. Ef þingi verður
slitið í dag munu fjölmörg mál
renna í gegn á síðustu stundu. Það
eru heldur ekki góð vinnubrögð
að málin fari um sali á færibandi
án umræðu, eins og gerst hefur
undanfarna daga.
Á byrjunarreit i haust?
Alþingi íslendinga er löggjafar-
samkunda. Starfsemi þings hefur
sætt gagnrýni, m.a. fyrir það að
þingmenn hafi meiri áhuga á að
komast að í framkvæmdavaldinu
en að vinna að bættri löggjöf.
Bankaráðsstólar eru spennandi,
Byggðastofnun, sjóðsstjórnir o.fl.
o. fl. Væri skilið milli löggjafar-
sviðs og framkvæmdasviðs kynni
margt annað að leysast. Ein mál-
stofa er einnig til bóta. Marg-
flokkastjórnir kalla á árekstra og
verða til þess að mál fara ekki með
hraði um málstofur.
Á næstunni sækjast þingmenn
eftir endurkosningu. Þá munu
þeir draga úr pússi sínu verkin,
sem læstust inni í nefndum eða
hlutu náð fyrir augum þings. Ein-
hverjir hafa getað efnt loforðin
sem voru gefin fyrir síðustu kcsn-
ingar. En þaö sem bjargar þing-
heimi er timinn. Vika er langur
timi í pólitík. Þingmenn koma
ekki til starfa fyrr en í haust eftir 7
mánaða hlé. Þá hefst sama um-
ræðan um vinnubrögð á Alþingi
og það sem var er gleymt. Við fær-
umst öll á byrjunarreit að nýju.