Alþýðublaðið - 10.04.1991, Page 4
4
Miðvikudagur 10. apríl 1991
JWMIBim
HVERFISGÖTU 8-1 0 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
SÍMI 625566
Eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjórn: 625538
Dreifing: 625539
Tæknideild: 620055
Fax: 627019
HRÆÐSÍUÁRÓÐUR
FORSÆTISRÁÐHERRA
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur
lýst því yfir, og reyndar gert þá yfirlýsingu að megin-
stefnuyfirlýsingu Framsóknarflokksins í komandi al-
þingiskosningum, að kosningarnar 20. apríl séu þjóð-
aratkvæði um aðild að Evrópubandalaginu. Þetta er
ekki einungis stórfurðuleg yfirlýsing frá forsætisráð-
herra íslands, heldur einnig lúaleg hræðslupólitík.
Forsætisráðherra hefur stjórnað ríkisstjórn íslands,
sem átti í viðræðum sem EFTA-ríki við Evrópubanda-
lagið um sameiginlegt evrópskt efnahagssvæði. Evr-
ópska efnahagssvæðið (EES) er allt annar hlutur en
aðild að Evrópubandalaginu. Menn hljóta að gera þá
lágmarkskröfu til forsætisráðherra landsins að hann
geri greinarmun á þessu tvennu. Og auðvitað gerir
Steingrímur Hermannsson greinarmun á þessu
tvennu. Umræður um aðild að Evrópubandalaginu
eru alls ekkert á dagskrá. Hins vegar hefur ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar átt í viðræðum, eins og
ríkisstjórnir annarra EFTA-ríkja, við aðildarlönd Evr-
ópubandalagsins um Evrópska efnahagssvæðið. Það
er því með öllu óskiljanlegt að Steingrímur Her-
mannsson skuli flytja þá hræðslupólitík nú, sem eink-
um beinist gegn Sjálfstæðisflokknum og Alþýðu-
flokknum, að kosningarnar snúist um aðild íslands að
Evrópubandalaginu.
Viðræður íslands sem EFTA-ríkis við EB-löndin um
EES: Um hvað snúast þær? Ekki um aðild íslands að
EB. Heldur um stofnun evrópsks efnahagssvæðis.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hefur
mótað þá stefnu fyrir íslands hönd og verkstýrt henni
í nánu samráði við forsætisráðherra íslands, Stein-
grím Hermannsson. Utanríkisráðherra hefur upplýst
það í fjölmiðlum, að enginn ágreiningur hafi verið milli
þeirra tveggja um hvernig skuli haldið á þeim málum.
Það er því dapurlegt að forsætisráðherra skuli koma
nú í bakið á samráðherra sínum með slíkum hætti og
rugla á meðvitaðan hátt saman viðræðum íslands við
EB um Evrópska efnahagssvæðið annars vegar og
inngöngu íslands í EB hins vegar. Og auðvitað gerir
forsætisráðherra þetta sem formaður Framsóknar-
flokksins í kosningaslag: Nýtir sér sorglega takmark-
aða þekkingu íslendinga á Evrópumálum og einfaldar
málið niður í tilbúinn hræðsluáróður, að Alþýðuflokk-
urinn haldi „að eina von íslands sé að skríða í kjöltuna
á EB," eins og forsætisráðherra orðaði það á stjórn-
málafundi á Akureyri um síðustu helgi.
Samningarnir um Evrópska efnahagssvæðið verða
með stærstu hagsmunamálum íslendinga á næsta
kjörtímabili. Takist þessir samningar munu þeir spara
Islandi tolla, sem Islendingar nú greiða, sem sam-
svara 20—25 milljörðum á þessum áratug. Þetta eru
þó smámunir hjá þeim upphæðum sem sparast fyrir
íslendinga ef tollar verða niður felldir á fullunnar fisk-
afurðir þjóðarinnar. Þar með yrði starfsskilyrðum fisk-
vinnslu og matvælaiðnaðará íslandi gjörbreytt. Þetta
þýddi nýtt vaxtarskeið í fiskvinnslunni. Að viðbætt-
um fiskmörkuðum þýddu samningarnir heilsteypta
fiskveiðistefnu: Hindrunarlausan markaðsaðgang,
eflingu atvinnu innanlands í fiskvinnslu og tollafríð-
indi á útfluttarfiskafurðir. íslendingaryrðu ekki lengur
hráefnisframleiðendur, heldur iðnaðarþjóð í matvöru.
Forsætisráðherra hefur veitt ríkisstjórn forstöðu
sem hefurveriðsammála um þessa miklu hagsmuni.
Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að samningum
um Evrópskt efnahagssvæði milli EFTA-ríkjanna og
aðildarríkja Evrópubandalagsins, sem fyrir ísland
myndi þýða framangreindarframfarirílandinu. Þaðer
því með öllu óskiljanlegt að forsætisráðherra íslands
vilji fórna þessum miklu þjóðarhagsmunum með
hræðsluáróðri um alls óskylda hluti, ekki síst þar sem
hann sjálfur hefur verið í forsvari fyrir ríkisstjórn sem
hefur undanfarin tvö ár tekið þátt í samningum
EFTA-ríkjanna við Evrópubandalagið um sameigin-
legt evrópskt efnahagssvæði.
SKJALDBORG UM
RÍKISREKSTUR ?
Alþýðublaðið, rikisstyrkt málgagn Alþýðuflokks-
ins, hefur að undanförnu lýst yfir miklum áhyggjum
yffir einni setningu i ályktun landsfundar
Sjálfstæðisflokksins um menningarmál. Þessi
setning „að ffela einkaaðilum rekstur Rásar 2" var
m.a. tilefni leiðara hér i blaðinu sem bar yfirskrift-
ina: „Sláum skjaldborg um Rás 2". Þar var þeim
hugmyndum að fela einkaaðilum rekstur Rásar tvö
rikisútvarpsins algjörlega hafnað.
Þessi höfnun kemur undarlega
fyrir sjónir þar sem Alþýðuflokk-
urinn hefur að undanförnu aug-
lýst sig sem frjálslyndan flokk sem
hafni miðstýringu og ríkisrekstri á
flestum sviðum. Reyndar hefur
meira farið fyrir þessu frjálslyndi í
orði en á borði eins og starf flokks-
ins í ríkisstjórn hefur verið. En
hvað um það, stefnan hefur verið
aukinn markaðsbúskapur og auk-
ið svigrúm einstaklinga í atvinnu-
lífinu þrátt fyrir að lítið hafi verið
um efndir. En hvað með rekstur
dægurmálaútvarps? Er það skoð-
un alþýðuflokksmanna að einka-
aðilar séu ófærir um að reka slíkar
útvarpsstöðvar?
Munurinn á mjólk
og músik__________________
Alþýðuflokksmenn hafa gerst
sérstakir talsmenn þess að núver-
andi landbúnaðarkerfi verði brot-
ið upp og samkeppni verði á milli
innlendrar og erlendrar fram-
leiðslu. Þeir vilja að ríkið hætti af-
skiptum sínum af þessari atvinnu-
grein og virðast skilja að það
kæmi íslenskum neytendum til
góða ef ríkið losaði um tök sín á
greininni. En þegar kemur að út-
varpsefni þrýtur skilninginn ef
marka má leiðara Alþýðublaðsins.
Einkaaðilar sem að sögn alþýðu-
flokksmanna eru mun færari en
ríkið til að útvega fólki mjólk eru
ófærir um að senda fólki músík og
mannamál í gegnum útvarp. Þar
virðist allt í einu nauðsynlegt að
ríkið komi til sögunnar með til-
heyrandi bruðli.
Niðurgreidd
rikisdagskrá_______________
Alþýðuflokkurinn vill þannig
bjóða þeim einstaklingum eða fé-
lagasamtökum sem ætla að hefja
útvarpsrekstur upp á að keppa við
niðurgreidda dagskrá Rasar 2.
Hvað ætli þeim sem hafa áhuga á
útvarpsrekstri á landsbyggðinni
þyki um þessa stefnu? Ætli þeim
þyki vænlegt að hefja útvarps-
rekstur í sinni heimabyggð í sam-
keppni við niðurgreiddan ríkisrisa
úr Reykjavík? Hvar fá þeir auglýs-
ingar á meðan ríkisútvarpið býður
upp á niðurgreiddar auglýsingar.
Að taka frá________________
Setningin úr ályktun landsfund-
ar Sjálfstæðisflokksins hefur einn-
ig verið rangtúlkuð á þann veg að
það eigi hreinlega að skrúfa fyrir
allar utvarpssendingar á lands-
byggðinni. Þetta er mikill mis-
skilningur. Dreifikerfi Rásar tvö
gufar ekki upp þó að einkaaðilar
kaupi það eða leigi. Það er því
ekki verið að taka nokkurn hlut
frá fólkinu úti á landi. Þvert á móti
er verið að gefa því tækifæri til að
hefja eigin útvarpsrekstur á jafn-
réttisgrundvelli. Eða í það
minnsta, tækifæri til að hafa áhrif
á dagskrá með því að hlusta eða
hlusta ekki. Slík áhrif hefur fólk
ekki á ríkisútvarpið. Það fær sín af-
notagjöld hvort sem fólk hlustar
eða ekki.
Hefur Alþýðublaðið
samkennd með Rúv?
Afstaða málgagns Alþýðu-
flokksins er því með öllu óskiljan-
leg. Þær hugmyndir sem flokkur-
inn hefur boðað að undanförnu
eru ekki í neinu samhengi við
þessa afstöðu. Það er ef til vill Ijótt
að láta sér detta það í hug að af-
staðan í þessu máii sé byggð á ein-
hverju öðru en stefnu flokksins.
Var það ef til vill freistandi að snúa
út úr þessu máli og koma þar með
höggi á Sjálfstæðisflokkinn rétt
fyrir kosningar? Eða er ef til vill
erfitt að taka afstöðu til þess að af-
nema forréttindi eins fjölmiðils
þegar maður rekur annan á svip-
uðum forsendum þ.e. með skyldu-
áskrift skattgreiðenda?
Glútnur Jón Björnsson
(Höfundur er háskólanemi, á sœti
í stjórn Heimdallar og sat í menn-
ingarmálanefnd Sjálfstœdis-
flokksins á nýafstödnum lands-
fundi flokksins, sem m.a. ályktadi
um sölu Rásar 2.)
Athugasemd.
Alþýðublaðið þiggur enga ríkis-
styrki. Skoðanir blaðsins sem
fram koma í leiðara blaðsins, túlka
einvörðungu álit og stefnu Al-
þýðublaðsins og ber ekki að túlka
öðruvísi.
Ritstjóri.
Starfsmenn Rásar 2: Greinarhöfundur vill selja Rás 2.