Alþýðublaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 1
JUJHRUID
60.TÖLUBLAÐ- 72. ÁRGANGUR
Föstudagurinn 19.apríl 1991
Vaxandi fylgi A-listans í skoöanakönnunum
Niöurstööur skoðanakannana aö undanförnu sýna
aö kjósendur snúast gegn hinni köldu og reikulu
stefnu Sjálfstæðisflokksins. Þess í staö velur fólk vel-
feröarleiö Alþýðuflokksins. Þetta kerrjur glöggt fram
í niðurstöðum skoöanakönnunar DV sem var birt í
gær. Þar kemur fram aö Alþýðuflokkurinn bætir lang-
mest viö sig á landsvísu frá könnun blaösins í mars-
lok.
Þetta er í samræmi við útkomuna úr þeim skoð-
anakönnunum sem gerðar hafa verið á vinnustöðum
og Alþýðublaðiö hefur haft spurnir af. Má taka sem
dæmi að í skoðanakönnun sem gerð var meðal
starfsmanna Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi
í vikunni fékk A-listi Alþýðuflokksins flest atkvæði,
eða rúman þriðjung. Nánar tiltekið fékk Alþýðuflokk-
ur 28 atkvæði, eða 34,6%. Sjálfstæðisflokkurfékk 24
atkvæði, eða 29,7%, og Alþýðubandalag 13 atkvæði,
eða 16,1%. Framsóknarflokkurinn fékk 12 atkvæði,
eða 14,8%. Aðrir flokka sem bjóða fram í kjördæm-
inu fengu sáralítið fylgi.
Þeir forystumenn Alþýðuflokksins sem blaðið
ræddi við í gær voru sammála um vaxandi fylgi við
Alþýðuflokkinn að undanförnu en lögðu áherslu á að
allir fylgjendur velferðarstefnu A-listans þyrftu enn
að herða róðurinn á lokasprettinum. Aðrir flokkar
gerðu nú allt sem þeir gætu til að hamla gegn vax-
andi velgengni A-listans. En það væri greinilegt að
eftir því sem fleiri kjósendur hefðu kynnst stefnu Al-
þýðuflokksins á fundum í kjördæmum og umræðu-
þáttum í sjónvarpi, vildu æ fleiri styðja velferðar-
stefnu flokksins.
Þ E I R R A
V E G N A
X-AIÞÝÐUFLOKKURINN