Alþýðublaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 9
FRAMBJOÐENDUR I A-FLOKKI
„Ég á mér draum“
Össur Skarphéðinsson
skipar 3. sæti á A-listanum í Reykjavík
Fæddur í Reykjavík, 19. júní, 1953.
Menntun: Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973.
Lauk síðan B.Sc. prófi í líffræði frá Háskóla Islands 1979 og
doktorsprófi í lífeðlisfræði með fiskeldi sem sérgrein frá enskum
háskóla 1983. Framhaldsrannsóknir 1983-1984 á vegum British
Council.
Störf: Ritstjóri Þjóðviljans 1984-1987. Lektor við Háskóla
íslands 1988. Aðstoðarforstjóri Reykvískrar Tryggingar frá 1989.
Maki: Árný Erla Sveinbjörnsdóttir, deildarstjóri á
Raunvísindastofnun Háskólans.
,,Til að vera í stjórnmálum þurfa menn að eiga sér
draum. Minn er sá að búa til eina öfluga hreyfingu frjáls-
lyndra jafnaðarmanna á íslandi, sem nær ekki barayfirAl-
þýðuflokkinn, Alþýðubandalagið og Kvennalistann, heldur
tekuryfir drjúga sneið af frjálslyndum Sjálfstœðismönnum.
Þessi draumur er eldsneytið sem knýr mig áfram ípólitík. ”
Ossur Skarphéðinsson og eiginkonan, Árný Sveinbjörnsdóttir.
„Vil berjast fyrir umbótum“
Valgerður Gunnarsdóttir
skipar 5. sæti á A-listanum í Reykjavík
Fædd: Á Akureyri 26.10. 1950.
Menntun: Stúdent frá Verslunarskóla íslands 1971. Lauk prófi frá Sjúkraþjálfunar-
skólanum í Kaupmannahöfn 1979. Lauk meistaraprófi í þjálfunarlífeðlisfræði og
hjartaendurhæfingu árið 1985 frá Wisconsinháskóla í Bandaríkjunum.
Störf: Starfaði sem sjúkraþjálfari á Reykjalundi 1979-1981. Við heilsugæslustöð
Kópavogs 1981-1982. Unnið á Landspítalanum síðan 1985 og er nú framkvæmd-
arstjóri sjúkraþjálfunar þar. Var lektor við námsbraut í sjúkraþjálfun við Háskóla ís-
lands 1987-1989. Hefur sinnt stundakennslu við deildina síðan.
Maki: Bjarni Daníelsson, skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Börn: Dýrleif Dögg, stúdent, 21 árs. Finnur, nemi í Menntaskólanum við Hamrahlíð,
17 ára. Daníel, 12 ára.
Valgeröur Gunnarsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Bjarna Danielssyni, og börnunum, Daniel,
12 ára, ogFinni, 17 ára.
„Ég fór í framboð vegna þess að ég
vil berjast fyrir umbótum í þjóðfélag-
inu. Það sem mér finnst að ekki megi
lengur bíða að tekið verði föstum tök-
um erm.a. eftirfarandi:
Að fram fari endurskoðun á launa-
kerfinu ílandinu með það fyriraugum
að jafna kjörin og sérstaklega að bœta
hag þeirra sem hafa fyrir börnum að
sjá. í heilbrigðismálum þarf að móta
nýja stefnu fyrir nœsta áratug þar sem
sérstök áhersla verði lögð á forvarnar-
starf í víðum skilningi. Mjög brýnt er
að koma á samfelldum skóladegi og
skólamáltíðum. Ég vill leggja áherslu
á að við eigum að fjárfesta í menntun,
á sviðum atvinnulífsins og lista, því
hugvit og listirgeta orðiðdýrmœt auð-
lind fyrir smáþjóð eins og við íslend-
ingar erum. “