Alþýðublaðið - 19.04.1991, Page 8
FRAMBJOÐENDUR I A-FLOKKI
„Vil efla forvarnir“
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
skipar 6. sæti á A-listans í Reykjavík
Fædd í Reykjavík þann 28.7. 1954.
Menntun: Stundaði nám við Menntaskólann við Hamrahlíð.
Próf frá Lögregluskóla ríkisins. Útskr. 1978.
Störf: Lögreglumaður við embætti Lögreglustjórans í Reykjavík í 9 ár.
Dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpi og útvarpi. Hlutastarf hjá Umferðar-
ráði. Var einn af stofnendum Áhugahóps um bætta umferðarmenningu
og situr nú í nefnd á vegum dómsmálaráðherra sem endurskoðar reglu-
gerð um ökukennslu og ökuréttindi og í nefnd á vegum félagsmálaráð-
herra sem fjalla á um úrbætur á málefnum barna og ungmenna í
Reykjavík og nágrannasveitafélögunum.
Maki: Jóhann Sævar Óskarsson, verktaki.
Börn: Svavar Jóhannsson, 19 ára, og Jökull Jóhannsson, 7 ára.
„ístörfum mínum ílögreglunni kynntist égskuggahliðum
mannlífsins í hnotskurn. Þar áttaði ég mig á nauðsyn þess
að hlúa að þeim sem minna mega sín. Þar kynntist ég fólki
sem vegna skorts á félagslegum úrrœðum hafði orðið und-
ir í lífsbaráttunni.
Þar varð ég einnig vitni að hörmungum umferðarslys-
anna og fíkniefnavandans og áttaði mig á hversu þjóð-
hagslega hagkvœmt það er að efla forvarnir bæði hvað
varðar umferðar og fíkniefnamál. Ég vil einnig sjá aukið
framboð affélagslegu húsnœði fyrir öryrkja og aldraða og
aðra þá sem lœgst hafa launin.
Sjálfgekk ég til liðs við Alþýðuflokkinn vegna þess að ég
taldi jafnaðarstefnuna endurspegla lífsviðhorf mín og því
vera vœnlegasta baráttuvettvanginn til góðra mála.
Frá vinstrí: Ragnheiður Davíðsdóttir og eiginmaður hennar Jóhann Öskars■
son. Með þeim á myndinni eru Jökull, 7 ára, sem situr i fangi móður sinnar,
Svavar, 19 ára ogÁgústa, 5 ára fósturdóttir Svavars.
„Lífskjör verda að batna“
Magnús Jónsson
skipar 4. sæti A-listans í Reykjavík
Fæddur í Reykjavík 2. júlí 1948 Menntun: Stúdent frá M.A. 1968, veðurfræðingur
frá Uppsalaháskóla 1979. Störf: Veðurfræðingur á Veðurstofu íslands. Áður kenn-
ari við Hagaskóla, Menntaskólann við Sund og Menntaskólann á Akureyri.
Sjómennska í 13 sumur og fl.
Maki: Karítas R. Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur.
Börn: Lena, 19 ára, nemi í M.S., Sigurður Freyr, 18 ára nemi í M.R. og
Magnús Karl, 10 ára.
Magnás Jónsson og Karítas R. Sigurðardóttir ásamt börnum sínum, þeim Magnúsi Karli, 10
ára, Lenu, 19 ára, og Sigurði Frey, 18 ára.
',,r
„Eftir að hafa verið áhugamaður og
áhorfandi í stjórnmálum ákvað ég að
vera með nú. í mínum huga eru fram
undan örlagaríkar ákvarðanir um
framtíð íslenskrar þjóðar sem varða
lífskjör hennar í víðasta skilningi. Nú,
þegar böndum hefur verið komið á
verðbólguna og komið er húsnœð-
iskerfi sem vit er í, verður að eiga sér
stað gríðarleg uppstokkun í helstu at-
vinnuvegum okkar.
Mesta hœttan er fólgin í því að lífs-
kjör hér dragist svo aftur úr því sem
nágrannaþjóðirnar bjóða upp á , að
vaxandi fólksflótti úr landi fari í hönd.
Þá fara þeiryngstu og hæfustu fyrst og
engin þjóð hefur efni á því. Eitt aflyk-
ilatriðum til bœttra lífskjara er að
þjóðin átti sig á gildi menntunar og
rannsókna. Efling Háskóla íslands og
aukin samvinna hans og rannsókna-
stofnana við atvinnuvegina eru því
að mínu mati forgangsverkefni og
koma öllum til góða. “