Alþýðublaðið - 17.05.1991, Síða 8

Alþýðublaðið - 17.05.1991, Síða 8
rí*w» ípKqiKMc S ótiHTOl MIBUBUÐIB Asmundur Stefánsson á Evrópusambandi verkalýdsfélaga um Evrópska efnahagssvœöiö og möguleika á ad Island verði þar utangarðs meðal Evrópuþjóða Niðurstaða sem gengi á hagsmuni neytenda „Er einhver hér á þessu þingi, sem myndi vilja mæla meö því við félagsmenn sína í heima- landinu að ganga til samninga um efnahagssvæði þar sem 70% af útflutningi lands ykkar fengi ekki sanngjörn kjör á markaðs- svæðinu.“ Þannig spurði As- mundur Stefánsson í ávarpi sínu á þingi Evrópusambands verka- lýðsfélaga í Lúxemborg í vik- unni. Ásmundur dró fram sérstöðu Is- lendinga í samningum um EES. Sagði hann það sérkennilegt ef eina fiskveiðiþjóðin í Evrópu, sem gæti rekiö fiskveiðar sínar án ríkis- styrkja, fengi nú ekki að taka þátt í frjálsri samkeppni í markaðslönd- ÁSMUNDUR — kom sjónarmiðum íslands á framfæri við áhrifamenn í Evrópu. um Evrópu. Ef sú yrði niðurstaðan, gengi hún þvert á hagsmuni neyt- enda og það meginmarkmið EES-samninganna að bæta iífskjör í Evrópu. Á þinginu í Lúxemborg, sem Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, sat auk Ásmundar, fór fram mikil umræða um Evrópumálin og heyrð- ust þar margar raddir sem mæltu með stórlega efldri samvinnu ríkja í Evrópu. Var þingið hinn besti vett- vangur til að kynna málstað islend- inga fyrir áhrifamönnum, meðal annarra forystumönnum verkalýðs- samtaka í V-Evrópu, og fjölmiðlum. Ásmundur sagði í ávarpi sínu að íslendingar væru sammála um að aðild að Evrópubandalaginu væri ekki á dagskrá. Því skiptu samning- ar um Evrópska efnahagssvæðið Is- lendinga miklu máli og að mikil- vægt væri að niðurstaða samning- anna verði okkur hagstæð og að fyrir íslenskt launafóik hefðu samn- ingarnir mikla þýðingu. „Niðurstaða samninganna varðar hagsmuni íslendinga meira en reyndin er um nokkra aðra þjóð sem tekur þátt í samningunum," fuilyrti forseti ASÍ. Fór hann nokkr- um orðum um fiskveiðistefnu EB, sem hann sagði að hefði brugðist. Rányrkja hefði verið ríkjandi á fiski- miðum Evrópu, meðan okkar stjórnun á fiskveiðum hefði dugað vel. Launamálaráö BHMR Þarf sérstaka hækkun launa Launamálaráð BHMR varar við aðgerðum af hálfu ríkisins sem bitna á launafólki, svo sem hækkun raunvaxta, skerðingu á húsnæðislánakerfi, hækkunum á opinberum gjaldskrám og nið- urskurði í velferðarkerfinu. Ráðið telur að staða ríkisfjármála mætti vera betri og bendir sérstak- lega á nokkur atriði, svo sem að engir skattar eru greiddir af fjár- magnstekjum og þrátt fyrir mjög góða afkomu fyrirtækja skili þau mun minni sköttum en reiknað hafi verið með. I ályktun launamálaráðsins segir að kjör opinberra starfsmanna eigi að koma til endurskoðunar 1. júní næstkomandi. Þar skuli taka mið af bæði verðlags- og viðskiptakjara- þróun samkvæmt ákvörðun launa- nefnda. Miðað við verðlagsþróun þurfi að koma til sérstök hækkun launa. Viðskiptakjör hafi batnað um tæp 14% frá febrúar 1990 til febrúar 1991. innan við 1% af þessum bata hafi komið í hlut launamanna hing- að til en 4% verið lögð í varasjóð fyr- irtækjanna. Skorað er á launanefnd- ir að hækka laun í samræmi við hækkun verðlags og bata viðskipta- kjara. Þjóðhátíðarsjóður Styrkir upp á f jórar milljónir Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir yfirstand- andi ár og var það fjórtánda út- hlutun úr sjóðnum. Til úthiutun- ar voru fjórar milijónir króna og þar af er helmingnum varið til styrkja samkvæmt umsóknum. Hins vegar bárust alis 58 um- sóknir um styrki að fjárhæð um 38,5 milljónir. Friðlýsingarsjóður fékk einnar milljón króna styrk og verður hon- um varið, eftir því sem hann hrekk- ur til, í að koma upp viðbótarbaðað- stöðu á tjaldsvæðinu í Skaftafelli. Þjóðminjasafn fékk einnig milljón samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins og rennur styrkurinn óskiptur til frekari úrvinnslu frá rannsóknum á Stóru-Borg undir Eyjafjöllum. Þrettán umsækjendur skiptu síð- an með sér tveimur milljónum króna. Sem dæmi má nefna að Byggðasafn A-Skaftafellssýslu fékk 230 þúsund til endurbyggingar „Pakkhússins" á Höfn, Stofnun Sig- urðar Nordal 220 þúsund í lokastyrk til viðgerða á Þingholtsstræti 29 og Kvæðamannafélagið Iðunn fékk 170 þúsund í styrk til afritunar hljóðritasafns félagsins af frumupp- tökum yfir á géymslubönd. Magnús Torfi Ólafsson er formað- ur stjórnar Þjóðhátíðarsjóðs og Jó- hannes Nordal varaformaður. Gísli Sigurbjörnsson á Grund GRODINN AF GRUND HEFUR HLADIÐ UPP 6D0 MILLJONA EIGNAVELDI Ástir & kynlíf á vinnustöðum Mál stúlknanna í Tyrklandi „ELSKU MAMMA MÍN, HVENÆR ÆTLARDU AD NÁ í OKKUR?" Allt UIR tippi Mjólkursamsalan 750 MILLJQNA AUKASKATTUR Á MJÓLK RANN í BYGGINGU STORHYSISINS Viðtal við Þorstein J. Vilhjálmsson Fullt blað af slúðri

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.