Alþýðublaðið - 24.12.1991, Page 5
Þriðjudaqur 24. desember 1991
5
Leikfélag Akurewar
Tjútt & Tregi
áfjölunum um jólin
Leikfélag Akureyrar frumsýn-
ir á þríðja í jólum splunkunýjan
söngva- og gleðileik með alvar-
legu ívafi eftir Valgeir Skagfjörð
sem ber heitíð Tjútt & Tregi.
Valgeir Skagfjörð samdi bæði
handrítíð og tónlistína auk þess
að leikstýra verkinu sjálfur.
Yfir 20 sönglög í anda 6. ára-
tugarins prýða leikinn. Auk 12
leikara koma fjórir dansarar við
sögu og sjö manna hljómsveit.
I fréttatilkynningu frá Leikfélag-
inu segir að söngleikurinn gerist
árið 1955 á ónefndum stað á lands-
byggðinni og í Reykjavík og er full-
ur af Jjekktum minnum frá þessum
tíma Islandssögunnar, þegar sveita-
fólk þyrptist til Reykjavíkur, at-
Áki agent og Villi boxarí á fuliu.
RAUÐI KROSS
ÍSLANDS
Fimm
sinnum
fleiri fa
jólastyrk
en í
fyrra
- áberandi meira um
að fjölskyldur virðast
ífjárhagskröggum
Sibba, Lilja (Steinunn Ólfna Þorsteinsdóttir) og Solla (Þórdís Arnijótsdóttir).
Flugbjörgunarsveitarmenn á æfingu í Gígjökli.
Flugbjörgunarsveit-
in á Hellu 40 ára
Um þessar mundir eru 40 ár
frá því að Flugbjögunarsveitin á
Hellu var stofnuð. Ákvörðun um
stofnun sveitarinnar var tekin
eftir að flugvélin Geysir fórst á
Bárðarbungu.
í fréttatilkynningu frá sveitinni
segir að þá hafi komið í ljós þörfm
á að alltaf væru til staðar öflugar
björgunasveitir. sem brugðist gætu
við í erfiðum neyðartilvikum.
Sveitin hét í fyrstu Flugbjörgun-
arsveit Rangæinga en síðar var
nafninu breytt. Fyrirmynd að stofn-
un sveitarinnar var sótt til Reykja-
víkur en þá hafði þar nýlega verið
stofnuð flugbjörgunarsveit. Flug-
björgunarsveitir voru strax í upp-
hafi sérhæfða í björgun fólks úr
flugslysum en jafnfram unnið jafn-
hliða að öðmm björgunarstörfum.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu
leggur sérstaka áherslu á þjálfun fé-
laga sinna í hálendis- og öræfaferð-
um. Hún hefur þurft að sinna út-
köllum á hálendinu oft á hverju ári.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu er
vel búin tækjum. Hún á öfluga
snjóbifreið. tvær björgunar- og
sjúkrabifreiðar. vörubifreið og fjóra
vélsleða. Þá á sveitin margskonar
annan búna s.s. ágætan fjarskipata-
búnað. Tæplega 100 félagar em í
sveitinni og hefur hún nýlega lokið
við byggingu 450 fm björgunar-
stöðvar að Dynskálum 34. Hellu.
Sveitin hélt upp á æfmælið með
því að bjóða öðmm björgunarsveit-
um á svæðin til samæfingar sem
tókst vel. Formaður sveitarinnar er
Óskar Jónsson framkvæmdastjóri.
Áki agent (Aðalsteinn Begdal) og Sibba (Ingrid Jónsdóttir) stíga léttan
dans
vinnu- og menningarlíf stóð á tíma-
mótum, rokkið var á leiðinni og
Vetrargarðurinn blómstraði.
í lykilhlutverki er sveitastúlkan
Lilja sem Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir túlkar í leik og söng og verkið
öðmm þræði þroskasaga hennar.
Skúli Gautason leikur Sonní Carls-
son, öðm nafni Sigurjón Karlsson,
dægurlagasöngvar í Vetrargarðin-
um og félagsheimilum á lands-
byggðinni.
Felix Bergsson leikur Amgrim
mjólkurbílstjóra. vonbiðil Lilju.
Aðalsteinn Bergdal leikur athafna-
manninn Áka agent sem á sinn þátt
í Tívolíinu og öðm skemmtanahaldi
íslendinga eins og hnefaleikum,
dansleikjum og bingóum.
Þá koma leikkonumar Þórdís
Amljótsdóttir og Ingrid Jónsdóttir
mikið við sögu, fyrst sem áhuga-
menneskjur um dansskemmtanir og
mannlegt eðli en síðar í dramatísk-
um hlutverkum drykkfelldrar
skáldkonu í Reykjavfk og ungrar
stúlku sem lendir í ógæfu.
Jón Stefán Kristjánsson hefur
fengið tilsögn í hnefaleik hjá Bubba
Mortens og Guðmundi Arasyni til
að túlka kraftakarlinn Villa boxara,
sem ættaður er af ströndum. Þráinn
Karlsson leikur Valdimar bónda í
Miðhúsum og Sunna Borg leikur
Sigríði spúsu hans. Marinó Þor-
steinsson leikur kaupmann og
innflytjanda f Reykjavík, Þórey
Aðalsteinsdóttir leikur ráðskonu á
heimili hans og Kristjana Jónsdóttir
leikur gengilbeinu.
Baldvin Bjömsson hannar leik-
mynd og búninga og Ingvar Bjöms-
spn Lýsir sýninguna. Jón Hlöðver
Áskelsson sá um tónlistarútsetn-
ingar ásamt Hirti Howser sem jafn-
framt annaðist söngæfingar. Jón
Rafnsson stjómar hljómsveitinni en
hana skipa auk hans og Hjartar þau
Birgir Karlsson, Þorsteinn Kjart-
ansson. Laufey Ámadóttir, Baldur
Rafnsson og Kormákur Geirharðs-
son.
Henný Hermannsdóttir hefur
samið ýmis tilbrigði við tískudansa
6. áratugarins eins og tjúttið, suður-
amerfska dansa og jafnvel rokk.
Auk Ieikaranna taka sporið dansar-
amir Haraldur Hoe Haraldsson. Jó-
hann Gunnar Amarson, Aðalheiður
Kr. Ragnarsdóttir og Marfa Braga-
dóttir.
Elsa Bjömsdóttir hannar hár-
greiðslu og Áslaug Borg förðun.
Gunnar Sigurbjömsson sér um
hljóðblöndun, Freygerður Magnús-
dóttir stjómar saumastofu og Hall-
mundur Kristinsson smíðaverk-
stæði en sýningar- og sviðsstjóri er
Hreinn Skagfjörð.
Það er því kjörið fyrir Norðan-
menn að lyfta sér á kreik eftir jóla-
steikumar og berja augum og
bergja á tónum þessa söngva- og
gleðileikjar Leikfélags Akureyrar.
„Það er meira áberandi nú en
oftast hversu margar fjölskyldur
virðast í fjárhagskröggum fyrir
jólin“, segja menn hjá Rauða
krossi íslands.
„Rætur vandans eru margvís-
legar, svo sem veikindi, atvinnu-
leysi, örorka, gjaldþrot, skilnaðir
og fleira.
Einnig hefur stór hópur ein-
stæðinga, sem á við vandamál af
svipuðum toga að stríða, verið
styrktur“, segir talsmaður
Rauða kross íslands.
Á annað hundrað manns hafa
fengið styrk hjá Rauða krossi ís-
lands nú fyrir jólin. Hjá öðmm
samtökum, sem veita hjálp. mun
svipaða sögu að segja. Greinilegt er
að nú um stundir kreppir að hjá
mörgum fjölskyldum. meira en
gerst hefur um langa hríð.
Talsmenn Rauða krossins segja
að nú hafi fimm sinnum fleiri sótt
til þeirra en í fyrra. „Þessi gífurlega
fjölgun endurspeglar hvort tveggja,
aukna þörf og meiri opinbera um-
fjöllun um styrkveitingar í kjölfar
landssöfnunar Rauða krossins,
Mæðrastyrksnefndar og Hjálp-
ræðishersins, sem haldin var að
fmmkvæði Rásar 2 á fimmtu-
daginn var“, segja þeir hjá Rauða
krossinum.
Alls söfnuðust 3.5 milljónir
króna í framlögum fólks og fyrir-
tækja, sem gáfu sig fram í síma við
útvarpsstöðina. auk fata, gjafavöm
og matvæla, sem vissulega kemur
að góðum notum hjá þeim sem
minnst hafa.
Umboðsaðili Toyota á íslandi, P. Samúelsson hf„ hefur gefíð Krabbameinsfélaginu sendibifreið að
verðmæti á aðra milljón króna. Myndin hér að ofan er frá afhendingu bifreiðarínnar sem Almar
Grímsson, formaður Krabbameinsfélags íslands, veitti viðtöku. Frá vinstri: Páll Samúelsson, stjórn-
arformaður P. Samúelsson hf„ Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands og verndari
Krabbameinsfélagsins, Almar Grímsson, Ingi R. Helgason gjaldkeri Krabbameinsfélags íslands og Jón
Þorgeir Hallgrímsson, formaður Krabbameinsdeildar Reykjavíkur.
Toyota gefur Krabbameinsfélaginu bil