Alþýðublaðið - 10.01.1992, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 10.01.1992, Qupperneq 5
Föstudaqur 10. ianúar 1992 Vöruskiptin við útlönd jan-nóv. '91 Meira fyrir fisk en minna fyrir ál eg kísiljárn íslendingar fluttu út vörur fyr- ir 7,7 milljarða króna sl. nóvem- ber eða fyrir 400 milljónir króna meira en í sama mánuði 1990. Fyrstu 11 mánuði síðasta árs fluttum við út vörur fyrir 84,8 milljarða króna. Innflutningur fyrstu 11 mánuði síðasta árs var hins vegar að verðmæti 85,2 miUjarðar króna og vöruskipta- hallinn því óhagstæður um 400 miUjónir króna miðað við hann að var hagstæður um 4,5 millj- arða árið áður. Fyrstu 11 mánuði ársins 1991 var verðmæti vöruútflutningsins tæp- lega 1% meira á föstu gengi en á sama tíma í árið áður. Sjávarafurðir voru um 81% alls útflutnings og voru um 7% meiri en á sama tíma árið áður. Útflutningur á áli var 16% minni og útflutningur kísiljárns var 29% _minni en á sama tíma árið áð- ur. Útflutningsverðmæti annarrar vöru (að frátöldum skipum og flug- vélum) var 14% minna janúar-nóv- ember 1991 en á sama tíma 1990, reiknað á föstu gengi. Hið íslenska kennarafélag um niðurskurð SÍST TIL SPARN- AÐAR FALLNAR Fyrirhugaður niðurskurður á fjármagni til skólanna í landinu þýðir tveggja stunda fækkun á viku í 4. til 10. bekk. Það sam- svarar því að 1500 nemendum verði vísað frá f ramhaldsskólum í haust, eða að Fjölbrautaskólan- um á Sauðárkróki og Mennta- skólanum í Reykjavík verði lok- að. Þetta er álit fulltrúaráðs Hins ís- lenska kennarafélags, sem mótmæl- ir því sem fundurinn kallar „aðför að skólakerfinu". Fundurinn segir Menntamála- ráðuneytið hafa sent frá sér óljósar hugmyndir, sem í felist fækkun kennslustunda í einstökum náms- greinum að óbreyttu námsefni, námsframboð minnki og nemend- um fækki. „Afleiðingarnar yrðu vægast sagt geigvænlegar bæði fyrir nemendur og skólakerfið allt ef þessar hug- myndir ná fram að ganga. Hætt er við að námið dragist á langinn og ekki verður þeim nemendum sem yrði úthýst vísað á vinnumarkaðinn á tímum samdráttar og atvinnuleys- is. Þeim sem hvorki stunda nám né vinnu hlýtur að þurfa að greiða at- vinnuleysisbætur" segja kennararn- ir. Telja þeir hugmyndir þessar síst til sparnaðar fallnar og geti haft háskalegar félagslegar afleiðingar í för með sér. Neytendasamtökin og neytendafélag höfuðborgarsvæðisins •§ STYÐJA DROGIN AÐ GATT-SAMNINGI - en vilja ganga lengra og taka undir kröfur Alþjóðasamtaka neytenda Á sameiginlegum stjórnar- fundi Neytendasamtakanna og Neytendafélags höfuðborgar- svæðisins 9. janúar 1992 var eft- irfarandi ályktun samþykkt: „Neytendasamtökin lýsa yfir stuðningi við þau samningsdrög sem nú iiggja fyrir í GATT-viðræð- unum. Jafnframt minna Neytenda- samtökin á að samningsdrögin fjalla ekki eingöngu um landbúnað, held- ur einnig um miklu fleiri atriði, meðal annars um tollaívilnanir á mikilvægum útflutningsvörum okk- ar. Neytendasamtökin telja þó nauð- synlegt að tryggja að tekið sé tillit til verðbólgu í einstökum löndum mið- að við viðmiðunartímabil í samn- ingsdrögunum. Einnig þarf að tryggja að heilbrigðiskröfur séu með þeim hætti, að viðkvæmur bú- stofn á íslandi bíði ekki tjón af inn- flutningi. Neytendasamtökin leggja þó áherslu á að hér er aðeins um að ræða lítið skref í þá átt að tryggja að landa á milli gildi reglur um búvöru- viðskipti sem séu sanngjarnar og stuðli að eðlilegri samkeppni. í því sambandi minna Neytendasamtök- in á þrjár kröfur sem Alþjóðasam- tök neytenda hafa sett fram: — að innlendur stuðningur við landbúnað verði minnkaður um 50% á fimm ára tímabili, en ekki um 20% eins og drögin gera ráð fyrir. — að útflutningsstyrkir á búvörur verði lagðir niður innan 10 ára. — að felldar verði niður hömlur Vesturlanda á matvælainnflutn- ingi, bæði á unnum og óunnum. Sjálfsbjörg skorar á ríkisstjórnina Dragið tillögur til baka Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, mótmælti í gær fyrir- ætlunum ríkisstjórnarinnar að skerða grunnllfeyri örorkulíf- eyrisþega, sem sambandið telur að nú standi til. Tryggvi Friðjónsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfsbjargar, sagði í gærdag að af lífeyrinum sé nú þegar er greiddur fullur skattur ef aðrar tekjur eru yfir skattleysismörkum. Þeir einstaklingar sem eru meira en 75% öryrkjar og njóta örorkulífeyris verði óhjákvæmilega fyrir töluverð- um aukakostnaði vegna fötlunar sinnar. Grunnlífeyriririnn nægi ekki einu sinni fyrir þeim aukakostnaði og verði því ekki séð hvernig skerð- ingin geti samrýmst stefnu ríkis- stjórnarinnar eins og hún hafi verið kynnt í „hvítbókinni'* svokölluðu. Sjálfsbjörg hefur í bréfi til ráða- manna óskað eftir að ríkisstjórn og Alþingi dragi tillögurnar til baka. Rjúfum kyrrstöðuna! Ráðstefna Verktakasambands íslands Holiday Inn, 14. janúar 1992, kl. 11.45 Dagskrá: ísland er land tækifæranna, Davíð Oddsson forsætisráðherra The Shannon Experience, Thomas J. O'Donnell, Group Director and Company Secretary, Shannon Development Company, írlandi. Hvað þarf til? Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Vífilfells hf. Sóknarfæri í ferðaþjónustu, Þórhallur Jósefsson, aðstoðarmaður samgönguráðherra. Upp úr öldudalnum, Magnús Gunnarsson, formaður Samtaka atvinnurekenda í sjávarútvegi. Hvað getur borgin gert? Markús Örn Antonsson borgarstjóri. Ráðstefnustjóri: Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Ráðstefnugjald, sem innifelur hádegisverð, veitingar og fundargögn, er kr. 10.000,-. Vinsamlegast bókið þátttöku sem fyrst með því að hringja í Margit eða Áslaugu í síma 62-24-11 eða sendið fax í 62-34-11. t VERKTAKASAMBAND ÍSLANDS Þessar kröfur Alþjóðasamtaka neytenda eru ekki síst mikilvægar til að bæta samkeppnisstöðu þróun- arríkjanna. Neytendasamtökin benda á að ef drögin verða að veruleika verður meginhluti innfluttra búvara á sama verði og innlendar vörur vegna tolla. Síðan munu tollar lækka, en samtímis verður útflutningslöndun- um gert að lækka útflutningsstyrki. Neytendasamtökin hafa ávallt lagt áherslu á að framleiðendur og selj- endur keppi sín á milli á sanngirnis- grundvelli sem tryggður verður með þessum hætti. Það er hins vegar ljóst að ef GATT- drögin verða að raunveruleika mun sú samkeppni sem íslensk búvöru- framleiðsla fær knýja á um aukna hagræðingu í landbúnaði. Neyt- endasamtökin hafa ítrekað krafist slíkrar hagræðingar, en aðeins hafa verið tekin lítil skref hvað það varð- ar. Því verður ekki komist hjá frek- ari hagræðingu á öllum þáttum framleiðslunnar og ekki síst hvað varðar milliliði í landbúnaði. Neytendasamtökin hafa þá trú á íslenskum landbúnaði að aukin samkeppni verði honum til eflingar þegar fram í sækir og að íslenskar landbúnaðarafurðir standist fylli- lega gæðasamanburð við erlendar afurðir, auk þess að verða sam- keppnisfærar í verði á erlendum mörkuðum. Vorönn 1990 Innritun í prófadeildir INNRITUN I PRÓFADEILD (öldungadeild) GRUNNSKÓLASTIG: AÐFARANÁM — ígildi 8. og 9. bekkjar grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa lokið þessum áfanga eða vilja rifja upp. FORNÁM — ígildi 10. bekkjar grunnskóla. Foráfangi f ram haldsskólast igs. Kennslugreinar: íslenska, danska, enska og stærð- fræði. FRAMHALDSSKÓLASTIG: HEILSUGÆSLUBRAUT — 2 vetra sjúkraliðanám VIÐSKIPTABRAUT — 2 vetra nám sem lýkur með verslunarprófi. MENNTAKJARNI — þrír áfangar kjarnagreina, ís- lenska, danska, enska, stærðfræði. Auk þess þýska, félagsfræði, efnafræði, eðlisfræði, ítalska og hjálpar- tímar í stærðfræði og íslensku. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla. Skólagjald miðast við kennslustundafjölda og greið- ist fyrirfram í upphafi annar eða mánaðarlega. Kennsla hefst 15. janúar næstkomandi. INNRITUN fer fram í MIÐBÆJARSKÓLANUM, Frí- kirkjuvegi 1, dagana 9. og 10. jan. 1992, kl. 16—19. Nánari fyrirspurnum svarað í síma 12992 og 14106. Skrifstofa námsflokkanna er opin virka daga kl. 9-17. Ath. Innritun í almenna flokka verður 17., 20. og 21. jan. nk.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.