Alþýðublaðið - 24.07.1992, Síða 7
Föstudagur 24. júlí 1992
A ferð um Þýskaland
7
Af heitu lofti og köldu
- ríkidœmi og örbirgb
Svæsin hitabylgja frá Afríku og
kuldalægð frá íslandi berjast
þessa dagana um völdin í veður-
fari hins mikla þýska nkis. Um helgina
reið hitabylgjan yfir Norður-Þýskaland
af mikilli óvægni. Þá fann maður hvað
veðráttan er elskuleg á Islandi, þegar
hitinn í forsælu var orðin 35 stig og ra-
kinn eftir því mikill.
Logandi heitir hausar
Þjóðverjum virðist þó þykja gaman
af slíkum Afríkuhita og ekki fóru þeir
að ráðum fjölmiðla, að fara varlega
með sína ljósu lubba og skýla sér með
húfum. Allir gengu um götur með log-
andi heita hausana!
Hamborg er í hugum margra íslend-
inga hin syndum spillta borg. En borg-
in er líka einstaklega fögur borg, ein
grænasta borg Evrópu að sagt er. I mið-
borginni var mikið líf og fjör á heitustu
tímum mánudags og þriðjudags og
talsvert um ferðafólk frá öðrum lönd-
um. Meðal þeirra sem ég hitti á götunni
voru íslensk hjón að ljúka ferðalagi
sínu. Þau glímdu við þann vanda að
finna farkostinn heim,- m/s Laxfoss.
Gallinn var að hvergi var að finna upp-
lýsingar um hvar skipið lægi við festar
en höfn Hamborgar er sú nnur stærsta í
Evrópu, tugir kílómetra niður með
fljótinu Elbu. Vonandi fór þó allt vel
hjá þeim hjónum.
Annað par tók ég tali við hina frum-
legu Hummelbahn- jámbrautarlest,
sem flytur ferðamenn um merka staði
borgarinnar. Það var ein ægifögur
blómarós frá Nígeríu, gulli og gim-
steinum skrýdd, - og forstjóri hennar,
kátt fólk og ríkt. Ungfrúin sagði mér að
23. júlí:
Jón Birgir Péturs-
son, bladamaöur
Alþýðublaðsins,
skrifar frá Berlín.
í landi þeirra væri sala á íslenskri skreið
„good bisiness".
Hin norður-þýska þjónustulund
Annars sýndist mér að ferðamenn
væru hér flestir þýskir. Hamborg er
ekki mikill ferðamannabær fyrir út-
lendinga, þeir ferðast meira um Rínar-
héruð og Suður-Þýskaland. Ferðamað-
urinn hér má reikna með fremur hryss-
ingslegri afgreiðslu, sama hvort er á
ferð útlendingur eða Þjóðverji. En
þýskum ferðaþjónustumanni má þó
treysta fyllilega, hann fer eftir reglun-
um í einu og öllu. Það er út af fyrir sig
hans fullnægja, sama hvað bannsettur
túrisminn segir. Bókstafurinn „blívur".
Hamborg hefur breyst mjög á st'ðari
árum. Áberandi í götulífinu eru Tyrkir,
Suðurlandabúar ýmis konar og annað
aðkomufólk. I næstu götu við Hótel
Moltke greifa þar sem ég dvaldi, gat ég
séð hvemig innflytjendur til landsins á
7. áratugnum, litað fólk og afkomendur
þeirra, búa. Margt þessa fólks á vissu-
lega um sárt að binda. Atvinnuleysið
skall fyrst á því, - þetta fólk er samt
„þjóðverjar" þrátt fyrir hömndslit sinn,
menningu og trúarbrögð. Ástandið í
hverfum þessa fólks er murlegt. Öðm
vísi er að fara um hverfi þýska mið-
stéttarfólksins, sem býr við ríkidæmi
og mun skilvirkari þjónustu hins opin-
bera.
Örkumla menn og
dýragarðsbörn
Það stingur líka í augu í þessu ríkasta
landi veraldar, að víða í miðborginni er
stundað betl af ýmsu tagi. Þar fara ör-
kumla menn, tauga- og geðsjúklingar, -
og dýragarðsbömin, sem fræg hafa
orðið. Allir óska eftir framlagi en sagt
er að ekki sé allt þetta fólk svo afskap-
lega lasburða. Sumir „blindu" betlar-
anna hafi sést aka heim á leið á þýskum
eðalvagni, - og fótalausir horfið á braut
á tveimur jafnfljótum. Ekki veit ég
sönnur á þessu, - en leitt var að horfa
upp á ungt fólk, eins konar „mann-
kerti“ sem kveikt hafa í báðum endum
síns lífskertis. Urmull er af þessu fólki í
Hamborg, sem hefst við á aðaljám-
brautarstöðinni og aðliggjandi götum,
sumir útlendingar.
En Hamborg hefur upp á margt að
bjóða í menningarlegum efnum og þar
þarf engunt að leiðast í eina mínútu.
Það var kærkomið að laumast inn í
Berlín er að sjálfsögðu stórbrotin heimsborg þar sem ýmsar andstæður mætast.
ATHUGIÐ!
Skrifstofa Alþýðuflokksins Hverfisgötu 8-10 Reykjavík,
verður lokuð til 31. ágúst vegna sumarleyfa.
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands
Það var kærkomið að laumast inn í „kuldann“ á söfnunum og skoða þar stórmerkileg-
ar sýningar frægra listamanna.
„kuldann" á söfnunum og skoða þar
stórmerkilegar sýningar frægra lista-
manna. Verslunarráp er ekki við mitt
hæfi, - en margir hafa gaman af og
þykjast gera kjarakaup, - þangað til
annað sannast.
Ekið um sviðnar lendur
kommúnismans
Seint á þriðjudag lá leið mín frá
Hamborg til Berlínar - rúmlega þriggja
tíma ferð með jámbrautarlest. Fljótlega
var komið til fyrrum lendna kommún-
istaríkisins, Austur-Þýskalands. Það
þurfti ekki að benda ferðalangnum á
hvar „sæluríkið" hófst og hvar það
endaði. Greinilegt er að Alþýðublaðið
og önnur vakandi dagblöð sem hafa
varað við kommúnismanum um ára-
tugaskeið, hafa gert það með réttu.
I hinu gamla Austur-Þýskalandi
kommúnista blasti víða við sviðin jörð,
órækt, kofaskrifli fólksins, skógar sem
hafa brunnið af útblæstri óhollra efna
úr verksmiðjum þeirra austanmanna.
Berlín er að sjálfsögðu stórbrotin
heimsborg þar sem ýmsar andstæður
mætast. Austur og vestur eru þar enn
helstu andstæður. Það er nánast ótrú-
legt að horfa upp á eymd umhverfis og
mannlífs í austurhluta Berlínar miða
við það sem gerist í vesturhlutanum.
Hugur ungra A-Berlínarbúa er líka
eitraður eftir kúgun og smán kommún-
ismans. Mér er sagt að þetta unga fólk,
synir og dætur öreiganna, hneigist æ
meir til nasismans, - og kynþáttakúg-
unar. I blöðum hér má hvað eftir annað
lesa um óhugnanleg og ástæðulaus
morð á pólskættuðu fólki í borginni.
En það er að lokum að frétta af bar-
áttu Afríkuhitans og kaldara lofts frá
Islandi, að mér skilst að Island hafi
vinninginn. Allavega hefur hitastigið
lækkað um ein tíu stig, - og það munar
um minna.
Verslunarmiðstöðin
Grímsbœr
þakkar öllum sem komu eða
heiðruðu okkur á annan hátt
á 20 ára afmœlinu.
Lifið heil!
Grímsbœr við Bústaðaveg,
Steingrímur Bjarnason.