Alþýðublaðið - 10.12.1992, Page 1
I
„Eigum að sqmþykkjq EES strax!"
- segir Kjartan Valgarðsson formaður Birtingar, sem er annað stœrsta félagið í Alþýðubandalaginu
„Málið er mjög einfalt í
niínum huga, við eigum að
samþvkkja EES-samningana
strax,“ sagði Kjartan Val-
garðsson, formaður Birtingar
í saintali við Alþýðublaðið í
gær.
Birting er annað stærsta al-
þýðubandalagsfélag landsins.
Aherslur í stefnu félagsins hafa
löngum verið frábrugðnar boð-
skap forystumanna flokksins en
nú er ljóst að stefna Birtingar
gengur alveg þvert á afstöðu
þeirra í EES-málinu.
„Eg hef alltaf verið hlynntur
EES-samningunum,“ sagði
Kjartan.
Hann taldi ekki að úrslit þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar í Sviss
ætti að breyta neinu fyrir íslend-
inga.
„Þvert á móti, það er mikil-
vægt að fá botn í málið,“ sagði
Kjartan.
Margir félagar í Birtingu hafa
lengst af verið nánir samstarfs-
menn Olafs Ragnars Grímsson-
ar, formanns Alþýðubandalags-
ins, sem hefur barist nteð oddi
Vinnuveitendur:
Skýious stuðningur við EES
-Allar tafir á gildistöku eru tjónfyrir íslenskt atvinnulíf
Vinnuveitendasamband
Islands skorar á ríkisstjórn
og þingmenn að þeir eyði nú
þegar allri óvissu um af-
stöðu íslands til EES-samn-
ingsins með samþykkt hans
á Alþingi nó fyrir jól.
I tilkynningu ffá VSI segir
að afstaða Svisslendinga gefi
ekkert tilefni til að seinka af-
greiðslunni: „Hún er miklu
fremur tilefni til að flýta sam-
þykkt samningsins. Þannig er
helst unnt að draga úr skaðleg-
um afleiðingum af þegar orð-
inni seinkun á gildistöku EES-
samningsins."
Urslitin í Sviss eru „vondar
fréttir fyrir íslenskt atvinnu-
líf,“ segja vinnuveitendur,
„því bréyting á fjölda aðildar-
rikja að samningnum krefst
viðbótar samkomulags, sem
bera þaif upp á þjóðþingum
allra aðildarríkjanna og veldur
því óhjákvæmilega frestun á
gildistöku samningsins."
Sagt er að mörg fyrirtæki
haft þegar hafið undirbúning
að útflutningi á vörum og
þjónustu sem ntiða við greið-
ari aðgang að markaði sam-
fara gildistöku EES-samn-
ingsins: „Allar tafir á gildis-
töku er því tjón fyrir íslenskt
atvinnulíf."
°g egg gegn EES eftir að núver- Síðustu misseri hefur Ólafur við félaga í Birtingu í mjög þýð-
andi ríkisstjóm var mynduð. Ragnar ítrekað orðið viðskila ingarmiklum málum.
Næg bílastæði í
bílageymslunni
„Bergshús“
Sendum í póstkröfu
HERRAHANSKAR: með prjónafóðri (kinverskir) kr. 2.100,
HERRAHANSKAR: með kanínufóðri (kínverskir) kr. 2.400,
HERRAHANSKAR: meðlambaskinnsfóðri(kínverskir) kr. 2.600,
DÖMUHANSKAR: meðprjónafóðri kr. 3.500,
DÖMUHANSKAR: meðkanínufóðri kr. 3.900,
DÖMUHANSKAR: með lambaskinnsfóðri kr. 4.700,
DÖMUHANSKAR: meðprjónafóðri(kínverskir) kr. 1.900,
DÖMUHANSKAR: meðlambaskinnsfóðri(kinverskir) kr. 2.200,
HERRAHANSKAR: með prjónafóðri kr. 4.500,-
HERRAHANSKAR: með kaninufóðri kr. 4.700,
HERRAHANSKAR: með lambaskinnsfóðri kr. 4.900,