Alþýðublaðið - 05.02.1993, Page 5
f
Föstudagur 5. febrúar 1993
„Purfum að spila með hjartamt"
- segir Sigurður Stfeinsson um teikinn á sunnudaginn
„Það er ekki spurning um
hugarfarið hjá öllum leik-
mönnum Selfossliðsins. Við
munum fórna öllu í þcssum
leik,“ sagði Sigurður Sveins-
son stórskytta í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
„Selfossliðið hefur ekki nærri
eins mikla reynslu af stórleikjum
og Valur, en á móti kemur að við
höfum ekki tapað fyrir þeim í
tvö ár.“
Af hverju skyldi Selfoss hafa
þetta tak á Völsurum?
,Ætli málið sé ekki bara að
við erum betri,“ svarar Sigurður
að bragði og glottir."
Sigurður sagði að helsti styrk-
leiki Vals liggi í mjög góðri vöm
og markvörslu, auk þess sem lið-
ið kynni mjög vel að notfæra sér
hraðaupphlaup. En veikleikar
Vals? „Það er helst sóknarleik-
urinn, en Valur er að flestu leyti
öflugt sóknarlið."
En hvar liggur mesti styrkur
Selfossliðsins?
„Tvímælalaust í sóknarleikn-
um. Svo er góð stemmning í lið-
inu og hún þarf að vera fyrir
hendi á sunnudaginn. Við þurf-
um að spila með hjartanu til að
vinna.
Það er líka mikill styrkur fyrir
liðið að við emm með frábæra
stuðningsmenn. Þeir breyta
stundum útileikjunum okkar í
heimaleiki. Það munar rosalega
rniklu."
Veðurguðimir hafa sett strik í
reikninginn uppá síðkastið enda
búa fimm af leikmönnum Sel-
foss í Reykjavík. Æftngar hafa
verið mjög strjálar - og stuttar.
„Já, um daginn lögðum við af
stað úr bænum um sexleytið,
komum til Selfoss um hálfátta,
æfðum í hálftíma og vomm
komnir í bæinn klukkan ellefu!
Svona ferðalög em nú á við þrjár
erfiðar æftngar. Þetta hefur verið
alveg útí Hróa hött.“
Sigurður hefur tvívegis leikið
til úrslita með Þrótti í bikar-
keppninni, árin 1977 og 1981.
Fyrri leikurinn, gegn FH, tapað-
ist en í hinum, gegn Víkingi,
höfðu Siggi og félagar sigur. Þá
hefur hann einnig leikið til úr-
slita í spænsku bikarkeppninni,
en sá leikur tapaðisl.
Aðeins meira um leikinn á
sunnudaginn.
„Það félag sem skorar meira
en 20 mörk stendur uppi sem
sigurvegari,“ segir Sigurður spá-
mannlegur.
En einsog aðdáendur Selfoss-
liðsins vita er afar fátítt að liðið
skori minna en 20 mörk í leik.
Tekist á. Siggi Sveins. og Valdi-
niar Grímsson úr Val reyndu með
sér á blaðamannafundi á fimmtu-
daginn. (Mynd: Einar Ólason.)
hl-
MjaltaVélin
frá Setfossi
Gísli Felix Hjarnason, 30 ára, 84 leikir og
19 landsleikir.
Gústaf Bjarnason, 22 ára, 147 leikir og 25 landsleikir.
Olafur Einarsson, 25 ára, 130 leikir.
Hermundur Sigmundsson, 28 ára, 22 leikir.
Sigurjón Bjarnason, 25 ára, 140 leikir og 2 landsleikir.
Bjarni Magnússon, 21 árs, 18 leikir.
Jón Þórir Jónsson, 26 ára, 57 leikir.
Sverrir Einarsson, 25 ára, 141 leikur.
Davíð Ketilsson, 23 ára, 22 leikir.
Oliver Pálmason, 21 árs, 22 leikir.
Einar Guðmundsson, 23 ára, 139 leikir.
Páll Gíslason 22 ára, 22 ieikir.
Einar Gunnar Sigurðsson, 21 árs, 148 leikir
og 56 landsleikir.
Sigurður Sveinsson, 33 ára, 57 leikir og
206 landsleikir.
Einar Þorvarðarson þjálfari, 35 ára, 51 leikur
og 222 landsleikir.
David C. Vokes liðsstjóri, 41 árs.
Asmundur Jónasson læknir, 35 ára.