Alþýðublaðið - 05.02.1993, Qupperneq 12
Gœðaflísar
á góðu verði
St(>rhi>fða 17, viil <>ullinhrú - simi ft7 48 44
Skreytingar við 'ótt tcelqfceri.
OpicS aíía áaga tif 22
STEFANSBLDM
SKIPHOLTI 50 B — SÍMAR 610771 & 10771
rFréttir í hnots1{urn
Bera Nordal, forstöðumaður Listasafns íslands og menntamálaráðherra, Olaf-
ur G. Einarsson, þegar gert var út um framtíð Næpunnar.
Landshöfðingjahús afhent
Listasaftii ístands
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að fela Listasafni íslands húseignina
Skálholtsstig 7, öðru nafni Næpuna, til umsjónar og notkunar. Ráðgert er að
j húsinu verði skrifstofur Listasafns íslands auk annarrar starfsemi safnsins.
Ibúð á efstu hæð verður hinsvegar ekki ráðstafað nema í samráði við
Menntamálaráðuneytið. Þar er fyrirhugað að f framtíðinni verði listamanns-
íbúð. Næpan eða Landshöfðingjahúsið var byggt 1904 af Magnúsi Stephen-
sen landshöfðingja og bjó hann í húsinu til dauðadags árið 1917. Bókaút-
gáfa Menningarsjóðs sem nú hefur verið lögð niður, var um árabil í húsinu,
en það fyrirtæki lét færa húsið til fyrra horfs, en um árabil var húsið að nið-
urlotum komið og rætt um að rífa það.
Virlýunarleyfi til Hitaveitu
Suðumesja
Iðnaðarráðherra gaf í gærdag út virkjunarleyft til Hitaveitu Suðumesja
vegna fjögurra strompgufuvéla við orkuverið í Svartsengi. Aflgeta vélanna
er samtals 4,8 rhegavött. Leyfið er gefið út með vísan til samkomulags sem
tekist hefur milli Hitaveitu Suðumesja og Landsvirkjunar um nýjan sam-
rekstrarsamning. var okkur tjáð í Iðnaðarráðuneytinu í gær.
Söngvarar framtíðarinnar í
Argentínu
Veitingahúsið Argentína, sem býður upp á frægar nautasteikur, efnir til ný-
stárlegrar kynningar á ungum söngvara- og söngkonuefnum okkar. Næstu
sunnudagskvöld, tvisvar til fjómm sinnum í mánuði, munu söngnemar frá
Söngskóla Reykjavíkur, koma fram í Argentínu og skemmta matargestunr
við undirleik þeirra Reynis Jónassonar og Szymon Kuran. Hér er auk þess
um að ræða keppni og hlýtur sigurvegarinn ferð til New York á ópemsýn-
ingu í verðlaun. Argentína hefur sinnt listamönnum dyggilega og meðal
annars styrkt tvo myndlistarmenn til sýningarhalds og þann þriðja til fram-
haldsnáms. Fyrsti keppandinn er Kristjana Stefánsdóttir og syngur í Argent-
ínu á sunnudaginn kemur kl. 20.30. Kristjana er Selfyssingur og stúdent frá
Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Sardasfurstynjan
öp*r«tu •ftir L*o St»ln og Btka Jtntwch
MKMMiMr
ENNERICH KALHAN
flutt mB l«yfl |«mí W»ínb*rg*r Ltd.
I íslenskri þýðlngu Hosa ólafssonar og Þorsteins Gylfasonar
Hljómsveitarsqóri: Páll Pampichler Pálsson
Lcikstjóri: Kjartan Ragnarsson
Dansar. Auður Bjarnadóttir
Leikmyrvd: Sigurjón Jóhannsson
Búningan Hulda Krbtín Magnúsdóttir
Lýsing: jóhann B. Pálmason
Stjórnandi kórs/œfingastjórí: Peter Locke
Sýningarstjóri: Kristín S Krbtjánsdóttir
Píanóleikari á æfingum: Iwona Jagla
Kór Islensku óperunnar
Hljómsveit Islensku óperunnar
KDnsertmeistarb Zbigniew Dubik
Söngvaran
• Signý Sæmundsdóttir • Þorgeir J. Andrésson • Bergþór Pálsson
• Jóhanna LJnnet • Sigurður Björnsson • Bessi Bjamason
• Siegiinde Kahmann • Kristinn Þ. Hallsson
FRUMSÝNING
föstudaginn 19. febrúar
HÁTÍÐARSÝNING
laugardaginn 20. febrúar
Styrktarfélagar clga forkaupsrétt á miðum dagana
I. -4. febrúar
JllMB safa asils bsfsi §. fetaúsr
Miðasalan er opln frá Id. 15 - 19 daglega
sýningardaga tJI kL 20
Sfml 11475 - Greiðslukortaþjónusta
„Matur í skóla“ - kjörorð Tannverndardagsins
22 KÍLÓ AF GOTTERÍIOG
140 LÍTRAR GOSDRYKKJA
/
-það er hið ótrúlega ársmeðaltal Islendingsins í neyslu
tannskemmandi og fitumyndandi matvœla
„Orsök þess hve erfiðlega hefur
gengið að fækka tannskemmdum
hjá Islendingum þrátt fyrir nægan
fjölda tannlækna og greiðslur hins
opinbera fyrir tannlækningaþjón-
ustu barna og unglinga eru marg-
ar“, segir Magnús R. Gíslason, yfir-
skólatannlæknir. Hann segir helstu
ástæðuna vera firn núkla neyslu Is-
lendinga á sælgæti og gosdrykkjum.
Hún virðist keyra um þverbak, ekki
síst á síðari árurn.
„Hver Islendingur neytir um 22
kílóa af sælgæti og drekkur um 140
lítra af gosdrykkjum á ári hverju þrátt
fyrir að fáar þjóðir haft betri aðgang að
nægu magni af góðu drykkjarvatni",
segir Magnús.
Tannlæknirinn bendir á að sykur sé
ein fárra neysluvara sem sé ódýr á Is-
landi. Þó hefur sykurverð heldur farið
hækkandi miðað við önnur lönd á síð-
ustu árum, en er þó til muna ódýrari hér
en í flestum nágrannalöndum okkar.
Magnús segir að komið hafi í ljós að
lágu sykurverði fylgja aukin neysla -
og miklar tannskemmdir, auk að sjálf-
sögðu fitusöfnunar hjá neytendunum.
Þá bendir Magnús á að fjöldi sölu-
tuma sé mikill á Islandi, en í þeim fyr-
irtækjum er megináherslan einmitt
lögð á sölu a sælgæti og gosdrykkjum.
Víða um landið er að finna einn sölu-
tum fyrir hverja 200 íbúa, en í Reykja-
vík er einn sölutum á hverja 500 íbúa.
Auk þess er sælgæti og gos selt á ótrú-
legustu stöðum öðrum og varla hægt að
þverfóta fyrir framboði af þessari fæðu,
sem er svo óvinveitt tannheilsu fólks.
„Aftur á móti hefur ekki enn tekist
að koma á skólamáltíðum, sem verður
að teljast mjög nrikilvægt með tilliti til
þess hve algengt er orðið að foreldrar
vinni báðir utan heimilis", segir Magn-
ús R. Gíslason.
Sælgætisframleiðsla á íslandi hefur
aukist stórlega á síðustu árurn. Árið
1960 var hún 500 tonn á ári, árið 1985
var innlend framleiðsla 1900 tonn auk
þess sem 2000 tonn voru flutt inn, auk
300 tonna sölu í Fríhöfninni.
I dag má reikna með að neysla Is-
lendinga á sælgæti sé um 5 þúsund
tonn! Þetta samsvarar því að hver ís-
lendingur borði í dag 22 kíló af sælgæti
á ári eða nærri 2 kíló á mann í mánuði
hverjum.
Athyglisvert er að flugfarþegar sem
eiga leið um Fríhöfnina kaupa á degi
hverjum sem samsvarar heilu tonni af
gúmmúlaðinu. Fyrir þetta borgaði fólk
4,5 milljónir Bandaríkjadala árið 1988.
Það samsvarar nokkum veginn helm-
ingi þeirrar upphæðar sem Trygginga-
stofnun ríkisins greiddi fyrir tannlækn-
ingar það ár.
Tannvemdardagurinn er haldinn í
dag á vegum Tannverndarráðs, en í því
sitja þeir Magnús R. Gíslason, Sigfús
Þór Elíasson og Björgvin Jónsson. Að-
aláhersla dagsins er lögð á umfjöllun
um matarvenjur Islendinga. Einkunn-
arorð dagsins eru: Matur í skóla. Fólk
mun án efa verða vart við aðstoðarfólk
tannlækna þegar helgarinnkaupin eru
gerð í stórmörkuðum. Þar verður fólki
leiðbeint í tannvemd. Þá munu fjöl-
miðlar minna á daginn, hver á sinn hátt.
Aðstaðafyrir
nýja íþrótt á
Islandi
Vill fá bog-
fimivöll í
Laugardal
Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi Framsóknarfiokksins,
lagði fram tillögu í borgarstjórn í
gær, þar sem lagt er til að borg-
arskipuiag geri tillögu um lóð í
Laugardal, þar sein aðstaða yrði
fyrir nýja íþróttagrein hér á
Iandi, bogfimi.
Segir Alfreð að íþróttafélag fatl-
aðra í Reykjavík hafi um nokkurra
ára skeið leitað eftir því að fá út-
hlutað ióð fyrir bogfimi, sem sé
vaxandi íþróttagrein. Þessar um-
leitanir hafa l'engið jákvæðar undir-
tektir, en ekkert orðið úr fram-
kvæmdum.
Stærð vallar fyrir bogftmi þyrfti
að vera 120 x 30 metrar. Telur Al-
freð það ekki óeðlilegt að hinni
nýju íþróttagrein yrði fundinn stað-
ur í Laugardal, þar sem er miðstöð
íþrótta í höfuðborginni, enda kjósi
forráðamenn Iþróttafélags fatlaðra
helst að starfsemin verði þar.
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna
Framhaldsskólann til
fortíðar eða framtíðar?
Opinn fundur þriðjudaginn 9. febrúar, kl. 20.30 á Hótel Sögu.
Samræmd próf - hertar kröfur, flokkun nemenda aö loknum grunn-
skóla, endurvakiö „gagnfræðapróf" eru meöal tillagna í áfangaskýrslu
nefndar, um mótun menntastefnu sem kynnt var í siðusu viku. Allt hef-
ur þetta heyrst áöur, en meöal nýmæla eru valddreifing í rekstri skóla,
samræmt gæðamat á kennslu, lenging skólaársins og aukin ábyrgö
atvinnulífsins á starfs- og verkmenntun á framhaldsskólastigi.
Þetta eru m.a. viöbrögö yfirvalda menntamála viö kreppu fram-
haldsskólans, sem hefur lengi blasaö viö, án þess aö menn þyröu aö
ræöa hana opinskátt og opinberiega.
Um miðjan áttunda áratuginn voru gerðar gagngerar breytingar á is-
lensku skólakerfi, sem þvi miöur horföu ekki allar til heilla. Þessar
breytingar og tillögur nefndar um mótun menntastefnu munu ræöa á
fundinum 9. febrúar þau Eygló Eyjólfsdóttir, kennari Menntaskólans
viö Hamrahlíö, Guöni Guömundsson, rektor Menntaskólans i Reykja-
vík, Guðríður Sigurðardóttir, ráöunautur menntamálaráöherra í skóla-
málum og Jón Torfi Jónasson, dósent Háskóla Islands.
Fundarstjóri verður Margrét S. Björnsdóttir, formaöur FFJ.
Allir velkomnir, fundargjald kr. 500.
Ouöni
Guöríöur
Jón Torfi