Alþýðublaðið - 02.04.1993, Side 1

Alþýðublaðið - 02.04.1993, Side 1
MIYBUBUBU wst TVOFALDUR1. vinningur Föstudagur 2. apríl 1993 52. TÖLUBLAÐ - 74. ÁRGANGUR ''v. Erlendir séifrœðingar koma og dœma um arðsemi stálbrœðslu í Helluhrauni í Hafnarfirði MUN LEGGJA NIÐUR VOPNIN VERÐINIÐURSTAÐA NEIKVÆÐ -segir Haraldur Olason, byggingameistari, sem unnið hefur að endurreisn stálbrœðslu á grunni þrotabús / Islenska stálfélagsins hf. „Ég mun hlíta þessum stóra- dómi í einu og öllu, hver sem nið- urstaðan verður“, sagði Harald- ur Ólason, byggingameistari, en hann hefur unnið mikið og gott starf að endurreisn verksmiðju íslenska stálfélagsins hf.í Hellu- hrauni í Hafnarfirði, en þrotabú þess félags hefur staðið autt og yfirgefið í á annað ár. „Verði nið- urstaðan neikvæð, mun ég leggja niður vopnin“, sagði Haraldur. Sá stóridómur sem Haraldur vitnar til, er álitsgerð, sem tveir er- lendir sérfræðingar munu gera snemma í næstu viku, á mánudag eða þriðjudag. Væntanlegir eru hingað til lands enskur verkfræð- ingur og danskur sérfræðingur sem rekið hefur stálbræðslu. Það er Daninn sem verður einskonar yfir- dómari um það hvort hyggilegt sé að endurreisa stálverið að nýju. „Utlendu sérfræðingamir munu skoða hér vélar, tæki og aðstæður allar og yfirfara alla hluti og standa Haraldur Ólason hefur unnið mikið starf í sambandi við stálverið. í fundahöldum með okkur. Bæði Iðnþróunarsjóður og Búnaðarbank- inn em inni á þessari leið“, sagði Haraldur í viðtali við Alþýðublaðið í gær. Haraldur Ólason hefur unnið Búnaðarbankinn í Halnarf jörð? Bankinn hefur mikinn hug á að opna þar útibú, segir Guðni Agústssonjormaður bankaráðs Búnaðarbankans Búnaðarbankinn hefur haft mikinn f hug á að opna útibú í Hafnarfirði og lítur á Hafnarfjörð sem mikinn framtíðarstað", sagði Guðni Ag- ústsson, formaður bankaráðs Bún- aðarbankans. Hann sagði að bank- inn væri enn að athuga staðsetningu fyrir bankann. Guðni vildi ekki staðfesta að bankinn væri sérstaklega að huga að húsnæði í nýja þjónustu- og versl- unarkjamanum í miðbæ Hafnar- fjarðar. Hann sagði hins vegar að málið hefði verið til umfjöllunar í bankaráði Búnaðarbankans og væri það mjög áfram um að stofna útibú i Hafnarfirði. Guðntundur gat þess að Haukur Helgason, skólastjóri í Öldutúnsskóla, sem situr í banka- ráðinu væri mikill hvatamaður að því að Búnaðarbankinn kæmi til Hafnarfjarðar. mikið starf í sambandi við stálver- ið. Hann var í stjóm íslenska stálfé- lagsins hf. um árabil, og eftir að fyr- irtækið fór í gjaldþrot hefur hann unnið að því upp á eindæmi að end- urreisa verksmiðjureksturinn. „Mín rök em einföld. Við eigum hráefnið, við eigum afskrifaða eign, höfum aðgang að ódýrri raforku, og hér er fyrir hendi góður mannskap- ur. Ég hef haldið því fram á þessum forsendum að rekstur stálbræðsl- unnar eigi að geta tekist“, sagði Haraldur í gær. Hann sagði að hér væri um að ræða störf fyrir 30 manns til að byrja með, en sá fjöldi gæti orðið meiri síðar, þegar reksturinn þróast. Það væri hreint ekki lítið, því sam- kvæmt upplýsingum iðnrekenda sköpuðust fjögur störf í öðmm greinum með hverju einu starfi sem skapað er í iðnaði. Haraldur sagði að vissulega yrðu það vonbrigði ef ekkert yrði af áframhaldandi rekstri stálversins. Þá lægi nánast ekki annað fyrir en að selja vélar og tæki úr landi. Flugdrekasýning á Listahátíð í Hafnarfirði í júní Efni Alþýöublaðsins í dag er sérstaklega tileinkaö Hafnarfiröi. Meöal annars efnis er að finna viötal viö Guömund Árna Stefánsson bæjarstjóra í opnu blaösins, grein um listahátíö sem haldin veröur í júní í Hafnarfiröi, viötöl við Gísla Agúst Gunnlaugsson, formann skólanefndar, og Grétar Þorleifsson, forinann Félags byggingariðnaöarmanna og fieira. Það er ávallt líf og fjör í Hafnarfiröi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.