Alþýðublaðið - 02.04.1993, Blaðsíða 3
Föstuudagur 2. apríl 1993
3
Alþjóðlegt handknattleiksmót unglinga í Kaplakrika
84 lið taka þáH í mótinu
Þar afsex erlendir hóparfrá Svíþjóð og Þýskalandi
Alþjóðlegt handknattleiksmót ung-
linga, Icelandic Cup, verður haldið í
Kaplakrika 8.-11. aprfl. Mótið er haldið í
samvinnu handknattleiksdeildar FH og
íþróttadeildar Úrvals- Útsýn. Þetta er í
fyrsta skipti sem alþjóðlegt handknatt-
leiksmót unglinga er haldið hér á landi.
Það er gamla handboltakempan Geir
Hallsteinsson sem hefur haft veg og vanda
að undirbúningi mótsins. Hann sagði við
Alþýðublaðið að þátttakan í mótinu hefði
verið vonum framar og alls 84 lið skráð sig
til leiks, þar af 8 erlend, ífá Svíþjóð og
Þýskalandi. Auglýsingin um mótið hefði að
vísu ekki farið út fyrr en fyrir sjö mánuðum
og væri það almennt of stuttur fyrirvari fyr-
ir þau lið sem hingað vilja koma erlendis
frá.
Geir segir að það sé mjög gott að geta
boðið íslenskum liðum að spreyta sig við
erlend lið án þess að þurfa að fara til útlanda
með tilheyrandi kosmaði. A mótinu keppa
bæði drengir og stúlkur í 2., 3., 4. og 5.
flokki.
Þeir keppendur sem koma erlendis frá og
utan af landi munu gista í Víðistaðaskóla,
segir Geir. Þeim verður jafnframt boðið
upp á tvær máltíðir á dag fyrir mjög hóflegt
verð. Keppt verður f tveimur völlum í
Kaplakrika og t Iþróttahúsinu við Strand-
götu. Geir sagðist vilja hvetja alla Hafnfirð-
inga og aðra til að fylgjast með mótinu, en
það hefst kl. 8:30 á morgnana og stendur
ffam til klukkan 10:30 á kvöldin.
Geir Hallsteinsson FH-ingur í Kaplakrikanum en hann hefur haft veg og vanda að undirbúningi
alþjóðamótsins í handbolta unglinga
Hjalti Guðmundsson, Birna Björnsdóttir og Elín Sigurðardóttir í
Suðurbæjarlauginni.í Hafnarfirði
Islandsmeistaramótið í sundi
innanhúss
Birna vann
þrenn gull-
verðlaun
Hjalti Guðmundsson valinn efni-
legasti sundmaður mótsins
íslandsmeistaramótið í sundi innanhúss fór fram í Sund-
höll Reykjavíkur um síðustu helgi. Sundfélag Hafnarfjarð-
ar sendi að venju marga þátttakendur á mótið og má segja
að sjaldan eða aldrei hafi þeir náð betri árangri en nú. Sett
voru tíu ný Hafnarfjarðarmet og setti Elín Sigurðardóttir
fímm þeirra, auk þess sem hún var í boðsundssveit SH sem
setti fjögur ný Hafnarf jarðarmet á mótinu. Einnig voru sett
fimm ný hafnfirsk aldursflokkamet og setti Davíð Freyr
Þórunnarson þrjú þeirra. Allir keppendur SH settu per-
sónuleg met á mótinu, eða voru við sitt besta, sem sýnir að
mikil gróska er hjá SH og má búast við góðum afrekum á
næstunni.
Bima Bjömsdóttir sýndi mikla yfirburði í 100 og 200 m
bringusundinu og var langt á undan næstu keppendum í báðum
greinum. Hún er nú aftur að komast í sitt gamla form, en hún
sneri sér að frjálsum íþróttum um tíma á kostnað sundsins og er
nú að komast í „toppform” aftur. Hún var valin í landsliðið eft-
ir mótið og mun á næstunni taka þátt í smáþjóðaleikunum á
Möltu. Elín Sigurðardóttir var einnig valin í landsliðið og mun
einnig keppa á Möltu.
Hjalti Guðmundsson sem er einn efnilegasti sundmaður
landsins í dag var að vonum valinn efnilegasti sundmaður ís-
landsmótsins og einnig í unglingalandsliðið sem keppir í Lúx-
embúrg á næstuhni.
Nýr Favorit
Ekki bara betri, heldur 548 sinnum betril
Nýr og endurbættur Favorit hefur nú litið
dagsins Ijós. Eftir að Skoda verksmiðjurnar
sameinuðust Volkswagen samsteypunni hafa
þýskir tækni- og hugvitsmenn lagt nótt við
dag. Útkoman er glæsilegur fimm dyra
hlaðbakur, sem státar af 548 endurbótum,
stórum sem smáum.
Favorit er nú framleiddur samkvæmt
kröfum og stöðlum Volkswagen, sem tryggja
meiri gæði, aukið öryggi og betri endingu.
Vélin er með hvarfakút og tölvustýrðri
Bosch Motronic innspýtingu og kveikju, sem
er viðhaldsfrí og dregur úr bensíneyðslu. í
hurðum eru styrktarbitar, og innréttingar
eru nýjar. Það sama gildir um bremsukerfið,
rafkerfið og margt, margt fleira.
Hinir f|ölmörgu aðdáendur Favorit hafa
því fengið 548 nýjar ástæður til þess að velja
þennan vinsæla bíl. Og er þá ein ótalin:
Nefnilega verðið!
Nýr framhjóladrifinn Favorit LXi, 5 dyra
og 5 gíra kostar kr. 598.000.- á götuna, og
fæst í 9 spennandi og frískum litum.
Komdu og reynsluaktu nýjum Favorit.
Söludeild Jöfurs er opin virka daga 9-18 og
laugardaga 12-16.
ÁFULLRIFERDl
Aukabúnaður á mynd: 15" álfelgur.
Nýbýlavegur 2, Kópavogur, sími 42600.