Alþýðublaðið - 27.04.1993, Page 5
Framkvœmdir í miðborginni í sumar vegna endurnýjunar
og nýlagninga torga, gatna og gangstétta.
Á komandi sumri verður ráðist í all viðamiklar framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur. Þær miða allar
að því að fegra miðborgina, skapa betri aðstöðu til útivistar, bæta götur og torg, auk þess að sinna
eðlilegu viðhaldi og endurnýjun lagna og gatna.
Við hönnun og framkvæmd þessara breytinga hefur verið lögð áhersla á að halda truflun umferðar í
lágmarki og hraða framkvæmdum. Nefna má nokkur atriði:
•Umferð um Tryggvagötu truflist ekki.
•Umferð Austurstrætis til vesturs hafi eðlilegt flæði með gerð nýrrar tengibrautar við Hafnarstræti.
•Starfsemi strætisvagna verði óhindruð.
•Starfsemi Kolaports truflist ekki.
---—
Framkvæmdirnar hefjast um mánaðarmótin apríl/maí og
mun þeim ljúka í september/október.
Óhjákvæmilegt er, að af þessum framkvæmdum hljótist
nokkur truflun á umferð gangandi vegfarenda og öku-
tækja, meðan á þeim stendur.
Borgarbúar eru beðnir að sýna þessum framkvæmdum
skilning og gæta sérstakrar varúðar í umferðinni meðan á
breytingum stendur.
Gstrsosrs—
— — vjt Ðk
Geirsgata
verður byggð, hæfllÁið, '
breikkuð og færö til norðurs meö
endurbótum á Miðbakka. Umferð á
núverandi Tryggvagötu mun færast
þangað aö verulegu leyti að loknum
framkvæmdum n.k. haust. Við það
munu samgöngur við Vesturborgina
batna til muna.
Tryggvagata
Arnarhóll.
Umhverfi styttu Ingólfs Arnarsonar verður bætt, gras-
svörður sléttaður og hitalagnir lagðir í bratta gangstíga.
I
1
Tjarnargata.
Vesturbakki Tjarnarinnar endurbyggður með grænum
svæðum, betri aðstöðu fyrir mannlíf og fuglalíf.
Ingólfstorg
(áður Hallærisplan og Steindórsplan) verður byggt og fært í
framtíðarhorf með stórbættri aöstöðu til útivistar og umferðar
gangandi fólks. Breytingar verða gerðar á umferð úr
Austurstræti í Hafnarstræti.
Gleðilegt sumar!
REYKJAVÍKURBORG
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA