Alþýðublaðið - 27.04.1993, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 27.04.1993, Qupperneq 5
Framkvœmdir í miðborginni í sumar vegna endurnýjunar og nýlagninga torga, gatna og gangstétta. Á komandi sumri verður ráðist í all viðamiklar framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur. Þær miða allar að því að fegra miðborgina, skapa betri aðstöðu til útivistar, bæta götur og torg, auk þess að sinna eðlilegu viðhaldi og endurnýjun lagna og gatna. Við hönnun og framkvæmd þessara breytinga hefur verið lögð áhersla á að halda truflun umferðar í lágmarki og hraða framkvæmdum. Nefna má nokkur atriði: •Umferð um Tryggvagötu truflist ekki. •Umferð Austurstrætis til vesturs hafi eðlilegt flæði með gerð nýrrar tengibrautar við Hafnarstræti. •Starfsemi strætisvagna verði óhindruð. •Starfsemi Kolaports truflist ekki. ---— Framkvæmdirnar hefjast um mánaðarmótin apríl/maí og mun þeim ljúka í september/október. Óhjákvæmilegt er, að af þessum framkvæmdum hljótist nokkur truflun á umferð gangandi vegfarenda og öku- tækja, meðan á þeim stendur. Borgarbúar eru beðnir að sýna þessum framkvæmdum skilning og gæta sérstakrar varúðar í umferðinni meðan á breytingum stendur. Gstrsosrs— — — vjt Ðk Geirsgata verður byggð, hæfllÁið, ' breikkuð og færö til norðurs meö endurbótum á Miðbakka. Umferð á núverandi Tryggvagötu mun færast þangað aö verulegu leyti að loknum framkvæmdum n.k. haust. Við það munu samgöngur við Vesturborgina batna til muna. Tryggvagata Arnarhóll. Umhverfi styttu Ingólfs Arnarsonar verður bætt, gras- svörður sléttaður og hitalagnir lagðir í bratta gangstíga. I 1 Tjarnargata. Vesturbakki Tjarnarinnar endurbyggður með grænum svæðum, betri aðstöðu fyrir mannlíf og fuglalíf. Ingólfstorg (áður Hallærisplan og Steindórsplan) verður byggt og fært í framtíðarhorf með stórbættri aöstöðu til útivistar og umferðar gangandi fólks. Breytingar verða gerðar á umferð úr Austurstræti í Hafnarstræti. Gleðilegt sumar! REYKJAVÍKURBORG HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.