Alþýðublaðið - 11.05.1993, Blaðsíða 1
Búvörulögunumfrestað til hausts
EES-samningur-
inn ríkjcmdi?
- og því óvíst hvort gera þwfi breytingar á búvörulögunum segir utanríkisráðherra
Miklar deilur urðu á síðasta
fundi 116. löggjafarþingsins á
laugardaginn vegna ósamkomu-
lags um breytingar á búvörulög-
um. Stjórnarandstaðan beitti öll-
um ráðum til þess að koma höggi
á ríkisstjórnina vegna þessa máls
og reyndi hvað eftir annað að fá
málið borið undir atkvæði. For-
seti þingsins vísaði tillögum
stjórnarandstöðu frá, enda hafði
ríkisstjórnin óskað eftir því að
málinu yrði frestað og formaður
landbúnaðarnefndar hafði fallist
á það.
Reyndar virðist deilan um breyt-
ingar á búvörulögunum ekki gefa
tilefni til þess moldviðris sem raun
ber vitni. Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra hefur sagt að
lagaálit, sem hann hefur undir
höndum, bendi til þess að það þurfi
ekki að breyta búvörulögunum
vegna EES samningsins. Það séu
fyrir því ótal fordæmi að íslenskir
dómstólar líti svo á að lög sem séu
studd þjóðréttarskuldbindingum
séu ríkjandi ef það komi í ljós að
eldri lög rekist á við þau. Það séu
því allar líkur á að EES samningur-
inn sé ríkjandi í þessu máli.
Mál þetta hefur orðið mjög vand-
ræðalegt sökum þess að ríkisstjóm-
in hafði samþykkt að leggja frum-
varpið fram, en síðan urðu á því
miklar breytingar sem fjármálaráð-
herra og ráðherrar Alþýðuflokksins
hafa ekki getað sætt sig við. Reynd-
ar hefur það heyrst að formaður
landbúnaðamefndar hafi hunsað at-
hugasemdir og mótmæli sem hann
hafi fengið frá einstökum ráðuneyt-
um og því hafi einstakir ráðherrar
orðið mjög hissa þegar þeir sáu
fmmvarpið í endanlegri gerð á Al-
þingi.
Þessi ótrúlega deila snýst í raun
um hugsanlegan innfluting á blóm-
um, papriku, smjörlíki og öðmm
matvælum úr iðnaðarhráefnum.
Landbúnaðarráðherra vill hafa al-
ræðisvald í þessum málum og
ákveða hvað skuli leyft og hvort
verðjöfnunargjöldum verði beitt
vegna þessa innflutnings. Þing-
menn Alþýðuflokksins og nokkrir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
með fjármálaráðherra í broddi fylk-
ingar hafa lagst gegn þessu alræðis-
valdi landbúnaðarráðherrans. Hins
vegar töldu þeir þingmenn sem
blaðið hafði samband við í gær að
þetta mál væri langt frá því að
sprengja ríkisstjómina og allar líkur
væm á að samkomulag næðist um
það í ríkisstjóm á næstunni.
Alþingishúsið vinsœlt afferðamönnum
Annir á Alþingi í sumar
Spurning hvort ekki verður selt inn og safnaðfyrir nýju þinghúsi sem nú er
á teikniborðinu
Þrátt fyrir að Alþingi hafi nú
verið slitið og þingmenn komnir
til síns heima, þá verða töluverðar
annir í gamla Alþingishúsinu við
Austurvöli í sumar. Alþingi er
nefnilega orðið afar vinsæll ferða-
mannastaður og í fyrra komu
þangað hundmð manna til þess að
skoða þetta elsta starfandi löggjaf-
arþing í heiminum.
Starfsmenn Alþingis munu ekki
verða í fríi eða sitja aðgerðalausir í
sumar þrátt fyrir að hefðbundnum
þingstörfum sé nú lokið. Mikil
vinna er framundan við frágang
þingmála auk þessa nýja hlutverks
hússins sem ferðamannastaður.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins þá mátti merkja mikla breyt-
ingu á þessu nýja hlutverki Al-
þingis í fyrra, en þá komu hundmð
ferðamanna í skoðunarferðir í
þinghúsið. Þetta munu hafa verið
bæði erlendir og innlendir hópar
ferðantanna sem komu á eigin
vegum og vegna fyrirspuma frá
ferðaskrifstofum.
Þeim starfsmönnum sem blaðið
ræddi við í gær fannst sjálfsagt að
Alþingishúsið væri opið fyrir öll-
um þeim sem það vildu skoða yfir
sumartímann. Þeireiga von á svip-
aðri ásókn í sumar og nokkrir hóp-
ar hafa þegar tilkynnt komu sína.
Ef Alþingishúsið verður jafn
vinsælt og Buckinghíunhöll í Eng-
landi, þá hafa sumir velt þvt fyrir
sér hvort ekki megi selja aðgang
að húsinu og nota innkomuna til
að fjánnagna nýbyggingu Alþing-
is, sem nú er á teikniborðinu, eins
og Alþýðublaðið greindi frá í síð-
ustu viku.
Þessi hárgreiðsla Jóhanns myndi sóma sér vel hjá japönskum konum sem
þekktar eru af prjónum í hári sínu eins og Jóhann gerði hér. - A-myndir E.Ól.
✓
Islenskur hárgreiðslumaður til staifa í Tókyó
Ætlar að snurf-
usa Japani
Ungur hárgreiðslumaður, Jóhann
Amason, hélt utan í morgun til að
freista gæfunnar sem hárgreiðslu-
maður í Tókyó í Japan. Hann segir
að vesturlandabúar sé eftirsóttir
sem fagmenn þar eystra.
Jóhann sem hefur unnið hjá
Dúdda hárgreiðslumeistara, segir
að það hafi verið fyrir tilstuðlan
vinkonu sinnar, sem starfað hafi
sem módel í Tókyó í þrjú ár, að
hann ætli að freista gæfunnar hin-
um megin á hnettinum. Hann segist
hafa sambönd úti en ekki hafi verið
gengið frá neinum samningum um
vinnu þar ytra. Hann geri sér fylli-
lega grein fyrir að mannlífið í Japan
sé gjörólíkt því hér heima. „Það er
fyrst og ffernst af ævintýraþrá sem
ég ákvað að reyna fyrir mér á að
klippa og greiða Japönum", sagði
Jóhann Árnason, - freistar gæfunnar
í landi sólarinnar, Japan.
Jóhann Ámason, þegar Alþýðu-
blaðsmenn hittu hann á fömum
vegi rétt fyrir brottförina.
Verið velkomin í Perlu ÞingvalLi og njótið
þeaa beata í umhverfi, aðatöðu og þjóniutu.
H ÓTE L VAIHÖ LL
Þingvöllum