Alþýðublaðið - 11.05.1993, Blaðsíða 4
4
Skýrsla Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra á Alþingi
Þriöjudagur 11. maí 1993
s
Utflutningur raforku
um sæstreng
„Nauðsynlegt er að tímanlega verði
mótuð stefna um útflutning raforku
sem víðtæk samstaða getur náðst um.
Stefnan þarf að taka jafnt til efnahags-
legra og lagalegra sjónarmiða. Ekki er
síður brýnt að landnýting og umhverfis-
mál verði vandlega skoðuð. Nokkurt
Iandsvæði fer undir vatn, ef ráðist verð-
ur í stórvirkjanir á hálendinu“, segir
m.a. í skýrslu sem Jón Sigurðsson, iðn-
aðarráðherra, lagði fram á Alþingi í síð-
ustu viku um útflutning raforku um sæ-
streng.
Tilgangur skýrslunnar er að leita svara
við því hvort íslendingar vilji nýta orku-
lindir Islands á þann hátt að flytja orku
þeirra út um sæstreng. Sá möguleiki hefur
verið kannaður af meiri alvöru en áður en
tækniframfarir og breytingar í orkumálum
heimsins hafa gert útflutning á raforku frá
Islandi til annarra landa um sæstreng að
raunhæfum möguleika. I skýrslu iðnaðar-
ráðherra segir:
„Útflutningur raforku ífá íslandi til
Bretlands eða meginlands Evrópu er stórt
verkefni - ekki einungis á íslenskan mæli-
kvarða heldur einnig á alþjóðlegan mæli-
kvarða. Reynslan af hliðstæðum verkefn-
um er takmörkuð og vegalengd og sjávar-
dýpi eru miklu meiri en fordæmi eru fyrir.
Aður en hægt er að taka endanlega ákvörð-
un um raforkuútflutning þarf að fara fram
umfangsmikið og kostnaðarsamt undir-
búningsstarf. Þess er ekki að vænta að út-
flutningur geti hafist fyrr en í fyrsta lagi
um miðjan fyrsta áratug næstu aldar. Allt
veldur þetta því að vanda þarf allan undir-
búning sérstaklega vel.
Móta þarf stefnu um þátttöku erlendra
aðila og hverjir eigi að verða eigendur
virkjana og sæstrengs. Bæði þýsk og hol- !
lensk raforkufyrirtæki hafa sýnt áhuga á að
taka þátt í slíku verkefni reynist tæknilegur
og fjárhagslegur grundvöllur fyrir því.
Hollensku fyrirtækin hafa þegar hafið for-
athugun á útflutningi raforku frá íslandi
um sæstreng til Hollands í samvinnu við
Reykjavíkurborg. Margt bendir til þess að
heppilegt væri fyrir íslenska hagsmuni að
sæstrengsfyrirtækið - eignarhaldsfélagið -
hefði heimilisfang utan Islands. Með öllu
er ljóst að íslendingar hafa ekki bolmagn
til að ráðast í slíkt verkefni án erlends
hlutafjár. Ekki síst af þessum sökum þarf
að ákveða gjald fyrir virkjanaleyfi þannig
að útflutningur raforku verði fysilegur
kostur fyrir íslenskt þjóðarbú. Gjaldið
hlýtur meðal annars að ráðast af markaðs-
aðstæðum á raforkumarkaði erlendis,
flutningskosmaði orkunnar og tækifæmm
til nýtingar hennar innanlands."
Helstu efnisatriði
Um helstu efnisatriði málsins koma
fram eftirfarandi punktar frá iðnaðarráð-
herra.
„1. Þar sem aðeins lítill hluti orkulind-
anna hefur verið nýttur og markaðsöflun
til iðnaðamota gengið hægt er ekki rétt að
líta á útflutning raforku og uppbyggingu
raforkufreks iðnaðar sem kosti er útiloka
hvom annan. Fyrst og fremst verður stefnt
að útflutningi raforku til viðbótar við sölu
innanlands.
2. Talið er að markað fyrir raforku frá
íslandi verði helst að finna í fjómm lönd-
um, Belgíu, Bretlandi, Hollandi og Þýska-
landi.
3. Á íslandi hafa opinberir aðilar og fyr-
irtæki á þeirra vegum einir átt og rekið raf-
orkumannvirki. Á þessu þarf að verða
breyting ef af útflutningi raforku verður,
sem er svo umfangsmikið verkefni að
bein erlend eignaraðild þarf að koma til.
4. Brýnt er að lögfesta samræmda auð-
lindalöggjöf til að tryggja íslenskt forræði
yfir auðlindum landsins, sérstaklega ef til
koma fjárfestingar einkaaðila, bæði er-
lendra og innlendra.
5. Setja þarf lagalega umgjörð um und-
irbúning virkjana og virkjanaframkvæmd-
ir sem tengjast útflutningi raforku. Komi
til stofnunar félags til að annast rekstur
virkjana og sæstrengs þarf að setja um það
sérstök lög.
6. Margt mælir með því að eignarhalds-
félag sem stofnað kynni að verða og legði
til það fjármagn sem þarf til verkefhisins
eigi heimili utan Islands.
7. Um 60% af raforkunni sem notuð er í
Evrópu er unnin með brennslu jarðefna-
eldsneytis. Til þess að spoma gegn aukn-
um gróðurhúsaáhrifum er mikilvægt að
dregið verði úr því.
8. Fram þarf að fara vandað og heilstætt
umhverfísmat á verkefhinu þar sem litið
verði á áhrif raforkuútflutnings bæði hér á
landi og annars staðar. Einnig ber að líta til
þess að með útflutningi raforku frá íslandi
eða með framleiðslu raforkufrekra afurða
geta íslendingar lagt nokkuð af mörkum
til að draga úr losun koltvísýrings út í and-
rúmsloftið.
9. Talið er að kostnaður við virkjanir,
flutningslínur, sæstrengi og umbreyti-
stöðvar sé 252 milljarðar króna íyrir tvo
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra.
sæstrengi til Skotlands, en 358 milljarðar
króna ef landtakan er í Hollandi eða
Þýskalandi. Árið 1992 var verg lands-
ffamleiðsla 382 milljarðar kr. Mannafla-
þörf við virkjana- og línuframkvæmdir
vegna tveggja sæstrengja er talin rúmlega
11.000 ársverk sem dreifast á áratug.
10. Áætluð arðsemi verkefnisins miðað
við nokkur dæmi um samkeppnisverð í
Skotlandi, Þýskalandi og Hollandi er á
bilinu 6,8 til 10,1% og hefur þá ekki verið
tekið tillit til skattgreiðslna eða gjaldtöku
til nkisins.
11. Sett hefur verið upp dæmi til að
meta þjóðhagsleg áhrif framkvæmdanna.
Miðað er við að lagðir verði tveir strengir
sem verði í eigu erlendra aðila, en virkjan-
ir að hálfu leyti. Á framkvæmdaskeiðinu
yrði verg landsframleiðsla mest 5,5%
meiri en í grunndæmi og rúmlega 3%
meiri að framkvæmdunum loknum. Fram-
Hugsanlegt
Raforkukerfi
Norður-Atlantshafs (
Staða snemma á 21. öld
fli&
Hugsanleg lega sæstrengs
frá Islandi um Færeyjar og Hjaltland
til meginlands Evrópu og Bretlands
þar sem hann myndi tengjast
dreifikerfum viðkomandi landa.
■
wÉimmSá
- •■■■■
kvæmdir af þessu tagi og undirbúningur
þeirra væri afar mikilvæg viðbót fyrir ís-
lenska tækni- og byggingamenn. Munur á
þjóðarframleiðslu yrði minni eða um 1,4%
í lok tímabilsins. Erlendar skuldir verða í
lok framkvæmdatímans um 8 prósentust-
igum hærri en í viðmiðunardæminu, mælt
sem hlutfall af landsffamleiðslu. Það fer
þó eftir hvemig eignarhaldi yrði hagað.
12. Til þess að tryggja að þjóðarbúið
hafi eðlilegar tekjur af útflutningi raforku
um sæstreng er bent á leyfisgjald fyrir
virkjunarrétt auk venjulegrar skattlagning-
ar.
Stefna um útflutning raforku um
sæstreng
Stefnumótun af íslands hálfu um út-
flutning raforku um sæstreng þarf meðal
annars að taka mið af eftirfarandi atriðum:
1. Forathuganir benda til þess að útflutn-
ingur raforku um sæstreng sé tæknilega
fær leið til að nýta orkulindir Islands. Þess
vegna er mikilvægt að kanna vandlega
hvort slíkur útflutningur þjóni íslenskum
hagsmunum, skili viðunandi arði í saman-
burði við aðra fjárfestingarkosti og hvort
samstaða náist um að nýta orkulindimar á
þennan hátt.
2. Útflutningur raforku um sæstreng er
svo umfangsmikið verkefni að Ieita þarf
nýrra leiða um eignarhald á virkjunum og
sæstreng. Aðild traustra, erlendra aðila
virðist nauðsynleg forsenda þess að ráðist
verði í verkefnið.
3. Gjald fyrir virkjunarrétt - virkjunar-
leyfi - virðist vera heppilegur farvegur til
að tryggja tekjur íslenska þjóðarbúsins af
útflutningi orku um sæstreng. Til að
treysta gmndvöll slíks gjalds er nauðsyn-
legt að setja löggjöf um eignarrétt á orku-
lindum þjóðarinnar - fallvatna og háhita-
svæða.
4. Tenging með sæstreng við raforku-
kerfi annarra þjóða myndi meðal annars
auka öryggi í orkubúskap landsins og
stuðla að betri nýtingu innlendra orku-
vera.
5. Undirbúningskostnaður er svo mikill
að leita þarf eftir þátttöku erlendra sam-
starfsaðila til þess að taka þátt í honum,
m.a. með stofnun sérstaks undirbúningsfé-
lags.
6. Hérlendir aðilar að undirbúningsfé-
lagi yrðu iðnaðarráðuneyti, Landsvirkjun
og markaðsskrifstofa þeirra. Leitað yrði
eftir þátttöku evrópskra orkufyrirtækja,
Evrópubandalagsins og annarra áhuga-
samra aðila um þessar framkvæmdir, þar á
meðal framleiðenda búnaðar.
7. Meta þarf þær athuganir sem þegar
hafa verið gerðar á vegum iðnaðarráðu-
neytisins, Landsvirkjunar, Markaðsskrif-
stofunnar og annarra opinberra stofnana
sem ífamlag til undirbúningsfélags.
8. Þátttaka í undirbúningsfélagi myndi
með fyrirfram umsömdum hætti skapa
rétt til þátttöku í sæstrengsfyrirtæki ef úr
því verður.
9. Með markvissum undirbúningi og
skipulagi á virkjún orkulindanna verði
dregið úr áhrifum framkvæmda á um-
hverfið eins og kostur er. Fram fari vandað
umhverfismat á verkefninu í heild þar sem
einnig verði tekið tillit til áhrifa raforku-
innflutnings á umhverfi í öðrum löndum,
þar með talin áhrif sem koma öllum jarð-
arbúum að gagni.
10. Víðtæk kynning fari tímanlega fram
á virkjunaráformum einkum meðal íbúa
þeirra landshluta þar sem virkjunum og
mannvirkjum þeim tengd er ætlaður stað-
ur.
11. Mörg rök mæla með því að sæ-
strengsfyrirtækið - eignarhaldsfélagið -
eigi heimili utan íslands. Ekki er ástæða til
að nýta lánstraust íslands vegna þessara
framkvæmda nema að mjög takmörkuðu
leyti.
12. Á vegum iðnaðarráðuneytisins verði
hafist handa um nauðsynlegan undirbún-
ing vegna stofnunar undirbúningsfélags
um útflutning raforku."