Alþýðublaðið - 11.05.1993, Qupperneq 5
Þriðjudagur 11. maí 1993
Reynslusveitarfélög samþykkt á Alþingi
5
Fá f jölmörg verk-
efni til reynslu
Verið að tala um t.d málefni fatlaðra, öldrunarþjónustu,félagslegar íbúðir og jafnvel rekstur sjúkra-
húsa og framhaldsskóla þar sem það á við
Hönnunarsamkeppni
um nýbyggingu
Hæstaréttar Islands
Alþingi samþykkti tillögu um undir-
búning þess að stofnsett verði hér á landi
sérstök reynslusveitarfélög. „Pað er
heimild til þess að undirbúa stofnun 5
reynslusveitarfélaga sem starfi í fjögur
ár, frá 1994 til 1998“, sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir, félagsmálaráðherra, í sam-
tali við Alþýðublaðið.
Jóhanna segir að þessi reynslusveitarfé-
lög muni fá til sín fjölmörg verkefni til
reynslu á ýmsum sviðum eftir þvf sem um
semst milli viðkomandi sveitarfélags og
nefndar af hálfu ríkisins sem mun fara í
þetta mál. Það sé verið að ræða um stóra
málaflokka sem farið gætu til sveitarfélag-
anna.
Félagsmálaráðherra segir að Hafnarfjörð-
ur, Akranes, sveitarfélög í Austur-Skafta-
fellssýslu og fleiri hafi lýst áhuga sínum á að
verða reynslusveitarfélög. Þá hafa einstakir
sveitarstjómarfulltrúar lýst áhuga og fyrir-
spumir borist úr einstökum hémðum. Það
verður lögð áhersla á að sveitarfélög sem
em að sameinast fái að verða reynslusveitar-
félög. Gert er ráð fyrir að reynslusveitarfé-
lag hafi í það minnst 1.000 íbúa.
„Hér er verið að tala um t.d málefni fatl-
aðra, öldrunarþjónustu, félagslegar íbúðir
og jafnvel rekstur sjúkrahúsa og framhalds-
skóla þar sem það á við auk meira frjálsræð-
is í nýtingu á tekjustofnum", segir Jóhanna.
Jafnframt er stefrit að því að grunnskólinn
færist alfarið yfir til sveitarfélaganna frá 1.
ágúst 1995. Hvaða verkefni fæm umfram til
reynslusveitarfélaganna sagði Jóhanna að
væri hins vegar samningsatriði í hverju til-
felli.
Dómsmálaráðherra efnir til hönnunarsamkeppni um nýtt dómhús Hæstaréttar ís-
lands.
Rétt til þátttöku hafa félagar í Arkitektafélagi íslands og aðrir arkitektar, sem
áunnið hafa sér réttindi til að leggja aðalteikningar fyrir byggingamefndir.
Dómnefnd skipa:
Steindór Guðmundsson, forstöðumaður Framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar
ríkisins, formaður.
Dagný Leifsdóttir, deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu.
Hrafii Bragason hæstaréttardómari.
Garðar Halldórsson, húsameistari ríkisins.
Tryggvi Tryggvason arkitekt.
Þjóðleikhúsið—Litla sviðið
Lokasýningar á Stund
gaupunnar
Nú fer hver að verða síðastur að sjá Stund gaupunnar, eftir Per
Olov Enquist, sem hefur verið til sýningar á Litla sviði Þjóðleik-
hússins í vetur. A morgun er næstsíðasta sýning en lokasýning leik-
ritsins verður á föstudaginn.
Leikritið gerist á geðsjúkrahúsi og fjallar um ungan pilt sem búið
er að loka inni fyrir lífstíð en hann hefur myrt miðaldra hjón að því
er virðist að tilefnislausu og síðan margoft reynt að fyrirfara sér.
Ungi pilturinn er leikinn af Ingvari E. Sigurðssyni en auk hans
koma mjög við sögu prestur sem leikinn er af Guðrúnu Þ. Stephen-
sen og ung kona sem haft hefur mál piltsins til meðferðar og er leik-
in Lilju Þórisdóttur.
I stund gaupunnar er dregin upp margræð mynd af mannlegum
samskiptum, velt upp trúarlegum og siðferðilegum spumingum
sem leita á og krefjast hugsunar en engin einhlít svör eru til við,
spumingar sem halda áffam að leita á löngu eftir að leiksýningu er
Ingvar E. Sigurðsson og Guðrún Þ. Stephensen í hlutverkum sínum
loki, segja aðstandendur leiksins. Gagnrýnendur blaðanna luku upp
miklu lofsorði um verk þetta.
Ritari:
Guðjón Magnússon, arkitekt FAÍ.
Ráðgjafar dómnefndar:
Garðar Gíslason hæstaréttardómari.
Stefán Hermannsson borgarverkfræðingur.
Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðumaður Borgarskipulags.
Trúnaðarmaður:
Olafur Jensson forstöðumaður.
Heimasími: 39036, heimafax: 682038.
Vinnusími: 628910, vinnufax: 628920.
Verðlaunafé er samtals kr. 2.400.000,-
Þar af em 1. verðlaun ekki lægri en 1.200.000,-. Auk þess er dómnefnd heimilt að
kaupa tillögur fyrir allt að 600.000,-.
Trúnaðarmaður afhendir samkeppnisgögn í Aðalstræti 2 (gamla Geysishúsinu)
gegn 5000,- kr. skilagjaldi frá og með miðvikudeginum 12. maí 1993 og skal skila
tillögum á sama stað eigi sfðar en þann 6. júlí 1993 kl. 18.00 að íslenskum tíma.
Dómnefnd
SAMSKIPTI, FROÐLEIKUROC FJOR
- spennandi sumarnám URKI
Viltu gefa barninu þínu kost á aö sameina leik, nám og störf meö uppbyggilegum hætti í sumar?
Ungmennahreyfing Rauöa kross íslands býöur fjölbreytt námskeið þar sem áhersla er lögð á ræktun hugar,
handar og lands á skemmtilegan hátt. Námskeiðin eru í Reykjavík, á Snæfellsnesi, í Þórsmörk og á Austurlandi
MANNÚÐ OG MENNING1
- Leikur-nám-starf fyrir 8-10 ára
Námskeiöin sem haldin eru í
Reykjavík eru blanda af gamni og
alvöru. Þátttakendur kynnast
hugsjónum Rauöa krossins, vinna
skemmtileg verkefni og fara í
skapandi leiki. Fjallað er um ólíka
menningu og líf fólks í fjarlægum
löndum. Undirstöðuatriöi skyndi-
hjálpar kennd og farið í gróöur-
setningar- og skemmtiferðir.
Sérstök rækt lögð við jákvæð
samskipti.
Þátttakendur: Börn fædd 1983 og
1984.
Þátttökugjald: 6000 kr., efnis- og
ferðakostnaður innifalinn.
Námskeiðin standa í tvær vikur frá
kl. 9.00-16.00.
1. námskeið 1. júní -11. júní.
2. námskeið 14. júní - 25. júní.
3. námskeið 28. júní - 9. júlí.
4. námskeið 12. júlí - 23. júlí.
MANNÚÐ OG MENNING 2
- sumarbúðir fyrir 10-12 ára
Sumarbúðir á Snæfellsnesi 25. -
30. júlí með svipaðri dagskrá og á
MANNÚÐ OG MENNING 1.
Fjöldi þátttakenda 15. Tveir
leiðbeinendur.
Þátttökugjald: 11000 kr., með
ferðum og uppihaldi.
MANNÚÐ OG MENNING 3
- námskeið í Breiðdal
Námskeiðin eru ætluð 9-12 ára
börnum, foreldrum þeirra og yngri
systkinum. Dvalist í fallegu
umhverfi á Staðarborg í Breiðdal.
Dagskráin er með sviþuðu sniði og
á MANNÚÐ OG MENNING 1 & 2.
Þátttakendur þurfa að hafa með sér
fatnað fyrir allar aðstæður, rúmföt
eða svefnpoka, veiðistöng og
eitthvað af persónulegum
leiktækjum, bolta, sippuband o.þ.h.
Hámarksfjöldi þátttakenda er ca 15
börn. Leiðbeinendur eru tveir ásamt
aðstoðarfólki og foreldrum.
Þátttökugjald: 11000 kr., á barn og
5000 kr., fyrir foreldri en foreldrar
og skyldmenni geta greitt niður
gjald barnsins að einhverju leyti
með vinnuframlagi. Afsláttur fyrir
systkini.
1. námskeið 4. júlí -10. júlí.
2. námskeið 11. júlí -17. júlí.
3. námskeið 18. júií - 24. júlí.
Skráning á þetta námskeið í síma
97-56637 milli 19 og 21 virka
daga.
ÞÓRSMÖRK
- leikur-nám-starf fyrir 13-15 ára og
16-18 ára
Námskeiðin eru haldin í stórbrotinni
náttúrufegurð Þórsmerkur. Unnið
að landgræðslu og skógrækt og
farið í gönguferðir. Grundvallaratriði
RKÍ kynnt ásamt fróðleik um ólíka
menningarheima. Fræðst um flóru
Þórsmerkursvæðisins, náttúru þess
og sögu. Farið í leiki og haldnar
kvöldvökur með óvæntum uppá-
komum. Sérstök áhersla lögð á
samvinnu og jákvætt hugarfar.
Gist í Ferðafélagsskálanum í
Langadal.
Hámarksfjöldi þátttakenda 16.
Þátttökugjald: 8000 kr., með ferðum
og uppihaldi.
Nauðsynlegt að hafa með sér
góðan fatnað og hreinlætisvörur.
Námskeið fyrir 13-15 ára:
1. námskeið 1. júní - 5. júní.
2. námskeið 7. júní -11. júní.
3. námskeið 14. júní -18. júnf.
4. námskeið 21. júní - 25. júní.
Námskeið fyrir 16-18 ára:
28. júní- 2. júlí.
Skráning á öll námskeiðin nema
námskeiðiö í Breiðdal fer fram í
síma 91 - 62 67 22 fyrir 28. maí