Alþýðublaðið - 13.05.1993, Page 4

Alþýðublaðið - 13.05.1993, Page 4
4 Fimmtudagur 13. maí 1993 Miklar breytingar hafa orðið í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu frá því að kommúnisminn hrundi. Samskipti ís- lands og þessara ríkja hafa því farið í nýja farvegi. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra skýrði Alþingi frá stöðu þessara máli í skýrslu til Alþingis fyrir skömmu og birtum við hér kafla úr skýrslunni sem fjallar sérstaklega um samskipti Islands við fyrrum ríki Var- sjárbandalagsins. Samskipti Islands og Rússlands hafa ver- ið vinsamleg. Stjómmálaástandið í Rúss- landi og breytingar á viðskiptum ríkjanna hafa þó sett þessum samskiptum þrengri skorður en ella. Þótt enn hafi ekki gefist tækifæri til beinna viðræðna íslenskra og rússneskra ráðamanna, hafa íslensk stjóm- völd tekið þátt í samráði og aðgerðum vest- rænna ríkja til aðstoðar nýfrjálsum ríkjum í Mið- og Austur-Evrópu, þar á meðal Rúss- landi, innan hins svokallaða 24ra landa samstarfs. Kanna þarf sérstaklega nteð hvaða hætti má auka samskipti íslands og Rússlands með það fyrir augum að Island geti stutt frekar við bakið á lýðræðisþróun- inni í Rússlandi. Á árinu 1992 vom haldnar ráðstefnur f Washington, Lissabon og Tókýó að frum- kvæði Bandaríkjastjómar til þess að hvetja til og samræma aðstoð við fyrrverandi Sov- étlýðveldi. Ríkisstjóm fslands ákvað að veita sautján milljónir króna á síðasta ári í aðstoð. Stofnanir, fyrirtæki og félög á fs- landi lögðu fram svipaða upphæð. Stórum hluta framlags ríkisstjómarinnar var varið til tækniaðstoðar við sjávarútveg á Kamt- sjatka. Æskilegt er að ísland taki þátt f að festa í sessi lýðræði og markaðshagkerfi í Rússlandi með aðstoð af þessu tagi. Viðskiptafrelsi í stað miðstýringar Hvað varðar viðskipti ríkjanna tveggja, hafa endalok miðstýringarinnar þegar haft áhrif á þá tilhögun sem hefur verið við lýði í marga áratugi. Viðskiptafrelsi í stað mið- stýrðrar ríkisverslunar gerir nýjar kröfur til þeirra sem vilja stunda viðskipti í Rúss- landi, en skapar jafnframt nýja möguleika. Sá vaxtarbroddur sem gefur sérstakt tilefni til bjartsýni í viðskiptum íslands og Rúss- lands er samstarf á sviði orkumála, þar með talinn undirbúningur jarðhitaveitu á Kamt- sjatka; Samvinna í sjávarútvegi er á frum- stigi. íslensk fyrirtæki gætu hugsanlega lát- ið í té vel búin skip, tækni- og markaðs- þekkingu, ef viðunandi lausn finnst varð- andi greiðslufyrirkomulag, til dæmis við Kamtsjatka og í Barentshafi. Viðskiptabók- un ríkjanna tveggja féll úr gildi um síðustu áramót, en hefur nú verið framlengd til ára- móta. Rétt kjörnir leiðtogar veiti Rúss- landi forystu Þótt litið hafi verið á Jeltsín forseta Rúss- lands og ríkisstjóm hans sem persónugerv- ing umbótastefnunnar er ekki þar með sagt að umbætur standi og falli með þessum ein- staklingum. Á hinn bóginn skiptir miklu að réttkjömir leiðtogar, sem sannanlega hafa umboð þjóðarinnar, veiti Rússlandi forystu í erfiðum hamskiptum frá kommúnísku al- ræði til lýðræðis og markaðshagkerfis. Ef ekki tekst fljótlega að leysa stjómarfarsleg- tu' deilur og höggva á þann hnút sem tor- veldar róttækar efnahagsaðgerðir, er alls óvíst hvað gerast kann í Rússlandi. Ekki er hægt að útiloka almenna upp- lausn og átök, sem gætu haft afdrifaríkar af- leiðingar um alla heimsbyggðina. Þrátt fyr- ir að afturhaldsöfl í Rússlandi hafi styrkst mjög á undanförnum mánuðum er víst að ekki verður aftur horfið til þess ástands sem ríkti á valdatímum kommúnista. Á hinn bóginn er óljóst hvað við tekur. Ekki verður gengið að því vísu að það verði lýðræði og frjálst markaðshagkerfi að vestrænni fyrir- mynd. Fundur Jeltsins og Clintons Banda- ríkjaforseta í Vancouver og þjóðaratkvæða- greiðslun í Rússlandi síðar í þessum mánuði vekja nokkrar vonir um að Rússar geti sigr- ast á fyrmefndum vandamálum. Sjálfstæði og fullveldi viðurkennd Island viðurkenndi sjálfstæði og fullveldi allra aðildarríkja Samveldis sjálfstæðra ríkja í byrjun liðins árs. Stofnað hefur verið til fonnlegs stjómmálasambands við Úkra- ínu og Georgíu. Sú stefna var mörkuð í upphafi að láta ákvörðun um stjómmála- samband við samveldisrfkin, önnur en Rússland, einkum ráðast af möguleikum á sviði viðskipta eða annarra áþreifanlegra samskipta. fslensk sérþekking á nýtingu jarðhita get- ur komið að góðum notum í samveldisri'kj- unum. Auk Rússlands hafa Úkraína, Ar- menía og Georgía látið í Ijós áhuga á sam- vinnu við íslendinga á þessu sviði. Þess má

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.