Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 13. maí 1993 skiptin við Rússland. Mjög hefur verið lagt að rússneskum stjómvöldum á alþjóðavettvangi að ljúka samningum við öll Eystrasaltsríkin um ásættanlega áætlun um brottflutning rúss- nesks herliðs. Vonast er til að brottflutning- ur rússnesks herliðs frá Eystrasaltsríkjunum haldi áfram, þrátt fyrir yfirlýsingu stjóm- valda í Moskvu nýlega um að brottflutning- ur hafí verið stöðvaður sökum húsnæði- seklu í Rússlandi. Einstök ríki hafa staðið að fjölþjóðlegu samráði um hvemig hugs- anlega væri hægt að auðvelda brottflutning- inn með efnahagsaðstoð, ekki síst fjárveit- ingum tii byggingar íbúðarhúsnæðis. ís- lensk stjómvöld hafa tekið undir áskoranir um umsaminn, en skilyrðislausan brott- flutning rússnesks herliðs frá Eystrasalts- ríkjúnum. Vestræn ríki, þar á meðal ísland, hafa algerlega hafnað óbeinni tengingu rússneskra stjómvalda á milli brottflutnings og réttinda rússneskra minnihlutans í ríkj- unum þrernur. Island og önnur Norðurlönd hafa gengið frá tvísköttunarsamningum við Eystrasalts- ríkin þrjú og undirbúningur er hafinn að gerð fríverslunarsamnings við þau einnig. Mismunur ríkja Austur-Evrópu kemur æ betur í Ijós Þótt öll ríki Mið- og Austur-Evrópu hafí virst vera órofa heild á tímum kalda stríðs- ins, ofurseld sovéskri yflrdrottnun og mið- stýrðu hagkerfi í rúmlega tjóra áratugi, kemur stjómmálalegur, efnahagslegur og menningarlegur munur þeirra í millum æ betur í Ijós. Aðlögun þessara ríkja að lýð- ræði og markaðshagkerfi verður óhjá- kvæmilega misjöfn að umfangi og tíma, en miklu skiptir fyrir öll ríki álfunnar að múr velmegunar og öryggis komi ekki í stað jámtjaldsins sem fyrir var. Samskipti íslands við ríki Mið- og Aust- ur-Evrópu hafa löngum fyrst og fremst ver- ið á sviði viðskipta, en verulega hefur dreg- ið úr þeim frá því sem var. ísland á eftir sem áður gott samstarf við þessi ríki innan al- þjóðlegra og IJölþjóðlegra stofnana og sam- taka. Öryggismál eru ofarlega á baugi víðast hvar í Mið- og Austur-Evrópu. Endalok Varsjárbandalagsins og upplausn Sovét- ríkjanna skildu þar eftir tómarúm sem flest ríkin á svæðinu reyna nú að eyða, í krafti samvinnunar innan Norður-Atlantshafs- samstarfsráðsins og Ráðstefnunnar um ör- yggi og samvinnu í Evrópu, fremur en með svæðisbundinni vamarsamvinnu. Nú og í næstu framtíð verða næg tilefni í Mið- og Austur- Evrópu til deilna og jafhvel átaka, sem erfitt gæti reynst að reisa skorður við. Þar koma meðal annars við sögu staða þjóðemisminnihluta, landamæri og nýting náttúruauðlinda, að ónefndum afleiðingun- um af styrjöldinni í fyrrverandi Júgóslavíu og erfiðri sambúð Sovétlýðveldanna fyrr- verandi. Einnig stendur flestum fyrrverandi bandalagsríkjum Sovétríkjanna stuggur af hugsanlegri valdatöku kommúnista eða öfgasinnaðra þjóðemissinna í Rússlandi. Miklu skiptir því að það takist að brúa bilið til meiri stöðugleika með friðsamlegum hætti. Norður-Atlantshafssamstarfsráðið fslensk stjómvöld hafa á undanfömum ámm talið eðlilegt og æskilegt að Atlantshafsbandalagið stofnaði til samskipta við fyrrverandi aðildarríki Var- sjárbandalagsins á sem flestum sviðum. Því var Island frá upphafi fylgjandi tillögunni um stofnun Norður- Atlantshafssamstarfs- ráðsins (NACC) og hefur síðan hvatt til þess að samstarfið yrði eflt í áföngum. Auk fyrram Varsjárbandalagsríkja hefur Alban- íu nú verið veitt aðild og Finnlandi áheym- araðild. Starfsáætlun Norður-Atlantshafssam- starfsráðsins er umfangsmikil og kveður á um samstarf á sviðum öryggis- og vamar- mála, efnahagsmála, vísinda og rannsókna, umhveifismála og upplýsinga. I áætluninni fyrir þetta ár er sameiginleg friðargæsla eitt þeirra verkefna sem vonir em bundnar við að geti leitt til nánari tengsla bandalagsins og samstarfsríkjanna á sviði hermála. Þrátt fyrir að stofnun Norður-Atlants- hafssamstarfsráðsins komi unt tíma til móts við þarfir ríkja í Mið- og Austur-Evrópu, er nauðsynlegt að ráðið öðlist annan og meiri tilgang. Meðan bandalagið er ekki tilbúið að koma til móts við ríki þessi með örygg- isskuldbindingar eða gera greinarmun á einstökum samstarfsríkjum er ekki raun- hæft að gera ráð fyrir að þau láti sér nægja til frambúðar að ráðið sé biðstofa hugsan- legrar aðildar að bandalaginu. Hafl Norður- Atlantshafssamstarfsráðið einungis óbein áhrif á öryggismál í Evrópu er sennilegt að sunt samstarfsríkjanna í Mið- og Austur- Evrópu leggi aukna áherslu á bein tvíhliða samskipti við Atlantshafsbandalagið. 'f* Þótt litið hafi verið á Jeltsín forseta Rússlands og ríkisstjórn hans sem persónugerving umbótastefnunnar er ekki þar með sagt að umbætur standi og falli með þessum einstaklingum. vænta að víðtæk samvinna geti tekist á komandi ámm, þannig að íslenskir sérfræð- ingar taki þátt í að flýta jarðhitanýtingu í samveldisríkjunum. Nú þegar liðið er á annað ár frá því að Samveldi sjálfstæðra ríkja var stofnað og þrátt fyrir nokkrar væntingar í upphafi hef- ur það enn ekki orðið meira en mjög laus- tengt ríkjabandalag. Aðildarríkin eiga öll við risavaxna stjómmálalega og efnahags- lega örðugleika að. strfða. Ekki bætir úr skák að tvíhliða samskipti einstakra sam- veldisríkja em mjög misjöfn. Yfirráð Krímskaga og afvopnun Rússland og Úkraína komust að sam- komulagi um skiptingu Svartahafsflotans í fyrra, en deilan um yfirráð yfir Krímskaga er enn óleyst. Það sem veldur jafnvel enn meiri áhyggjum, innan samveidisins sem utan, er tregða úkraínskra stjómvalda til að leyfa flutning á langdrægum kjamaflaugum frá Úkraínu til Rússlands, þrátt fyrir fyrri skuldbindingar um það efni. Samkvæmt Minsk-samkomulaginu á síðasta ári voru öll skammdræg kjamavopn flutt frá Úkra- ínu tii Rússlands, en unt þriðjungur allra langdrægra kjamaflauga Sovétríkjanna fyrrverandi er enn í Úkraínu, í trássi við svonefnt Lissabon-samkomulag, sem Ka- sakstan og Hvíta-Rússland stóðu einnig að. Úkraína hefur ekki fullgilt samninginn gegn útbreiðslu kjamavopna eða START I samninginn um takmörkun langdrægra kjamavopna. Margt bendir til að Úkraínustjóm reyni að nota kjamavopnin sem tromp á hendi í samskiptum við Rússland og Vesturlönd, einkum Bandaríkin. Vestræn ríki, sem hafa heitið umtalsverðu fjármagni til aðstoðar við eyðingu kjamavopna og endurþjálfunar vísindamanna í samveldisríkjunum, leggja mikla áherslu á að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kjamavopna. Því gæti ákvörðun Úkraínu um að virða að vettugi umsamdar skuldbindingar, til skemmri eða lengri tíma, haft mjög neikvætt fordæmisgildi. Sérstök tengsl við Eystrasaltsríkin Stuðningur íslenskra stjómvalda við bar- áttu Eystrasaltsríkjanna fyrir endurheimt sjálfstæðis og fullveldis á árunum 1990- 1991 hefur valdið því að sérstök tengsl hafa myndast á rnilli Islands og ríkjanna þriggja. Þetta endurspeglaðist meðal annars í ný- legri heimsókn Brazauskas forseta Litháens hingað til lands. Áframhaldandi stuðningur vinveittra ríkja getur ráðið úrslitum um hvort takast muni að renna nægilega styrk- um stoðum undir sjálfstæði Eystrasaltsríkj- anna. . íslensk stjómvöld hafa af fremsta megni reynt að aðstoða Eystrasaltsríkin við að hefja þátttöku í alþjóðlegu og fjölþjóðlegu samstarfl, meðal annars með því að kynna þeim rekstur og skipulag utanríkisþjónust- unnar. Einnig hafa Norðurlöndin verið samtaka í aðstoð við ríkin þrjú, til dæmis með því að standa straum af þátttöku þeirra í starfsemi Ráðstefhunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu í Vínarborg á síðasta ári. Island veitti Eystrasaltsríkjunum eina milljón Bandaríkjadala í greiðslujafnaðar- aðstoð. Þá hafa stjómvöld staðið að þjálfun og námskeiðum fyrir fjölda einstaklinga frá ríkjunum þremur, þar á meðal með styrk- veitingum til náms við Háskóla Islands og þjálfun í stjómun fyrirtækja. Síðastnefnda verkefnið var einnig styrkt af íslenskum fé- lögum og fyrirtækjum. Einnig hafa verið veittir styrkir vegna hugsanlegra samstarfs- verkefna, til stofnunar lyfjaverksmiðju í Litháen, til rannsókna á jarðvarma og til ráðgjafar um flugöryggismál. Fjármálaráð- herrar Norðurlanda undirrituðu samkomu- lag í Helsinki um fjárfestingaáætlun fyrir Eystrasaltsríkin í þeim tilgangi að aðstoða þar lítil og meðalstór fyrirtæki. Samkvæmt áætluninni verður varið meira en sjö og hálfum milljarði íslenskra króna til fjárfest- inga í formi ábyrgða á lánum sem renna til ríkjanna og hefur meðal annars verið leitað til Evrópubankans (EBRD) og Norræna fjárfestingarbankans í því skyni. Olíkar aðstæður og hagsmunir Eystrasaltsríkjanna Af skiljanlegum ástæðum hefur verið til- hneiging á Vesturlöndum á undanfömum árum til að spyrða saman Eystrasaltsríkin þrjú og móta heildarstefnu gagnvart þeim, þó í raun séu ólíkar aðstæður og hagsmunir í hverju ríki. Þetta er meðal annars afleiðing af nauðsynlegri samstöðu Eystrasaltsríkj- anna meðan þau vom að brjótast undan sovéskum yfirráðum og af landfræðilegri og efnahagslegri smæð þeirra. Nú, um tveimur ámm eftir að ríkin þrjú öðluðust fullt sjálfstæði á ný, fer hvert þeirra í aukn- um mæli eigin leiðir. Tvíhliða samskipti þeirra við önnur ríki em að komast í fastari skorður. Eftir sem áður eiga Eystrasaltsrík- in sameiginlegra hagsmuna að gæta á sviði öryggismála, einkum hvað varðar sam- Jón Baldvin Hannibalsson í heimsókn í Ungverjalandi haustiíí 1989.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.