Alþýðublaðið - 20.05.1993, Side 4
4
45. Iðnþing íslendinga:
Fimmtudagur 20. maí 1993
„IÐNAÐUR GEGN
ATVINNULEYSI"
Landssamband iðnaðarmanna (L.i.) eru samtök atvinnurekenda í iðnaði. Innan vébanda þeirra eru um 3.200félagar.
s
Æðsta stofnun L.i. er Iðnþing Islendinga, haldið á 2 ára fresti. Kjörorð þingsins nú má sjá í fyrirsögn þessarar greinar.
s
A þinginu munu ráðast niðurstöður viðrœðna sem átt hafa sér stað undanfarið um sameiningu samtaka iðnaðarins.
Alþýðublaðið spjallaði við Inga Boga Bogason, kynningarstjóra L.i., um komandi
s
45. Iðnþing Islendinga, 21.-22. maí, 1993. Ingi Bogi:
„Á Iðnþinginu sem haldið verður
næstkomandi föstudag og laugardag
verður tekist á um mikilvægari mál en
oft áður. Bæði eru það málefni sem lúta
að innra skipulagi L.i. og einnig atriði
sem lúta að afstöðu til ytri breytinga í
málefnum íslensks iðnaðar. Síðastliðið ár
hafa staðið yfir viðræður milli Lands-
sambnnds iðnaðarmanna, Félags ís-
lenskra iðnrekenda, Félag íslenska
prentiðnaðarins og Verktakasambands
Islands um sameiningu þessara samtaka
í ein heildarsamtök. ÖIl samtökin, að
Landssambandi iðnaðarmanna undan-
skildu, hafa nú þegar samþykkt slíka
sameiningu. Sameiningarmálin verða til
umræðu á þessu þingi og endanleg af-
staða til þeirra verður tekin þar.
Nú af öðrum málum má segja frá því að
ný stefnuskrá Landssambands iðnaðar-
manna verður afgreidd á þinginu og má
segja að þar kveði við nýjan tón í mörgum
málum, ekki síst vegna margháttaðra breyt-
inga á alþjóðlegum vinnumarkaði. Stefnu-
skrá 45. þingsins er yfirgripsmikil og tekur
hún jafht til efiiahagsmála, atvinnumála,
utanríkisviðskipta, menntamála og þróun-
ar- og tæknimála.“
Á hvað verða helstu áherslurnar lagð-
ar?
„Varðandi sérstaka áherslupunkta í um-
fjöllun þingsins þá er þar fyrst að nefna
jafnrétti atvinnuveganna. Það er löngu orð-
ið tímabært að íslenskum iðnaði verði sköp-
uð réttmæt skilyrði.
Efnahags- og gengismál?
„I sambandi við efnahags- og gengismál-
in þá telur L.i. að festa í gengismálum sé
æskileg og nauðsynleg, en sú festa fær þó
ekki staðist nema um sé að ræða aga á öðr-
um sviðum efnahagsmála. Til lengdar verð-
ur gengisskráning að miðast við að jafn-
vægi sé haldið í utanríkisviðskiptum sem
og að treysta stöðugleika í verðlags-, geng-
is- og launamálum. Þá er löngu kominn
tími til að viðurkenna að gengisstefnan þarf
að taka mið af því að sjávarútvegurinn hef-
ur gjaldfrjálsan aðgang að mikilvægustu
auðlind þjóðarinnar."
Atvinnumálin?
„Þegar við horfum til atvinnumálanna er
það augljóst að það verður að skapa ný at-
vinnutækifæri, sérstaklega nú á tímum at-
vinnuleysis. Þau mál verður að skoða í ljósi
þess að á næstu sjö árum verður að skapa
tuttugu þúsund ný störf til að mæta eftir-
spuminni eftir atvinnu. Aldrei má sættast á
að telja atvinnuleysi eðlilegt hlutskipti til-
tekins hluta þjóðarinnar. Hér verður þróun
að taka við af öfugþróun."
Hvað með málefni unga fólksins?
„Innan L.i. hefur afstaðan til unga fólks-
ins sem er að koma út á vinnumarkaðinn
verið mikið rædd, bæði hvað snertir mennt-
un þess og atvinnumöguleika. Það verður
að gera þessu unga fólki kleift að standa á
áfram eigin fótum eins og hefur verið hing-
að til. Ungt fólk á íslandi hefur verið dug-
legt, það hefur staðið í framkvæmdum um-
fram það sem þekkist í öðmm löndum og
það verður að vera svo áfram. Dugnaði
unga fólksins má ekki týna niður. Það kem-
ur beint niður á iðnaðinum ef framkvæmdir
þess, til dæmis húsbyggingar, fara áfram
minnkandi."
Hvert er viðhorf L.i. gagnvart stóriðju?
„Já, stóriðjumálin. Það er skoðun L.i. að
Island hafi verið og verði alltaf smáfyrir-
tækjasamfélag, við erum það lítil þjóð.
Þetta er staðreynd sem stjómmálamenn og
samtök atvinnuvega, embættismenn og sér-
fræðingar og þjóðin öll raunar, verða að
viðurkenna. Það þarf að skapa íslenskum
Ingi Bogi Bogason, kynningarstjóri Landssambands iðnaðarmanna.
„Það þaifað byrja á því að
upplýsa þjóðina í heild mun
betur um iðnnámið. Hvað
það sé mikilvægt sé hugsað
til þjóðhagslegrar velferð-
ar. Lítum bara til þýska-
lands, þessa iðnaðarstór-
veldis. Þar Ijúka um
60-70% alls ungsfólks ein-
hverskonar iðnnámi á með-
an það hlutfall er aðeinsfá-
einar prósentur hér á
landi. “
fyrirtækjum þannig skilyrði í rekstri að tek-
ið sé mið af þessari staðreynd. Þetta þýðir
ekki að við séum að útiloka stóriðju, fjarri
því. Við þurfum að leita alls staðar eftir at-
vinnutækifærum og þurfum á öllu að halda
á þvf sviði. Einmitt þess vegna þarf að leita
markvisst að atvinnutækifæmm á sviði
orkufreks iðnaðar. En um leið og það er
gert verður að nýta þá möguleika sem upp-
bygging slíks iðnaðar gefur verktaka- og
þjónustugeiranum."
Geta ekki stóriðjan og minni iðnaður-
inn unnið betur saman?
„Tvímælalaust. Við verðum að leitast við
að samhæfa smáiðnaðinn og stóriðnaðinn
til að þetta geti þrifist hlið við hlið. Fara
verður í auknum mæli út í úrvinnslu á þeim
afurðum sem stóriðnaðurinn gefur af sér.
Þannig sköpum við fleiri atvinnutækifæri.
íslendingar mega ekki vera bara hráefnisút-
flytjendur og senda allt óunnið frá sér.“
Hvaða fíeiri stórmál verða til umfjöll-
unar á þinginu?
„Menntamálin verða tekin vel fyrir. Und-
anfarið hefur L.i. unnið mjög mikið í
menntamálunum og úttalað sig nokkuð um
þau. Það er nefnilega að verða nokkur við-
horfsbreyting í þessum málum og fullyrða
má að ungt fólk er farið að sjá að í menntun
tengdri iðnaði eru raunhæfir möguleikar
sem vert er að skoða. Bæði er það hvað
varðar almenna menntun og eins hvað
varðar starfsnámið sjálft, sérhæfingu í ein-
hverri ákveðinni grein iðnaðarins.1'
Vantar ekki markvissari iðnmenntun?
„Mikil ósköp. Það þarf auðvitað að laga
iðnnámið og gera það markvissara, reyndar
er nú þegar verið að gera það í mörgum iðn-
greinum. Þessi umræða innan L.i. tekur til
allra þátta iðnmenntunar. I áfangaskýrsl-
unni um mótun nýrrar menntastefnu er til
að mynda talað um svokallaða móðurskóla.
Sú hugmynd fjallar um að þessi móðurskóli
kenni allt innan vissrar iðngreinar, alveg frá
a til ö. Þannig næst fram betri sérhæfing,
dýpri kennsla og dýpra nám sem skilar von-
andi betri árangri."
Hver eru fyrstu skrefin til úrbóta, livað
til dœrnis með önnur lönd, hvernig hafa
þau farið að?
„Það þarf að byrja á því að upplýsa þjóð-
ina í heild mun betur um iðnnámið. Hvað
það sé mikilvægt sé hugsað til þjóðhags-
legrar velferðar. Lítum bara til þýskalands,
þessa iðnaðarstórveldis. Þar ljúka um
60-70% alls ungs fólks einhverskonar iðn-
námi á meðan það hlutfall er aðeins fáeinar
prósentur hér á landi. í Þýskalandi tíðkast
það að fólk fari í iðnnám en þegar því er
lokið nemur það ekki endilega staðar í námi
heldur fer áfram. Ungt fólk þar lýkur til að
mynda stúdentsprófi eftir iðnnámið og svo
fara margir til dæmis í tæknifræði eða verk-
fræði.“
Fjölbreyttari menntun skilar þá aukn-
um atvinnutœkifærum fyrir unga fólkið?
„Já, tvímælalaust. Fólk sem hefur slíka
menntun, svona breiða menntun eins og
tíðkast í Þýskalandi, er auðvitað miklu eftir-
sóttari starfskraftur. Enda hefur það farið
markvisst frá grunninum og upp úr og
þekkir þar af leiðandi viðkomandi iðngrein
út og inn. Hér á landi vantar meiri breidd í
menntun ungs fólks, að það nýti sér þá fjöl-
breytilegu möguleika sem þó eru fyrir
hendi f íslensku skólakerfi. Um leið þarf að
verða viðhorfsbreyting úti í þjóðfélaginu.
Þróun í þessa átt er reyndar nú þegar farin af
stað og fólk er smám saman að átta sig á
mikilvægi iðnnámsins, sem betur fer.“
Eitthvað að lokum?
„Já, mig langar aðeins að segja betur frá
sjálfri dagskrá þingsins. Það verður sett
með formlegri athöfn klukkan 11 á föstu-
daginn kemur. Haraldur Sumarliðason for-
seti L.i. og Jón Sigurðsson flytja þá ræður.
Síðar um daginn munu eftirtaldir fjalla um
kjörorð þingsins: Þröstur Ólafsson aðstoð-
annaður utanríkisráðherra talar um „For-
sendur iðnþróunar í sjávarútvegssamfé-
lagi“, Sveinbjöm Bjömsson háskólarektor
flytur erindið „Menntun og atvinna“ og
Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri
ræðir um „Sóknarstefnu í atvinnumálum'".
Seinni daginn fara síðan fram almenn þing-
störf og kosningar. Það eru rúmlega 300
fulltrúar og gestir sem sitja munu þetta 45.
Iðnþing íslendinga og koma þeir víðsvegar
að, bæði utan af landi og frá systursamtök-
um L.i. erlendis," sagði Ingi Bogi Bogason
kynningarstjóri L.i. að lokum f spjalli við
Alþýðublaðið. Blaðið óskar iðnaðarmönn-
um í L.i. allra heilla á þingi þeirra.