Alþýðublaðið - 20.05.1993, Blaðsíða 12
12
_______________________________________________________________________________________________ Fimmtudagur 20. maí 1993
'fimmtuhqM lú. mi f97
Atburðir dagsins
1347 Eftir að hafa áunnið sér traust alþýðunnai', með baráttu gegn aðlinum,
reynir leiðtoginn Cola di Rienzo að endurreisa Róm sem lýðveldi.
1588 Flotinn ósigrandi frá Spáni, vindur upp segl og siglir frá Lissabon í því
skyni að leggja undir sig England. 1609 Sonnettur Williams Shakespeares eru
geíhar út.
1802 Frakkar koma á þrælahaldi og verslun með þræla að nýju í nýlendum sín-
um.
1867 Viktoría drottning Englands leggur homsteininn að Albert Hall í Lond-
on.
18951 Bandaríkjunum er því lýst yfir að tekjuskattur sé andstæður stjómarskrá
landsins.
1939 Um 200 þúsund manns koma og skoða fyrstu Chelsea- blómasýninguna.
1939 Pan American Airways flýgur fyrsta áætlunarflug sitt milli Bandaríkj-
anna og Evrópu.
1970 Fyrsta kvikmynd Bítlanna er frumsýnd í London. Hún heitir Let it Be.
1989 Herlög í Peking í kjölfar mikilla mótmæla, ungt fólk kallar á endurbætur
í stjómskipun landsins.
Afmœlisdagar
William Thornton, 1759 Bandarískur arkitekt sem skapaði meðal annars
Capitol í höfuðborg landsins.
Honoré de Balzac, 1799 Franskur rithöfundur sem ritaði yftr 80 sögur undir
samheitinu La Comédie Humaine, eða hin mannlega grínsaga. Lýsti hann því
hvemig afl peninga og gróðahyggju gegnsýrir þjóðfélögin.
John Stuart Mill, 1806 Enskur heimspekingur, hagfræðingur og umbótamað-
ur.
William Fargo, 1818 Stofnandi og eigandi hins fræga Wells Fargo flutninga-
fyrirtækis í Bandaríkjunum.
James Stewart, 1908 Amerískur kvikmyndaleikari, einn hinna stærstu, fékk
Óskarsverðlaun fyrir The Philadelphia Story.
Cher, 1945Amerísk söng- og leikkona.
Spakmœli dagsins
Stríðin skella á vegna þess að það ent ekki nógu margir nógu hrœddir, sagði
Hugli Sconfield, breskur rithöfundur.
KÓLUMBUS DEYR f FÁTÆKT - Þennan dag fyrir 487 árum dó
landkönnuðurinn Kristófer Kólumbus, 55 ára gamall, sá sem fann
Ameríku, nokkur hundruð árum eftir Leifi heppna og Brendan hin-
um írska. Hann dó fullkomlega félaus og hélt enn að hann hefði
fundið Asíu 14 árutn fyrr. Spánska hirðin liafði ekki greidd honum
eyri fyrir að færa henni Nýja heiminn.
'föítuhýM 11. mí f97
Atburðir dagsins
1471 Hinrik konungur sjötti af Englandi deyr í Tower of London, sennilega
myrtur að undirlagi Játvarðar fjórða.
1542 Hemando do Soto, fyrsti Evrópumaðurinn til að fara yftr Mississippi
fljótið, deyr á bakaleiðinni. Hann var spánskur landkönnuður.
1840 Nýjasjáland er lýst bresk nýlenda.
1924 Tveir 19 ára piltar í Chicago ræna og myrða 14 ára dreng „sér til gam-
ans“. Báðir voru þeir synir milljónamæringa. Þeir játuðu á sig verknaðinn.
1966 Cassius Clay er enn sem fyrr besti hnefaleikari heims og sigraði Bretann
Cooper í 6. lotu þennan dag.
1975 Baader Meinhof skæmliðar koma fyrir rétt í Stuttgart.
1990 Israelskur hermaður tryllist og drepur sjö Palestínuaraba.
Afmœlisdagar
Albrecht Dúrer, 1471 Pyskur listmálari og fjöllistamaður.
Alexander Pope, 1688 Enskt skáld og háðsádeiluhöfundur sem þýddi kviður
Hómers.
Henri Rousseau, 1844 Franskur listmálari í flokki naívista, auk þess að vera
tollvörður.
Thomas „Fats“ Waller, 1904 Hinn frægi jasspíanisti og tónsmiður.
Andret Sakarov, 1921 Rússneskureðlisfræðingurog baráttumaður mannrétt-
inda. Hann vann til Nóbelsverðlauna árið 1965.
Spakmœli dagsins
Lávarðadeildin er gott dœmi um það hvernig annast á um eldri borgara, sagði
Frank Field, breskur pólitíkus á þessum degi 1981.
LINDBERG EINN YF-
IR ATLANTSÁLA-Það
var á þessum degi fyrir
67 árum sem Charles
Lindberg flaug einn síns
liös yfir Atlantshafið frá
Long Island í New York
og til Parísar. Um 100
þúsund manns fögnuðu
flugkappanum þegar
hann lenti flygildinu Spi-
rit of St. Louis. Flugtím-
inn var 33 klukkustundir
og 40 mínútur. Lindberg
vann þarmeð til hárra
verðlauna sem dagblað
eitt lofaði, 25 þúsund
Bandaríkjadala.
VL, mí 97
Atburðir dagsins
337 eftir Krist Konstantin hinn mikli, er skírður til kristni á dánarbeði sínum,
fyrstur rómverskra keisara. Fjórtán árum fyrr hafði hann sett lög um umburð-
arlyndi gagnvart kristnu fólki.
1865Þennan dag var forseti Suðurríkjanna, Jefferson Davis gripinn á flótta,
dulbúinn sem kona. Dálagleg verðlaun voru sett honum til höfuðs, 100 þúsund
dollarar. Andrew Johnson forseti norðurríkjanna hefur opinberlega ásakað Da-
vis um að eiga aðild að morðinu á Lincoin forseta.
1885 Franski rithöfundinurinn Victor Hugo deyr í París, 83 ára að aldri.
1908 Bræðumir Wilbur og Orville Wright fengu þennan dag einkaleyft á flug-
vél sinni, fjórum árum eftir hið sögulega flug þeirra í Kitty Hawk í Norður Kar-
ólínu. Flyer 1 flugvél þeirra flaug Ijórum sinnum, lengsta flugið var rétt um 260
metrar, en smám saman jókst vegalengdin og em flug þeirra farin að vara í 40
mínútur í 46 metra hæð eða meira.
1921 Fljúgandi Finninn, Paavo Nurmi, sem vann tvenn gullverðlaun á Ólymp-
íuleikunum í Antwerpen, setti heimsmet í 10 km hlaupi í Stokkhólmi í dag -
bætti metið um 18 sekúndur.
1974 Eftir að sjá og heyra Bmce Springsteen fyrsta sinni segir Jon Landau,
rokkgagnrýnandi: Ég sá rokk og ról framtíðina fyrir mér - og hún er Bmce
Springsteen. Rétt hjá honum.
1981 Peter Sutcliffe, kallaður Yorkshire Ripper, er dæmdur sekur í Old Bailey
í London um morð á 13 konum og tilraunir til að myrða sjö til viðbótar.
Afmœlisdagar
Richard Wagner, 1813 Þýskt tónskáld, meðal annars frægur fyrir hljómkvið-
una Niflungahringinn.
Sir Arthur Conan Doyle, 1859 Skoski rithöfundurinn sem skapaði leynilögg-
una Sherlock Holmes.
Laurence Oliver, 1907 Breskur stórleikari, frantleiðandi kvikmynda og leik-
stjóri. Fyrir störf sín var hann aðlaður af Englandsdrottningu, eini leikarinn
sem þann heiður hefur hlotið.
Spakmœli dagsins
Pað er auðvelt, - þú beygir bara til vinstri hjá Grœnlandi", sagði bítillinn
John Lennon í viðtali í Ameríku 1964, þegar hann var spurður: How do you
fmd America? (orðaleikur).
NIXON í MOSKVU - Þennan dag fyrir 21 ári kom Bandaríkjaforseti,
Richard Nixon, til Moskvu. Þetta var tímamótaviðburður, enda
fyrsta heimsókn Bandaríkjaforseta til landsins. Viðræður Nixons og
Brésnefs sovétleiðtoga urðu til þess að stefna Nixons um þíðu í við-
skiptum þjóðanna fór að bera ávöxt.
fuuuufaýumu ti. mí '9i
Atburðir dagsins
1795 í París binda hersveitir enda á uppþot sem verður vegna skorts á brauði.
(Til athugunar fyrir Baldur Hermannsson og aðra söguskýrendur).
1873 Hin fræga kanadíska riddaralögregla, The North West Mounted Police,
er stofnuð.
1887 Gimsteinar og djásn frönsku krúnunnar fara í sölu og fást sex milljónir
franka fyrir góssið.
1945 Heinrich Himmler, innanríkisráðherra Hitlers, fremur sjálfsmorð.
1960 Ben-Gurion, forsætisráðherra ísraels, tilkynnir að stríðsglæpamaðurinn
Adolf Eichmann hafi verið handtekinn og munu fara fýrir rétt í Israel. Eich-
mann stýrði dauðasveitum nasista í stríðinu og hafði á samviskunni dauða
milljóna gyðinga.
1991 Sex ára strák í Englandi eru dæmdar umtalsverðar bætur úr hendi slúður-
blaðsins The Sun. Blaðið hafði farið mörgum orðum um óknytti drengsins og
kallað hann mest óþekktarorm Bretlandseyja, en láðist að geta þess að dreng-
urinn var fáviti.
Afmœlisdagar
Carl Linnaeus, 1707 Sænski grasafræðingurinn sem kom á reglubundinni
flokkun á plöntum og dýrum.
Sir Charles Barry, 1795 Enskur arkitekt sem hannaði þinghúsið í London,
Houses of Parliament.
Douglas Fairbanks, 1883 Amerískur leikari sem sérhæfði sig í fífldjörfum at-
riðum.
Joan Collins, 1933 Bresk leikkona, sem sló fyrst í gegn fyrir alvöru í Dynasty-
þáttunum sem flestir þekkja úr sjónvarpinu.
Anatoly Karpov, 1951 Rússneski stórmeistarinn og fyrrum heimsmeistari.
Spakmœli dagsins
Það er ekkert hungur í Uganda. Efmaður er svangur getur maðurfarið inn í
skóginn og fengið sér banana, var haft eftir einvaldinum Idi Amin Dada sem
hrifsaði völdin í Uganda 1971. Þetta voru auðvitað öfugmœli hin mestu.
BONNIE OG CLYDE
DREPIN - þau voru
bankaræningjar og
morðingjar, sem kvik-
myndir hafa gert ódauö-
leg. Þennan dag árið
1934 létu þau lífið í
kúlnahríð þegar þau
gengu í gildru lögregl-
unnar í Louisiana. Þau
skötuhjúin hrelldu íbúa
suðvesturhluta Banda-
ríkjanna í fjögur ár,
drápu 12 manns og
rændu fjölmarga banka
og bensínstöðvar. Clyde
Barrow var 25 ára en
Bonnie Parker 23 ára.