Alþýðublaðið - 20.05.1993, Síða 16
K
G
K
G
L#TT#
.. alltaf á íuiövikudöguin
L#TT#
.. alltaf á iniövikudögimi
Aldarminning
Ásmundor
Eitt hundrað ár eru í dag liðin frá því að einn okkar merkustu
myndlistarmanna, Ásmundur Sveinsson, fæddist. Af því til-
efni verður opnuð sýningin „Náttúran í list Ásmundar Sveins-
sonar“ í Ásmundarsal við Sigtún.
Ásmundur fæddist á Kolstöðum í Dalasýslu þann 20. maí
1893 og hleypti heimdraganum 22 ára gamall. Nam hann tré-
skurð hjá Ríkharði Jónssyni í Reykjavík í fjögur ár, en dvaldi
síðan í Kaupmannahöfn frá 1919 til 1920, Stokkhólmi til 1926
og var þar nemandi eins fremsta myndhöggvara Svt'a á þeim
árum, Carl Milles. Síðar dvaldi Ásmundur nokkum tíma í Par-
ís, en alkominn til islands kom hann árið 1929 og starfaði allt
til dauðadags árið 1982.
Bóndasonurinn úr Dölunum höfðaði einatt til náttúrunnar í
verkum sínum, og hann taldi líka að náttúran ætti hlut í þeim
sköpunarkrafti sem í verkum hans má finna. „Allar þessar
myndireru vaxnar úr hafinu og Ijöllunum..segir listamaður-
inn á einum stað í Bókinni um Ásmund.
Vert er að benda fólki á að heimsækja Ásmundarsal og
skoða verk Ásmundar, þau hafa aldrei svikið, enda var lista-
maðurinn á heimsmælikvarða sem myndhöggvari. Opið er alla
daga frá 10 til 16.
Vor '93 í
Hofnarfirði
Sýningin Vor ’93 - Athafnadagar í Hafnarfirði, var opnuð
með viðhöfn í gærdag. Sýningin verður opin fram á sunnu-
dagskvöld. Verðurekki annað sagt en að þama er athyglisverð
sýning á ferðinni, enda mun áhorfendur vart skorta næstu dag-
ana.
Greinilegt er að bölmóður hefur ekki haldið innreið sína til
hafnfirskra fyrirtækja sem þama sýna. Menn eru hressir og
ákvcðnir í að standa sig, þrátt fyrir tímabundinn samdrátt.
Nærri KX) aðilar standa að sýningunni, sem er haldin í
íþróttahöll FH við Kaplakrika á nærri 2 þúsund fermetra sýn-
ingarsvæði
Sýningin verður opin frá 12 til 22, á föstudag þó frá 17 til 22.
Opið hús í
Samvinnu-
húskólanum
Starfsemi Samvinnuháskólans í Bifröst verður kynnt
á opnu húsi í skólanum á sunnudaginn milli 13 og 16. Þá
verður sýnt á sama tíma nýtt hús Nemendagarða Sam-
vinnuháskólans, sem leysa úr brýnni þörf.
Væntanlegir umsækjendur um skólavist sem og aðrir
áhugamenn eru sérstaklega hvattir til að koma og heim-
sækja skólann þennan dag.
Hagstæð vöruskipti
Hagstæður vöruskiptajöfnuður milljarðar, en útflutningur nam 8,9 ársins og þeir dregnir saman, kemur í skiptunum við útlönd og nemur hann
náðist í marsmánuði síðastliðnum, milljörðum króna. Er afgangurinn í ljóst að útflutningur nemur 20,8 millj- 3,3 milljörðum króna, sem er 1,3 millj-
eða upp á 2 milljarða króna. Inn mars svipaður og árið 1992. örðum króna, en innflutningur 17,5 örðum betri árangur en í fyrra.
Alkóhólismi er fjölskyldusjúkdómur.
Maki; börn og foreldrar alkóhólistans þurfa ekki síður
á hjálp að halda til að komast út úr vítahringnum.
Tekjum af sölu Álfsins verður varið til að efla aðstoð
og meðferð fyrir aðstandendur alkóhólista
Álfasala SÁÁ21.-23. maí 1993