Alþýðublaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 1
Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík:
NÝGERÐIR KJARASAMNINGAR
HARKALEGA GAGNRÝNDIR
- í ályktunfrá stjórninni og þingflokkur Alþýðuflokksins hvattur til að taka ekki
stórar ákvarðanir um grundvallar atriði í kenningum jafnaðarmanna
án samráðs við flokksstjórn.
neyslu úr ríkissjóði eigi að tryggja
alþýðu lífsgæði.
Ríkissjóði, sem meðal annars
hefur burði til að tryggja að allir
njóti heilbrigðisþjónustu án tillits til
greiðslugetu, að allir geti notið
menntunar án tillits til greiðslugetu
og að allir geti notið almannatrygg-
inga, sem tryggja afkomuöryggi al-
þýðu.
Með vísun til ofangetinna atriða
þá beinir stjóm FAR því til þing-
flokks Alþýðuflokksins - Jafnaðar-
mannaflokks íslands, að hann taki
engar stórar ákvarðanir um þau, án
samráðs við flokksstjóm.“
Það eru ekki allir sem ákaft
fagna nýgerðum kjarasamning-
um. ALÞYÐUBLAÐIÐ hefur ör-
uggar heimildir fvrir því að inn-
an beggja ríkisstjórnarflokkanna
séu uppi háværar gagnrýnis-
raddir. Raddir sem segi samning-
ana alltof dýru verði keypta.
Tvennt rennir stoðum undir það
að þessi gagnrýni sé þó nokkur.
Annars vegar hefur Davíð Odds-
son í fjölmiðlum eftir samnings-
gerðina hvað eftir annað varið
„fórnarkostnaðinn“ af kappi og
sagt hann stöðugleikans virði.
Hins vegar er það ályktun sem
stjórn Fulltrúaráðs Alþýðu-
flokksfélaganna í Rcvkjavík
(FAR) samþykkti á skyndifundi
sínum síðastliðinn fimmtudag
(20. maí). Það var Birgir Dýr-
fjörð sem bar ályktunina upp og
var hún samþykkt samhljóða eft-
ir nokkrar umræður. Greinilegt
er að ríkisstjórnin er ekki enn bú-
in að bíta úr nálinni með Jjessa
nýgerðu kjarasamninga. Alykt-
un Fulltrúaráðsins fer hér á eftir
í heild sinni:
„Ef hugmyndir þær, sem nú em
uppi um skerðingu á tekjum rfkis-
sjóðs um tvo til þrjá milljarða ná
Birgir Dýrfjörð: Höfundur álvktun-
arinnar sem stjórn FAR samþvkkti
samhljóða á fundi sínum síðastliðinn
fimmtudag (20. maí).
fram að ganga þá óttast stjóm FAR
mjög að af hlytist slíkt svöðusár á
velferðarkerfinu, að erfitt yrði um
að binda og ekki myndi heilt gróa
nema á mörgum árum.
Stjóm FAR varar við skerðingu á
tekjum ríkissjóðs af þeirri stærðar-
gráðu, sem nú er rætt um, og óttast
að með henni yrði vegið að burðum
ríkissjóðs til að rísa undir þeim
grundvallar atriðum í kenningum
jafnaðannannaflokks, að með sam-
Umdeild Nautaveisla kúabœnda:
VERÐLÆKKUN EÐA...
Nautaveisla, nefnist nýjung
frá nautgripabændum og er
hún afrakstur sölu- og gæða-
átaks á þeirra vegum. „Lægra
verð og aukin gæði“, eru ein-
kunnarorð átaksins og að sögn
aðstandenda þess er með því
verið að koma til móts við
neytendur um gott nautakjöt á
sérstöku tilboðsverði. Þetta er
magnpakkning, 6 kfló af ham-
borgurum, gúllasi og hakki
sem þeir segja um 30% ódýr-
ara en sambærilegt kjöt. Jó-
hanncs Gunnarsson formaður
Ncvtcndasamtakanna: „Ég
hlýt að fagna aukinni sam-
keppni. Þó er það miður að
ákveðnar verslanir skuli ekki
vera með.“
Hagkaup em ekki með Nauta-
veisluna í búðum sínum. Jón Ás-
bergsson forstjóri: „Við skoðuð-
um þennan kost þegar okkur var
kynntur hann en fannst þetta
ekki spennandi.“ Jóhannes Jóns-
son í Bónus selur kjötið ekki
heldur: „Ég, sem neytandi,
myndi aldrei borga 1300 krón-
um hærra verð fyrir kjöt bara
vegna þess að það er í einhveij-
um fínum pappakassa.“
Helga Guðrún Jónasdóttir hjá
Upplýsingaþjónustu landbúnað-
arins: „Ef hann [Jóhannes í Bón-
us] getur boðið upp á sambæri-
legt kjöt í verslunum sínum fyrir
1300 króna lægra verð, þá er það
bara gott. Mér finnst þessi af-
staða Hagkaups skrýtin. Þetta er
einskonar forval hjá jteim. Þeir
em þama að velja fyrir neytend-
ur fyrirfram."
SJÁ
BLAÐSÍÐU 5.
Gro með íslenskum
krötum
Gro Harlem Brundtland, eiginmaður hennar, Arne Olaf Brundtland, og
fylgdarlið norska forsætisráðherrans, gáfu sér stund til að hitta íslenska
krata að máli í blíðviðrinu á föstudaginn var. Attu menn skemmtilega
stund saman á Kornhlöðuloftinu við Bankastræti. Á mvndinni eru þau
norsku forsætisráðhcrrahjónin ásamt Kannveigu Guðmundsdóttur og
Jóni Baldvin Hannibalssvni. - Nánar á bls. 7. A-inynd E.Ól.
Endurbygging Korpúlfsstaða:
Kostnaða rá
tlunin
skot út fi lofftid
Því hefur verið kastað fram að
endurbætur á Korpúlfsstöðum
vegna listamiðstöðvar þar muni
kosta um 1.400 milljónir króna.
„Mér sýnist sú tala vera skot út í
loftið en borgin má alls ekki við
því að lenda í öðru Perlu- eða
Ráðhússævintýri“ segir Ólína
/
segir Olína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi,
því borgin megi ekki viðfleiri
sem vill láta endurskoða kostnaðaráœtlunina
Perlu- eða Ráðhússœvintýrum
Þorvarðardóttir borgarfulltrúi,
sem lagt hefur fram tillögu um
endurskoðun kostnaðaráætlunar
vegna endurbyggingar Korpúlfs-
staða.
Tillaga Ólínu verður til af-
greiðslu í borgarráði í dag. Þar er
lagt til að fela borgarverkfræðings-
embættinu að leggja fram endur-
skoðaða kostnaðaráætlun áður en
lengra verði haldið. „Mér finnst full
ástæða núna til að staldra örlítið við
og meta tilkostnaðinn og þann tíma
sem það væntanlega tekur að end-
urbyggja Korpúlfsstaði" segir
Ólína.
í tillögunni er jafnframt gert ráð
fyrir að könnuð verði mannaflaþörf
við þær framkvæmdir sem fyrir-
hugaðar eru að Korpúlfsstöðum.
„Það er gert með hliðsjón af at-
vinnuástandinu. Mér fmnst ekki
hægt að taka eingöngu tillit til þess
hve dýrar framkvæmdimar em,
heldur einnig hversu atvinnuskap-
andi þær em. Ég held að það sé
nauðsynlegt að borgarráð átti sig á
hvað þessi framkvæmd hefur að
segja í því atvinnuástandi sem við
nú búum við.
Það er vitað að það hafa komið
upp vandkvæði við endurbygging-
una sem mun hafa áhrif á kostnað-
inn og þann tíma sem verkið mun
taka. Það er eitt af því sem gefur til-
efni til að endurskoða bæði tíma-
og kostnaðaráætlanir vegna fram-
kvæmdanna á Korpúlfsstöðum",
sagði Ólína Þorvarðardóttir í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - Hverlisgötu 8-10, 101 Reykjavílc - Sími 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44
............... - ■ : . Á,