Alþýðublaðið - 25.05.1993, Page 4
4
Jón Sigurðsson á Iðnþingi 21. maí 1993.
Þriðjudagur 25. maí 1993
Efling atvinnu er
RÆKTUNARSTARF
Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra koma víða við í ræðu sinni á
Iðnþingi síðastliðinn föstudag. Alþýðu-
blaðið birtir hér hluta af ræðu Jóns þar
sem hann ræðir um hvernig efla megi at-
vinnu hér á landi og hvaða hlutverki iðn-
aður gegnir í því sambandi. Þá kemur
hann inn á nýgerða kjarasamninga og
skýrir stefnu stjórnvalda til að efla hér
atvinnulífið.
„Þið hafið valið þingi ykkar kjörorðin:
Iðnaður gegn atvinnuleysi. Undir þau orð
vil ég sterklega taka. Það er nú brýnasta
verkefni í íslenskum þjóðmálum að tryggja
örugga atvinnu nú og í framtíðinni.
Forystumenn íslensks iðnaðar hafa gert
sér Ijóst að efling atvinnu er ræktunarstarf
en ekki áhlaupaverk þar sem málið er leyst
í eitt skipti fyrir öll. Það þarf þolinmæði og
þrautseigju til að takast á við þá erfiðleika
sem nú steðja að íslensku atvinnulífi, erfið-
leika sem að mjög miklu leyti em utan
áhrifasviðs Islendinga sjálfra.
Iðnaðurinn hefur ekki farið varhluta af
þeim andbyr sem nú setur svip sinn á þjóð-
arbúskapinn. Islenskur iðnaður starfar að
langmestu leyti fyrir innanlandsmarkað.
Þegar saman fer afturkippur í þjóðarút-
gjöldum heima fyrir og erfiðleikar á út-
flutningsmörkuðum vegna efnahagslægðar
í umheiminum er ekki að sökum að spyrja:
Sala og framleiðsla dregst saman og verk-
efnaskortur gerir vart við sig. Iðnaðarmenn
hafa bmgðist af hyggindum og hagsýni við
þessum vanda, hagrætt í rekstri, einfaldað
og sameinað fyrirtæki, fundið nýjar leiðir á
þröngum markaði. Það er athygiisvert að
þrátt fyrir almenna erfiðleika var afkoma
iðnaðarins í heild með besta móti árin 1990
og 1991 en slaknar svo 1992 og á þessu ári
þegar andbyrinn herðir enn. íslenskur iðn-
aður hefur herst í erfiðleikum undanfarinna
ára. Þegar hagsveiflan stefnir upp á við á ný
mun hann búa að þeim skipulagsumbótum
sem gerðar hafa verið á erfiðu ámnum.
Hvernig eflum við atvinnu best ?
Þegar kreppa steðjar að reynir á hæfileika
samfélagsins til endumýjunar. Nú er sann-
arlega endumýjunar þörf í íslensku atvinnu-
lífi. Við erum við nýtingarmörk mikilvægra
fiskistofna og efnahagur umheimsins býður
engar greiðar leiðir til nýtingar orkulind-
anna. Þess vegna er svo mikilvægt að við
eflum iðnað og þjónustu sem byggir á verk-
hæfni og hugviti. Það er hlutverk stjóm-
valda að skapa heilbrigt starfsumhverfi fyr-
ir slíka þróun - - undirbúa jarðveginn svo
þarspretti lífvænlegar jurtir.
Fyrst og fremst þurfa að ríkja sanngjam-
ar, stöðugar og frjálslegar leikreglur í at-
vinnuljfi og viðskiptum. Við tryggjum
stöðu Islands í viðskiptakerfi heimsins með
aðild að EES og nýju GATT til að tryggja
góð viðskiptasambönd við önnur lönd. Við
þurfum gott menntakerfi í góðum tengslum
við atvinnulíf og rannsóknastarf bæði
heima og erlendis.
Mönnum verður stöðugt betur ljóst að
hlutur smáfyrirtækja og fmmkvöðla í at-
vinnulífinu sjálfu er mjög mikilvæg upp-
spretta nýsköpunar. Þá er ekki sfst að finna
í ykkar röðum. Það þarf að hlúa að nýsköp-
un í smáiðnaði og þjónustu og laða fram
vilja hjá fólki til að stofna fyrirtæki á eigin
ábyrgð. Meðal annars þarf áherslubreyt-
ingu í menntakerfinu til þess að búa fólk
undir starf á eigin vegum fremur en hjá öðr-
um.
Við þurfum að tengja betur saman verk-
nám og vinnustaði. Það er engum vafa und-
irorpið að þær þjóðir sem ríkasta áherslu
leggja á iðnnám tengt fyrirtækjunum hafa
náð bestum efnahagsárangri. Við þurfum
að flétta saman það besta úr gamla meist-
arakerfinu og því nýja sem upplýsinga-
tækni nútímans býður.
Stefna stjórnvalda
Á sama tíma og fyrirtækin hafa verið að
taka til hjá sér til að takast á við erfiðleikana
hafa stjómvöld - ríkisstjóm og Alþingi -
einmitt gert þaðjama. Á þinginu sem lauk í
byrjun þessa inánaðar voru gerðar víðtæk-
ari og jákvæðari breytingar á starfsskilyrð-
um fyrirtækja á Islandi en nokkm sinni fyrr.
1. Ég nefni fyrst samninginn um Evr-
ópska efnahagssvæðið sem staðfestur var
fyrr í þessum mánuði og bætir starfsskil-
yrði íslensks atvinnulífs með aðgangi að
Evrópumarkaði 380 milljóna manna.
2. Ég nefni í öðm lagi ný samkeppnislög
sem afnema margvíslegar samkeppnis-
hömlur, fólki og fyrirtækjum til hagsbóta.
3. Ég nefni í þriðja lagi ný innflutnings-
og gjaldeyrislög sem festa viðskiptafrelsið
í sessi og gefa íslenskum fyrirtækjum
möguleika til að njóta bestu kjara í viðskipt-
um ótmfluð af boðum og bönnum stjóm-
valda.
4. Ég nefhi í fjórða lagi nýjar leikreglur á
fjármagnsmarkaði, bæði fyrir banka og
sparisjóði og verðbréfaviðskipti, sem færa
þá starfsemi í nútímahorf með öryggi og
hagsmuni almennings og atvinnulífs fyrir
augum.
5. Ég nefni í fimmta lagi ný lög um fag-
gildingu, staðla, einkaleyfi og hönnunar-
vemd sem er ætlað að tryggja stöðu ís-
lenskra fyrirtækja, hönnuða og hugvits-
manna á innlendum og alþjóðamarkaði.
6. Ég nefni loks hið sjötta, róttækar um-
bætur í skattkerfi fyrirtækja með afnámi
aðstöðugjalds, lækkun tekjuskatts og nið-
urfellingu vömgjalds af mikilvægum bygg-
ingavörum og aðföngum iðnaðar. Þessar
breytingar tryggja að skattar á atvinnu-
rekstri hér á landi verða ekki þyngri en í
samkeppnislöndum.
Það er nú brýnasta verkefni í íslenskum þjóðmálum að tryggja örugga atvinnu nú og í framtíð-
inni, segir Jón Sigurðsson.
Það þarf að hlúa að nýsköpun í smáiðnaði og þjónustu og laða fram vilja hjá fólki til að stofna
fyrirtæki á eigin ábyrgð.
Þannig hafa athafnir fylgt orðum - fram-
kvæmdin er eins og fyrirheitin - um að
mynda heilbrigt starfsumhverfi fyrir at-
vinnulífið.
Um leið og þessar almennu umbætur
hafa orðið hefur hlutur iðnaðarins batnað
samanborið við aðrar atvinnugreinar. Skatt-
ar allra atvinnuvega hafa nú í meginatriðum
verið samræmdir innbyrðis. Framlög til
rannsókna- og þróunarstarfa fara nú í meira
mæli en áður til iðnaðar. Verðmyndun á
iðnaðarvörum er nú í aðalatriðum frjáls.
Aðflutningsgjöld og tollar hafa almennt
lækkað mikið og þar með verð á aðföngum
og búnaði til iðnaðar. Starfsskilyrði at-
vinnugreina hvað varðar aðgang að fjár-
magnsmarkaði og lánskjör hafa verið jöfn-
uð. Lokaskrefin verða stigin í tengslum við
EES-samninginn.
Af því sem ég hef þegar rakið er ljóst að
mikilvæg skref hafa verið stigin í jöfnun
starfsskilyrða atvinnuvega hér innanlands á
síðustu árum og búa þeim heilbrigt starfs-
umhverfi. Verkefnið framundan er að jafna
til fulls starfsskilyrðin milli innlendra fyrir-
tækja og erlendra keppinauta. Þar hefur
ýmislegt þegar áunnist. Ég nefni þar sér-
staklega stöðugleika í gengis- og verðlags-
málum, afnám aðstöðugjalds og vörugjalds
af byggingariðnaði og iækkun tekjuskatts
fyrirtækja. En betur má ef duga skaí.
Þátttaka íslands í Evrópska efnahags-
svæðinu kallar á verulegt átak af hálfu hins
opinbera til að lagfæra starfsskilyrði inn-
lendra fyrirtækja þannig að þau búi við
jafngóð og helst betri skilyrði og erlendir
keppinautar. Auk þess þurfa stjómvöld og
hagsmunasamtök að taka höndum saman í
því skyni að efla þekkingu á því hvemig við
getum best nýtt okkur tækifærin sem felast
í EES-samningnum. Islenskt atvinnulíf
stendur ekki undir viðunandi lífskjömm
nema það standist alþjóðlega samkeppni
sem fer síharðnandi.
Stöðugleiki og nýsköpun
- Ný kjarasátt
Það hefur tekist á síðustu árum að ná
meiri stöðugleika í efnahagsmálum en
nokkm sinni fyrr í sögu lýðveldisins. Þið
hafið vafalaust tekið eftir síðustu vísitölu-
fféttunum fyrir maímánuð.
í þessum mánuði stóðu bæði vísitala
byggingarkostnaðar og lánskjaravísitala í
stað. Og sé litið 3, 6 eða 12 mánuði aftur í
tímann og tölumar reiknaðar til árshækkun-
ar fást verðbólgutölur á bilinu 1-2%. Þetta
er árangur sem mikils er um vert að varð-
veita. Lykillinn að því - og lykillinn að
lækkun vaxta - er að okkur takist að stöðva
útgjaldaaukningu ríkissjóðs og draga úr
halla á ríkisbúskapnum.
Það er fagnaðarefni að snemma í morgun
tókust samningar um kaup og kjör milli Al-
þýðusambandsins og Samtaka vinnuveit-
enda til loka næsta árs. Vonir eru við það
bundnar að þessi kjarasátt geti varðveitt
stöðugleikann í verðlags- og gengismálum.
Þessir samningar tókust á grundvelli yfir-
lýsingar ríkisstjómarinnar um ýmsar ráð-
stafanir í efnahags- og atvinnumálum. Með
þessari yfirlýsingu tekur ríkissjóður á sig
nokkrar skuídbindingar til þess að tryggja
stöðugleikann og stuðla að kjarajöfnun.
Þetta mun að sjálfsögðu gera ríkisfjármálin
enn erfiðari viðfangs en ella - en það er mat
ríkisstjómarinnar að þess verði nú að freista
að festa stöðugleikann í sessi um leið og að-
ilamir á vinnumarkaðnum og stjómvöld
taka höndum saman um virka atvinnustefnu
og nýsköpun í atvinnumálum.
Það er afar mikilvægt að óvissu í kjara-
málum verði nú eytt og friður tryggður á
vinnumarkaði til loka næsta árs. Takist
þetta aukast Iíkumar á Iækkun vaxta á
næstu mánuðum þvf óvissan í kjaramálum
hefur m.a. haldið vöxtunum uppi. Rikis-
stjómin mun fyrir sitt leyti stuðla að áfram-
haldandi lækkun vaxta, með markaðsað-
gerðum. Þar er mikilvægast að lánsijárþörf
hins opinbera verði haldið í skefjum. Næstu
mánuði verður sigling þjóðarskútunnar
vandasöm, milli skers og báru. Það ríður á
miklu að samstaða náist um skynsamlegar
leiðir til þess að tryggja sem áfallaminnsta
för og atvinnu sem flestra við arðgefandi
störf.
Stóraukin áhersla á rannsókna- og
þróunarstarf
Ég nefni það nýmæli að ríkisstjómin hef-
ur þrátt fyrir þrengingar í ríkisfjármálum
lagt stóraukna áherslu á rannsókna- og þró-
unarstarf. Framlag til Rannsóknasjóðs
verður stóraukið og ákveðið hefur verið að
fimmtungur af tekjum af sölu ríkisfyrir-
tækja renni einnig til rannsókna- og þróun-
arstarfs.
Þá nefni ég að á liðnum vetri var skipuð
nefnd manna á vegum ríkisstjómarinnar til
að kanna hvemig það fjármagn og vinnuafl
sem varið er til nýsköpunar af opinberri
hálfu nýtist og koma með íilögur til úrbóta
ef þess væri talin þörf að bestu manna yfir-
sýn. Nefndin mun skila tillögum sínum inn-
an skamms. Stuðningur við hagnýtar rann-
sóknir og þróunarstarf fyrirtækja hvað
snertir vöruþróun, framleiðsluferla og
markaðssetningu, er einn mikilvægasti
þáttur í atvinnustefnu stjómvalda. Árlega
eru lagðir fram a.m.k. 2 milljarðar króna af
opinberu fé f þessu skyni. Fyrirkomulag
þessara stuðningsaðgerða hefur í áranna rás
stöðugt orðið flóknara, margreindara og
umfangsmeira. Nýjar stuðningsaðgerðir
hafa litið dagsins ljós þegar aðstæður og
þarfir hafa breyst en þess e.t.v. ekki gætt
nægilega vel að samhæfa stuðningsaðgerð-
ir og bæta um leið heildarskipulag þessara
mála.
Nýsköpun í atvinnulífinu þarfnast stuðn-
ings hins opinbera á komandi ámm. Nauð-
synlegt er að endurskoða skipulag opin-
berra sluðningsaðgerða við nýsköpun. Við
eigum að beina slíkum stuðningi fyrst og
fremst til nýjunga sem sprottnar eru af
frumkvæði fólks og fyrirtækja. Ekki síst
þarf að styðja viðleitni þeirra sem vilja
hasla sér völl á erlendum markaði. Sam-
stilltar aðgerðir ríkis og sveitarfélaga geta
stuðlað að stofnun smáfyrirtækja um nýj-
ungar í framleiðslu. Með námskeiðahaldi
og aukinni þjónustu ráðgjafar- og tækni-
stofnana má styrkja fmmkvöðla til að reyna
nýjar atvinnuhugmyndir í iðnaði og þjón-
ustu. Hvetja þarf fyrirtæki til að leggja
áherslu á rannsókna- og þróunarstarf á eig-
in vegum eða í samvinnu við rannsókna-
stofnanir."