Alþýðublaðið - 25.05.1993, Page 8
L#¥¥#
.. alltaf á miövikudögum
MÞY9U6UBIÐ
Þriðjudagur 25. maí 1993
76 TOLUBLAÐ - 74. ARGANGUR
L#TT#
alltaf á nnövikudögmn
SVIJTTFRETTIR
Æ^aponi, SSd MN ol toWjyo
«?£SsSSsff2w2s MssíK
aiSiSSMj^Ssils
lc. ehemleak crytíal. «ta).
Allt löðrandi í vopnasölu-
tilboðum
Það er ekki bara Búnaðarbanki íslands sem fengið
hefur gott tilboð um vopnasölu. Svo virðist sem við-
skiptaheimur fslands sé löðrandi í slíkum tilboðum. Her-
bert Guðmundssonhjá Verslunarráði Islands segir að
tilboðum eins og því sem Búnaðarbankinn tók alvarlega
hafi alllengi verið dreift um allan heim, jafnt til samtaka
í viðskiptalífi og til fyrirtækja af öllum toga, sem koma
að milliríkjaviðskiptum. „Þessi vopnasala er nú rekin op-
inberlega af skráðum rekstraraðilum í þessum ríkjum
eins og hver önnur verslun, rétt eins og er og hefur verið
óralengi víða annars staðar í heiminum. Vísa má meðal
annars til þess að opnar vopnasölusýningar eru nú haldn-
ar að minnsta kosti í Rússlandi, sem eru kynntar á al-
þjóðavettvangi", segir Herbert. Segir hann upplýsingar
um möguleika á beinum viðskiptum við skráð fyrirtæki í
Austur-Evrópu fyrir hendi. Hefur einhver áhuga?
Brennu-Flosi nýtir land-
búnaðarplastið
Framundan er að safna saman öllu landbúnaðarplasti á
Suðurlandi, líklega getur það orðið 250 tonna haugur.
Verður drasiið einkum flutt með Heijólfí til Vestmanna-
eyja þar sem nýstofnað byggðasamlag Eyjamanna nýtir
plastið sem orkuefni. Þá er í athugun að nýta hluta plasts-
ins hjá nýstofnuðu fyrirtæki með skemmtiiegt nafn,
Brennu-Flosa hf. að Svínafelli í Öræfum og er fyrirtæk-
ið að gangsetja sorporkustöð sem á að kynda sundlaug
staðarins. Um 900 tonn af plasti faila til hjá bændum ár-
lega og því um þarft verk að ræða. Umhverfisráðuneyt-
ið, Stéttarsamband bænda og Samband íslenskra sveitar-
félaga standa fyrir þessu átaki ásamt Sambandi sunn-
lenskra sveitarfélaga. Útgjöldin koma úr vasa skattgreið-
enda.
Kjartan kosinn formaður
Kjartan Lárusson,
framkvæmdastjóri
Ferðaskrifstofu íslands
var kjörinn stjómarfor-
maður Félags íslenskra
ferðaskrifstofa á aðal-
fundí félagsins í síðustu
viku. Meðstjómendur
em Hörður Gunnars-
son, framkvæmdastjóri
Úrvals-Útsýnar og
Böðvar Valgeirsson,
framkvæmdastjóri
Ferðaskrifstofunnar Atl-
antik.
Leðurblaka í Perlunni
Félagar úr Leikfélagi Akureyrar koma fram í Perl-
unni í kvöld og syngja nokkur lög úr hinni vinsælu óper-
ettu, Leðurblökunni, sem gengið hefur og gengið nyrðra
seinnipart vetrar. Án efa munu matargestir á hinum eðla
veitingastað kunna vel að meta list jteirra Ingibjargar
Marteinsdóttur, Aðalsteins Bergdal, Jóns Clarke og
Richard Simm.
Markús skýrir sitt mál
Borgarstjórinn í Reykjavík útskýrði sitt mál varðandi
Hótel Borg, strax og hann kom til landsins frá Svíþjóð á
föstudag. Hann segir að hann haft viljað benda á Hótel
Borg sem vænlegan viðskiptaaðila eftir góðar breytingar
á húsnæðinu, en auk j>ess benti hann á að Hótel Borg hef-
ur verið afsíðis í viðskiptum við Reykjavíkurborg. Þar
hafa einkum setið að kjötkötlunum Oðinsvé, Viðeyjar-
stofa, Perlan og Hótel Saga. Á íjögurra ára tímabili hafa
viðskiptin við Brauðbæ/Oðinsvé og Viðey verið um 17
milljónir, en 13 við Perluna frá því hún opnaði, en 10,6
við Hótel Sögu. Hótel Borg hefur aftur á móti aðeins
fengið viðskipti fyrir 563 þúsund krónur á þessu tímabili,
minnst veitingahúsanna. Fulltrúar minnihlutans í borgar-
stjóm bókuðu að með greinargerð sinni væri borgarstjóri
að draga til baka bréf sitt til 46 forstöðumanna borgar-
stofnana um að beina viðskiptunum til Hótel Borgar.
S
Hagdeild ASI um bankana
Halda uppi mjög
háu vaxtastigi
vextir í íslenska bankakerfinu hlutfallslega þeir hœstu í hinum vestrœna
heimi miðað við vexti á ríkisskuldabréfum
Framferði bankanna undan-
farin misseri er með þeim hætti,
að þeim virðist ekkert varða um
þjóðarhag. Það virðist sama
hvaða samkomulag við gerum við
þá eða hvernig ávöxtunarkrafa á
markaði þróast, þeir eru stað-
ráðnir í því að halda uppi mjög
háu vaxtastigi til þess að bæta sér
upp mistök í lánveitingum á und-
anförnum árum“, segir í m.a. í til-
kynningu frá Hagdeild ASI vegna
gagnrýni ýmissa fulltrúa bank-
anna um að nýgerðir kjarasamn-
ingar stuðli að vaxtahækkun.
ASI segir að „nafnvextir á al-
mennum skuldabréfum hafi verið
óhemju háir undanfama mánuði,
þrátt fyrir að verðbólga fari lækk-
andi. Bankamir hafa afsakað þetta
með tilvísun til þess að mikil óvissa
ríkti um framvindu verðlagsmála
vegna þeirrar óvissu sem væri um
gerð kjarasamninga." Nú hafi henni
verið eytt og því að vera svigrúm til
að lækka nafnvexti um 2,4% að
jafnaði.
Þá kemur fram hjá Hagdeild ASÍ
að raunvextir á almennum skulda-
bréfum séu háir eða um 9,2% þrátt
fyrir að ávöxtunarkrafa ríkisverð-
bréfa á eftirmarkaði hafi lækkað
undanfarið niður í 7%. Þá segir:
„Hins vegar má spyija sig að því
hvort það sé eðlileg viðmiðun að
nota ávöxtunarkröfuna á 5-8 ára rík-
isskuldabréfum sem gmndvöll að
öllu vaxtakerfi bankanna eins og hér
er gert? Fullyrða má að hvergi ann-
ars staðar í heiminum er þessu
þannig háttað og að vextir í íslenska
bankakerfinu séu hlutfallslega þeir
hæstu í hinum vestræna heimi mið-
að við vexti á ríkisskuldabréfum. I
Bandaríkjunum em vextir á 5 ára
ríkisverðbréfum t.d. 6,5% en LI-
BOR vextir (skammtímavextir í
bönkum) em um 3%.“
V I K I M G A
imm
Vinningstölur
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
D 6 af 6 1 (á ísl. 0) 21.085.000
0 5 af 6 +bonus 1 1.486.682
m 5 af 6 5 61.456
□ 4 af 6 332 1.472
m 3 af 6 +bónus 953 221
Aðaltölur:
7 H^r.5
17/(22/(29
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphæð þessa viku
23.578.279
á Isl.:
2.493.279
UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 4S1
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Vinning iaugard ctölnr
OLUIUI aqinn: 22- maí 1993
VINNINGAR FJÖLDI ViNNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
11 5 af 5 2 2.726.729
0 +4af5 2 273.896
m 4 af 5 167 5.658
m 3 af 5 4.875 452
Aðaltölur:
23 28 30
BONUSTALA:
Heildarupphæð þessa viku:
kr. 9.149.636
UPPLYSINGAR, SIMSVARI91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
Bæjarskrifstofur Garðabæjar hafa fengið
nýtt símanúmer
85 oo