Alþýðublaðið - 09.06.1993, Qupperneq 5
Miðvikudagur 9. júní 1993
5
„Konur eiga ekki erfitt uppdráttar
í Alþýðuflokknum“
- segir Petrína Baldursdóttir verðandi alþingismaður Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi
„Þetta leggst alveg prýðilega í mig. Ég
geri mér grein fyrir því að ærin verkefni
bíða úriausnar, og það mun taka mig
tíma að kynnast ýmsum málaflokkum og
starfsháttum, en ég mun leggja mig alla
fram,“ sagði Petrína Baldursdóttir í
samtali við Aiþýðublaðið, en hún tekur
sæti Karls Steinars Guðnasonar á Al-
þingi í haust.
Petrína fæddist 18. september 1960; á
ísafirði eins og svo margir forystumenn
jafnaðarmanna. Hún er dóttir hjónanna
Valgerðar Guðjónsdóttur forstöðumanns
Bókasafns Grindavíkur og Baldurs Sigur-
baldurssonar fyrrverandi skipstjóra. Petrína
lauk námi frá Fósturskóla Islands 1982 og
starfaði eftir það í tvö ár sem fóstra við
Öskjuhlíðarskóla. Árið 1984 varð hún leik-
skólastjóri Leikskóla Grindavíkur og hefur
gegnt þvf starfi síðan. Starf hennar innan
Alþýðuflokksins hófst 1985 og árið eftir
var hún í framboði við bæjarstjómarkosn-
ingamarog hefur verið varabæjarfulltrúi ffá
1986 og seúð í félagsmálaráði Grindavíkur
fyrir flokksins hönd. Petrína skipaði fimmta
sætið á lista Alþýðuflokksins við alþingis-
kosningamar 1991.
Eiginmaður Petrínu er Frímann Ólafsson
kennari og þau eiga tvö böm, Sigurbaldur 8
ára og Guðrúnu Bentínu 5 ára.
Aðspurð kvaðst Petrína búast við að
þingmannsstarfið hefði miklar breytingar í
för með sér á hennar högum. „Ég er rétt
byijuð að spá í þau mál. Þessu fylgir tals-
verð röskun á íjölskyldulífi enda þarf ég að
aka á milli Reykjavíkur og Grindavíkur á
hveijum degi. Ég þarf líka að ákveða hvað
ég geri í sambandi við atvinnumál mín;
hvort ég segi upp starfi mínu eða fæ leyfi.
Það á eftir að koma í ljós hversu mikill
tími verður aflögu, en auðvitað mun ég
skipuleggja hann með tilliti til bamanna og
íjölskyldunnar."
En á hvaða mál ætlar Petrína að leggja
mesta áherslu þegar hún tekur sæti á Al-
þingi Islendinga?
„Það er auðvitað alveg ljóst að ég mun
leggja öllum góðum málum lið. Ég hef sér-
stakan áhuga á jafnréttismálum og félags-
málum en ég mun ekki einskorða mig við
þau. Málefni sjávarútvegs og landbúnaðar
em afar spennandi, sér í lagi sjávarútvegs-
málin sem brenna á mönnum í mínu kjör-
dæmi.“
í ljósi umræðu síðustu daga var Petrína
spurð hvort hún teldi að konur ættu erfitt
uppdráttar innan Alþýðuflokksins. Hún
sagði: ,,Nei, mér finnst það nú ekki í raun
og vem. Að mínu mati emm það við sjálfar
sem fyrst og fremst höfúm áhrif á það. Mér
hafa verið falin trúnaðarstörf á vegum
flokksins og ég hef ekki fundið fyrir því að
þáð hafi staðið í vegi fyrir mér að vera
kona. Það er hinsvegar umhugsunarefni
hversu fáar konur vilja sinna trúnaðarstörf-
um og sækjast efúr þeim. Við þurfum sjálf-
ar að skoða hvað það er, sem hamlar okkur.
Okkur er hollt að skoða þau mál ofan í kjöl-
inn.“
HJ.
„Hef sérstakan áhuga á jafnréttismálum og
félagsmálum, - en ég mun leggja öllum góðum
málum lið.“
Uppstokkun í forystuliði Alþýðuflokksins
- Myndir frá jundum íþingflokki og flokksstjóm Alþýðuflokks, Jafnaðarmannaflokks íslands,
í Rúgbrauðsgerðinni ífyrrakvöld
saman nefjum.
Jón Sigurðsson og Sigurður Tómas Björgvins-
son framkvæmdastjóri Alþýðutlokksins koma
af þingflokksfundinum. Þar var tilkvnnt að
Jón léti senn af embætti eftir að hafa gegnt
ráðherradómi og þingmennsku í sex ár.
Upphaf þingflokksfundarins þar sem gengið var frá viðamiklum breytingum í forystusveit Al-
þýðuflokksins.
Heilbrigðisráðherrar. Sighvatur Björgvinsson ræðir við Guðmund Árna Stefánsson sem tekur
við heilbrigðisráðuneytinu í byrjun næstu viku.