Alþýðublaðið - 11.06.1993, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 11.06.1993, Qupperneq 2
2 Föstudagur 11. júní 1993 fiHiniiíifimi HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason Setning og umbrot: Hermóöur Sigurðsson Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566 Fax: 629244 Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði. Verð f lausasölu kr. 90 Skrautfjöður Hafnarfjarðar Oll þjóðin hefur tekið eftir því að Hafnarfjörður hefur á undanfömum árum haslað sér völl í lista- og menningarlífí þjóðarinnar með eftir- minnilegum hætti. Þó íbúamir séu einungis brot af fjölda Reykvíkinga, þá hefur Hafnarfjörður þegar skákað höfuðborginni á listasviðinu, og tekið afgerandi forystu fyrir íslenskum sveitarfélögum á þeim vettvangi. Gmndvöllur menningarstefnu stjómenda þessa öfluga bæjarfélags er skýr: listin er fyrir alia. Þeir hafa varast að loka menninguna inn í há- timbraðar hallir, læsa hana í viðjar fflabeinsins. Þess í stað er öll áhersl- an á að virkja fmmkvæði listamannanna sjálfra; þeir hafa fengið að móta stefnuna í menningarlífi bæjarins. Yfirvöld hafa fyrst og fremst lit- ið á það sem sitt hlutverk að útvega listafólkinu fjármagn og aðstöðu til að atgervi þess fái notið sín til fullnustu. Gott dæmi um memað Hafnarfjarðar á listasviðinu er rekstur listamið- stöðvarinnar í Straumi. Þar hafa listamenn fengið til umráða gamla burstabæinn, sem þjóðararkitektinn Guðjón Samúelsson teiknaði á sinni tíð. í samvinnu þeirra og með fjárframlögum Hafnaríjarðarbæjar er nú verið að leggja þar síðustu hönd á uppbyggingu listamiðstöðvar, þar sem 6-8 listamenn geta fengið aðstöðu í senn, allt frá nokkmm mánuð- um upp í heilt ár, til að vinna að sköpun. Ætti Reykjavík að standa sig jafnvel og Hafnarfjörður, þá þyrfti borg- in að leggja til milli 40 og 50 samsvarandi sérbyggðar vinnustofur fyrir listamenn, en því fer auðvitað víðs fjarri. Annað dæmi um ffamsýni og stórhug bæjaryfirvalda í Hafnarfirði er menningarstöðin Hafnarborg, sem sténdur í hjarta bæjarins. Frá því hún var opnuð á 80 ára afmæli bæjarins fyrir fimm ámm hefur hún orðið ein litríkasta og þróttmesta miðstöð myndlistar á Stórreykjavíkursvæðinu, iðandi af lffi og eftirsótt til sýninga af listamönnum. A tímum samdráttar og erfiðleika í þjóðarbúinu er vitaskuld við því að búast, að þröngsýnar smásálir sjái ofsjónum yfir þeim fjármunum, sem varið er til listageirans. Þannig hafa Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði, sem aldrei hafa verið annálaðir fyrir skilning á menningu umfram myndbönd og reyfara, lagt til lækkun á fjárveitingum á þessu sviði. Engan undrar; það er einfaldlega í góðum takti við þá þröngsýni, sem Sjálfstæðisflokk- urinn í Hafnarfirði sýnir á öðmm sviðum. Sjálfstæðismenn guma stund- um af því að þeir skilji viðskipti betur en aðrir. En í Hafnarfirði skilja þeir ekki, að þegar fram í sækir skila framlög til lista líka sínum arði í beinhörðum peningum í kassann. Stefna jafnaðarmanna í Hafnarfirði hefur verið sú, að gera bæjarfélagið að eftirsóttasta sveitarfélagi lands- ins. Takist það, þá munu fyrirtækin líka sækjast eftir að slá þar tjöldum sínum, og þannig skapast í senn auknar tekjur fyrir íbúana og bæjarfé- lagið, - og meiri atvinna. Eitt af því sem menn taka eftir við Hafnarfjörð í dag er einmitt grósku- ríkt menningarlíf. íbúar bæjarins þurfa ekki að sækja inn í Reykjavík eftir listinni. Þetta hefur bætt nýjum og einkar viðfelldnum drætti í ásjónu bæjarins. Ekki síst af þeim sökum liggur nú straumur ungs fólks til Hafharíjarðar, þar sem jafnaðarmönnum hefur af þrotlausri elju tek- ist að byggja upp fyrirmyndarbæ. Nú hefur Hafnarfjörður bætt enn einni skrautfjöður í hatt sinn. Bærinn stendur um þessar mundir fyrir óvenju fjölbreyttri listahátíð, raunar í annað sinn, en í þetta skipti taka þátt heimsþekktir listamenn á borð við pönkaða fiðlusnillinginn Nigel Kennedy, búlgörsku söngkonuna Dímit- róvu, bresku rokkhljómsveitina Rage against the Machine, auk fjölda annarra atriða. Það má fullyrða, að hvergi í heiminum er að finna bæjar- félag af sömu stærð og Hafnarfjörð, sem stendur fyrir jafn fjölbreyttri og alþjóðlegri listahátíð og Gaflarar gera um þessar mundir. Hin merkilega uppbygging þróttmikils listalxfs í bænum hefur þróast undir vemdarvæng jafnaðarmanna, sem fara með meirihluta í bæjar- stjóm Hafnaríjarðar. Það er á engan hallað, þó nefnt sé, að þar hafa jafn- aðarmenn notið krafta athafnaskálds úr listalífinu, myndhöggvarans Sverris Ólafssonar, sem er náttúmafl í sjálfu sér. Sverrir er í senn mað- urinn á bak við uppbygginguna í Straumi, og hugmyndasmiður Listahá- tíðarinnar. En yfirvöld bæjarins hafa gætt þess að skapa svigrúm til að atgervi manna á borð við Sverri og annarra fái notið sín. Þar hefur framsýni hins unga bæjarstjóra, Guðmundar Áma Stefánssonar, leikið mikilvægt hlut- verk; en hann hefur í sinni tíð haft einstakt lag á að beisla atorku fram- takssamra manna í þágu bæjarfélagsins alls. Listahátíðin í Hafnarfirði er einstakt dæmi um vel heppnað samstarf áræðinna stjómmálamanna og kraftmikilla listamanna. En það samstarf hefur nú gert Hafnarfjörð að kennileiti á landakorti íslensks listalífs í dag, - sem allir taka eftir. Kjartan Jóhannsson, fastafulltrúi íslands hjá EFTA, talinn öruggur um að verða nœsti framkvœmdastjórifríverslunarsamtakanna í Genf „Lít á þetta sem heiður Islandi til handa" „Mér hst að mörgu leyti vel á þetta starf, annars hefði ég ekki gefið kost á mér að takast það á hendur. Ég lít fyrst og fremst á þetta sem heiður íslandi til handa og mun taka við starfinu af metn- aði fyrir okkar hönd, verði sú niðurstaðan að ég verði valinn“, sagði Kjartan Jóhannsson, fasta- fulltrúi íslands hjá EFTA í sam- tali við Alþýðublaðið í gær. I næstu viku koma saman utan- ríkisviðskiptaráðherrar EFTA- ríkj- anna sjö í Genf. Þar mun koma til afgreiðslu tillaga, sem mun komin frá Svisslendingum, þess efhis að Kjartan Jóhannsson verði næsti framkvæmdastjóri EFTA. Kjartan mun eiga eindreginn stuðning Norðurlandanna fjögurra og er tal- inn ömggur með starfann. Önnur nöfn em ekki nefnd í Genf í þessu sambandi. Kjartan sagði þó í gær- kvöldi að ekkert væri ömggt í þessu máli né öðmm. Kjartan sagði að enda þótt þijú norðurlandanna sæktust nú eftir að- ild að Evrópubandalaginu, sem og Austurríki, þá yrðu áfram í EFTA þijú lönd, Island, Sviss og Liech- tenstein. Rætt hefur verið um upp- töku fyrrum kommúnistaríkja í EFTA, þannig að ekki er útilokað að breytingar verði á uppbyggingu fríverslunarsamtakanna á komandi ámm. „EFTA hefur meðal annars verið tæki til að halda uppi góðu sam- bandi við EB-lönd og fleiri þjóðir og mun áfram gegna því hlutverki fyrir aðildarlönd sín“, sagði Kjart- an. Hann sagðist ekki í nokkmrn vafa um að EFTA hefði reynst ís- landi og íslendingum ómetanlegt afl. Nefndi hann þar til fríverslun aðildarríkjanna sem og þá fríversl- unarsamninga sem Island náði við Evrópubandalagið þar sem náðust fram stórfelldar tollalækkanir á af- urðum okkar, fyrst og fremst á frystum fiski. Ákvörðun um embættisveiting- una verður tekin í næstu viku, en KJARTAN JÓHANNSSON, - EFTA mun starfa sem fyrr sem milliliður við Evrópubandalagið, enda þótt að- ildarríkjum þess kunni að fækka á næstu árum. Kjartan Jóhannsson mun væntan- lega taka við stjóm EFTA á næsta ári. Kjartan er 53 ára og hefur und- GEORG REISCH, - Austurríkismað- urinn sem gegnt hefur embætti fram- kvæmdastjóra EFTA í sex ár og lætur scnn af störfum. anfarin fjögur ár starfað sem fasta- fulltrúi íslands hjá EFTA í Genf. 11. im'91 Atburðir dagsins 1940 ítalski einræðisnerrann Bem'to Mússolíni lýsir yfir stríði á hendur Bandamönnum. 1988 80.000 manns koma á dagslanga afmælistónleika sem haldnir em á Wembley-leikvanginum í London til heiðurs hinum sjötuga Nelson Man- dela sem situr í ævilöngu fangelsi í Suður- Afríku. 1989 Hinn 17 ára gamli Michael Chang frá Bandaríkjunum verður yngsti maðurinn til að vinna Opna franska meistaramótið. Afmœlisdagar Richard Strauss — 1864 Þýskt tónskáld og stjómandi sem er þekktastur fyrir ópemr sínar. Jacques Cousteau — 1910 Franskur landkönnuður undirdjúpanna sem fann til dæmis upp aðferð til að taka neðansjávarmyndir fyrir sjónvarp. 11. (ÚHÍ'9? 11. júní 1979 — JOHN WAYNE DEYR. Þessi stóra Hollywood-stjarna fædd- ist í lowa árið 1907 og var skírður Marion Michael Morrison (!). John Wayne var um áratuga skeið eitt ást- sælasta fósturbarn draumaverk- smiðjunnar í Hollywood og var þekktastur fyrir leik sinn í vestrum og stríðsmyndum. Leikarinn þótti einkar merkilegur fyrir þær sakir að hann var staðfastur merkisberi laga og reglu og gamaldags amerískra gilda, hvort sem heldur á hvíta tjald- inu eða í einkalífinu. Atburðir dagsins 1809 Píus páfi 7. bannfærir Napóleon Bónaparte. 1917 Constantín konungur Grikklands afsalar sér krúnunni. 1965 Bítlunum fjómm veitt hin breska MBE-orða. 1975 Kosningasigur Indim Gandhi árið 1971 er dæmdur ógildur í héraðs- dómi vegna kosningasvindls starfsmanna forsætisráðherrans. 1978 David Berkowits er dæmdur í New York til sexfalds lífstíðarfangels- is fyrir þau sex morð sem hann lfamdi. 1991 Söguleg stund í Sovétríkjunum því í dag ganga þeir til fyrstu lýðræð- islegu kosninganna frá upphafi þar í landi. 1991 Ibúar Leníngrad f Sovétríkjunum ákveða í kosningu að breyta nafni borgarinnar aftur í Sankti Pétursborg. Afmælisdagar George Bush — 1924 Bandarískur repúblikani og fyrrverandi forseti. Anne Frank — 1929 Hollenska gyðingsstúlkan sem ritaði dagbók sína á meðan hún faldist fyrir nasistum. 12. JÚNÍ 1931 — AL CAPONE HANDTEKINN. I dag handtók Chicago-lögreglan hinn alræmda mafíósa, Al Capone. Hann var þekktastur amerískra glæpamanna á gullöld bannár- anna og árið 1927 er sagt að hann hafi rakað saman 100 milljónum dollara. Capone sveifst einskis til að ná sínu fram og myrti eða lét myrða menn í tuga- ef ekki hundr- aðatali. Það var hin fræga lög- reglusveit „The Untouchables“ sem átti heiðurinn af handtökunni. Capone var kærður um 5.000 brot á áfengislöggjöfinni. Atburðir dagsins 323 f. Krist Alexander mikli, konungur Makedóníu, deyr 33 ára að aldri en hann komst tvítugur til valda. 1774 Rhode Island verður fyrsta bandaríska nýlendan til að gefa þrælum frelsi og banna innflutning á þeim. 1893 Fyrsta golfmeistaramót kvenna er haldið í Bretlandi. 1988 Fyrsta fegurðarsamkeppnin er haldin í Sovétríkjunum. 1989 Mikhail Gorbachov og Kohl kanslari em sammála um að sameina Austur- og Vestur-Þýskaland. Afmœlisdagar William Butler Yeats —1865 írskt skáld og leikritahöfundur. Dorothy L. Sayers — 1893 Breskur rithöfundur leynilögreglusagna og skapari Peter Wimsey, lávarðs og leynilöggu. MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ1993 14. júní 1989 — RONALD REAGAN AÐLAÐUR. Kyrrum forscti Bandaríkjanna og rík- isstjóri Kaliforníu var í dag aðlaður af Elísabetu Bretlandsdrottningu. Sem forseti Bandaríkjanna var Reagan brautryðjandi í bættum samskiptum austurs og vesturs og hefur sjálfur mörgum sinnum hitt Mikhail Gorbac- hov til að ræða frekari tilslakanir í víg- búnaðarkapphiaupinu. „Sir Rcagan" lét af embætti í janúar á þessu ári og við forsetaembættinu tók George Bush. Reagan hafði verið forseti síðan 1980 og var clsti maðurinn til að vera kosinn forseti Bandaríkjanna, 73 ára að aldrí.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.