Alþýðublaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 4
4 Viðtal við Pétur Bjamason, framkvœmdastjóra Félags rœkju- og hörpudiskframleiðenda Föstudagur 11. júní 1993 MIKIL VERÐMÆTI í RÆKJUIÐNAÐI Rœkjuiðnaðurinn skaffaði 10,8 prósent heildarverðmætis sjávarafurða 1992. Þetta er staðreynd semfáir þekkja. Til að mœta lægra verði og auknum kröfum hafa vinnslumar bætt tœkjabúnaðinn og framleiðsluna. Framleiðendur biðja nú um meiri stuðning og skilning stjómvalda ogfáir lá þeim það Viðtal og myndir: Stefán Hrafn Hagalín Pétur Bjamason: „Við þurfum að fara að vinna markaðsvinnuna betur og íslenskir aðilar í rækjuvinnslu hafa til að mynda ails ekki notið sambærilegs stuðnings stjómvaida og hin Norður- löndin í þcssum málum." „Menn virðast ekki gera sér grein fyr- ir því hversu miklu máli rækjuiðnaður- inn skiptir hér á landi. Við erum með 10,8% af heildarverðmæti sjávarafurða. Ég efast um að fólk viti þetta eða átti sig almennt á mikilvægi iðnaðarins. Það er bara þorskurinn sem er stærri og nú er hann í niðursveiflu þannig að ærin ástæða ætti að vera til að styrkja rækju- iðnaðinn. Við erum til dæmis stærri en Ioðnan og sfldin til samans og höfum ver- ið það í mörg ár. Vægi rækjunnar fyrir þjóðarbúskapinn er því gífurlega mik- ið,“ sagði Pétur Bjarnason í viðtali við Alþýðublaðið. Pétur er framkvæmda- stjóri Félags rækju- og hörpudiskfram- leiðenda en það er með höfuðstöðvar á Akureyri. Alþýðublaðið brá sér fyrir skömmu norður yfir heiðar til þessa höf- uðstaðar landsbyggðarinnar og náði þá tali af Pétri á skrifstofu félagsins við Glerárgötuna. .félag rækju- og hörpudiskframleiðenda var stofnað árið 1985. Síðan 1989 hefur verið starfandi hér starfsmaður. Ég hóf starf mitt sem framkvæmdastjóri á haustmánuð- um 1991. Forveri minn í starfi var Lárus Jónsson, fyrrum bankastjóri og alþingis- maður. Hlutverk félagsins og mitt sem starfsmaður þess er að koma fram út á við fyrir framleiðendur, gagnvart yfirvöldum sem og almenningi, hér heima og erlendis. Inn á við er hlutverk mitt að miðla upplýs- ingum og fylgjast með því sem er að gerast. Við söfnum hér saman öllum tiltækum upplýsingum og vinnum úr þeim eftir megni, oft í samstarfi við önnur félög og stofnanir. Einnig erum við þátttakendur í ákveðnu norrænu samstarfi ásamt því að vera umsagnaraðili fyrir stjómvöld vegna ffumvarpa sem snerta vinnslu á rækju og hörpudiski. Við höfum síðan verið með í verðlagsráði sjávarútvegsins og öðram ráð- um og nefndum sem snerta þessa hluti. Þama er ekki allt upptalið." Hvað eru margir ífélaginu og hvar em þeir staðsettir um landið? ,,Það era um tuttugu framleiðendur í fé- laginu. Allir vinna þeir rækju en um fimm aðilar era nú með vinnslu á hörpudiski. Að- ilum í rækjuvinnslu hefur fækkað nokkuð síðastliðin ár, eða allt frá þeirri íjölgun sem varð árið 1984 og 1987. Það má hins vegar geta þess að það eru þrír aðilar í rækju- vinnslu sem ekki era í félaginu, allavega ekki ennþá, ýmissa ástæðna vegna. Ef við skoðum staðsetningu rækjuvinnslanna árið 1992 þá sést að fjórar voru á Norðurlandi- Eystra, ein var á Austfjörðum og tvær á Reykjanesi; fjórar á Vesturlandi, sex á Norðurlandi-Vestra og einar átta á Vest- fjörðum." Hvað er helst í gangi hjá ykkur hér inn- anlands um þessar mundir? „Það sem er helst á döfinni er að við er- um með svokallaða afkomuathugun í gangi og byijuðum á henni í fyrra. Þar berum við saman stöðu fyrirtækjanna og athugum þau mjög nákvæmlega. Til dæmis hver aflinn sé, hvaða verð menn hafa fengið fyrir hann og hverjir séu kostnaðarþættimir í vinnsl- unni. Þetta er hugsað sem nokkurskonar tæki fyrir framleiðendur til að geta séð glögglega eigin styrkleika og veikleika. Annars eram við nýkomnir af norrænum fundi þar sem að menn bára saman bækur sínar og það samstarf er mjög mikilvægt fyrir iðnaðinn." Hvert var útflutningsverðmœti rœkju á síðasta ári og hvert hafið þið verið að selja mest? „Útflutningsverðmæti rækju á síðasta ári var um 7,6 milljarðar. Útflutningsverðmæti hörpudisksins var 695 milljónir. Langmest af þessu er flutt út til Englands, eða hingað til um 70%. Megnið af því sem afgangs er flytjum við til annarra Evrópulanda og nokkuð til Japans. Við höfum verið að bæta okkur í rækjunni undanfarin ár og árið 1991 voram við með 9,3% af heildarverðmæti sjávarafurða. I fyrra voram við komnir upp í 10,8% og það stefnir í enn betra ár núna. Aflinn er stöðugt að aukast ár frá ári, hvort heldur er á djúpslóð eða grannslóð." [Sjá töflu númer 1.] Annað slagið heyrast Ijótar sögur um ofjjárfestingar í sjávarútvegi, hvemig er staðan írœkjuiðnaðinum? „Rækjuiðnaðurinn hefur undanfarin 5-6 ár verið að taka gífurlegum breytingum. Árið 1987 var verðið til dæmis mjög hátt en síðan þá hefur það lækkað mjög dramatískt. Menn reyna að mæta þessu lága verði með að betrambæta verksmiðjumar, búnaðinn og annað, og vinna rækjuna betur til að mæta auknum kröfum neytenda. Fólk borg- ar aðeins toppverð fyrir toppvöra, það er al- veg ljóst. Þessi aðferð sem menn hafa notað til að mæta lægra verði og auknum kröfum hefúr gert það að verkum að rækjuiðnaður- inn er mjög vel undir framtíðina búinn og kröfur sem til að mynda Evrópubandalagið gerir. Það er hins vegar staðreynd að rækju- iðnaðurinn er í mjög erfiðri stöðu fjárhags- lega og þessar fjárfestingar eru þungur baggi á mörgum fyrirtækjum. En fjárfest- ingamar skila sér að mestu leyti með tíman- um, þetta er spuming ef til vill um að fá að- stoð eða fyrirgreiðslu hins opinbera til komast yfir versta hjallann. Það er alveg á hreinu að við stöndum betur tæknilega séð en flestar aðrar greinar íslensks sjávarút- vegs.“ Hafið þið notið skilnings stjómvalda og ef til vill aðstoðar hvað varðarfjárfesting- ar, markaðsvinnu og þess háttar? „Það verður nú að segjast eins og er að stjómvöld hafa verið afskiptalaus að vera- legu leyti. Við höfum kannski notið þess á einhvem hátt vegna þess að framleiðend- umir hafa þannig þurft að spjara sig sjálfir. En við hefðum þegið aðstoð. Þetta er ekki iðnaður sem dekrað er við af hinu opinbera. Til dæmis er ætlunin að fara út í samnor- rænt markaðsátak og það verður ekki ger- legt nema með einhverri fyrirgreiðslu eða fjárhagsaðstoð af hálfu hins opinbera. Atakinu er ætlað að styrkja markaðsstöðu kaldsjávarrækjunnar okkar á hinum hefð- bundnu mörkuðum norrænna þjóða. Þróun- in hefúr þar verið sú að heitsjávarrækja frá Suður-Ameríku og Suðaustur-Asíu og eld- isrækja hafa að einhveiju leyti komið í stað kaldsjávarrækjunnar. Þetta gerist þrátt fyrir að gæði heitsjávarrækjunnar séu engan veginn sambærileg. Málið er að hún er ódýrari og við höfum ekki náð nægilega vel til neytenda með að kynna hvað við getum boðið upp á margfalt meiri gæði fyrir ekki svo miklu hærra verð.“ Em þessi markaðsmál ykkar fyrst að fara ígang núna á árinu 1993? „Það var í rauninni farið af stað í svona samnorrænt markaðsátak árið 1990. Þá ákváðu íslensk stjómvöld að veita á árinu 1991 átta milljónum til þess að íslendingar gætu tekið þátt. Því miður náðist bara ekki að vinna þá undirbúningsvinnu sem þurfti að vinna og lítið varð úr öllu saman. Helsta orsökin var að samræmingin við hin Norð- urlöndin fór úrskeiðis á ýmsan hátt. Ég myndi samt halda að þetta sé mjög eðlileg leið fyrir stjómvöld til að styrkja íslenskan rækjuiðnað. Við þurfum að fara að vinna „Rækjuiðnaðurinn hefur undanfarin 5-6 ár verið að taka gífurlegum breyting- um. Arið 1987 var verðið til dœmis mjög hátt en síðan þá hefur það lækkað mjög dramatískt. Menn reyna að mœta þessu með að betr- umbæta verksmiðjumar, búnaðinn og annað, og vinna rækjuna betur til að mæta auknum kröfum neyt- enda. Fólk borgar aðeins toppverð fyrir toppvöru, það er alveg Ijóst. Það er alveg á hreinu að við stönd- um betur tæknilega séð en flestar aðrar greinar ís- lensks sjávarútvegs. “ markaðsvinnuna betur og íslenskir aðilar í rækjuvinnslu hafa til að mynda alls ekki notið sambærilegs stuðnings stjómvalda og hin Norðurlöndin í þessum málum." Sífellt heyrast fréttir um slœmar horfur varðandi þorskstofninn, hvernig stendur rœkjustofninn sig? „Rækjustofninn er í mjög góðu ástandi núna. Fiskifræðingar telja það hanga saman að einhverju leyti við hvað þorskstofninn er lélegur. Þorskurinn virðist nefnilega að ein- hveiju leyti, á tilteknu skeiði ævi sinnar, nærast á rækjunni. Við höfum bara ekki nægilega þekkingu á rækjustofninum hvað varðar sveiflur í stofninum og annað sem nauðsynlegt er að vita til að fylgjast með. Úthafsrækjan er langstærstur hluti fram- leiðslunnar og hana var einfaldlega ekki byijað að veiða fyrr en fyrir tíu áram siðan. Þessar rannsóknir era þó sífellt að aukast, verða betri og hjálpa við veiðamar. Það er þó ljóst að rækjan er alls ekki í neinni niður- sveiflu, nema síður sé.“ Alþýðublaðið rakst í Akureyrarferð sinni á þennan bát þar sem hann bcið tignarlcgur í sólskininu niður við höfn eftir eiganda sínuin. Smábátaeig- endur eru að hugsa sér til hreyfings þessa dagana og víst er að ófáum krötum þætti ekki ónýtt að fara til sjós á bát sem bcr það fagra nafn: MAÍSTJARNAN. Ó, hve létt er þitt skóhljóð og þess háttar... 777 TTT- Djúpslóð Tonn Grunnslóð Tonn Samtals Tonn % djúpslóð % grunnslóö Álið 1985 17.229 7.665 24.894 69,2 30,8 Árið 1986 30.397 5.434 35.831 84,8 15,2 Árið 1987 34.723 3.913 38.636 89,9 10,1 Árið 1988 25.949 3.790 29.739 87,3 12,7 Árið 1989 22.190 4.633 26.823 82,7 17,3 Árið.1990 24.643 5.243 29.886 82,5 17,5 Áriö 1991 31.367 6.909 38.276 81,9 18,1 Árið 1992 38.735 7.465 46.200 83,8 16,2 Tafla númer 1. Rækjuafli á grunn- og djúpslóð árin 1985 til 1992. (Tölur um djúpslóð árið 1992 eru áætlaðar.) Heimild: Fréttabréf Félags rækju- og hörpudiskframleiðcnda. .. Island ' tonn "rr | Grænland Færeyjar tonn Danmðrk tonn Samtals tonn 1985 6.000 20.000 6.000 0 1.000 32.000 1986 8.000 13.500 7.300 1.200 1.000 30.000 1987 7.500 10.500 8.300 2.000 2.000 28.300 1988 6.000 12.200 9.000 1.800 2.000 29.000 1989 7.000 16.000 10.700 2.100 2.000 35.800 1990 9.400 17.700 11.700 2.400 2.000 41.200 1991 10.923 15.527 11.680 2.210 2.000 40.340 1992 12.479 16.486 11.870 2.449 2.000 43.284 Tafla númcr 2. Útflutningur Norðurlandanna á skelflettri kaldsjávarrækju árin 1985 til 1992. (Tölur frá Danmörku eru áætlaðar.) Heimild: Fréttabréf Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.