Alþýðublaðið - 11.06.1993, Side 5

Alþýðublaðið - 11.06.1993, Side 5
 Föstudagur 11. júní 1993 J Sinfóníuhljómsveit íslands, Diddú og hafnfirskir kórar fyrir fullu íþróttahúsinu í Kaplakrika við upphaf Listahátíðar í Hafnarfírði ALÞJÓÐLEC I5TAHÁTÍÐ ^ LISTAHATIÐ I HAFNARFIRÐI 4.-50. JUNÍ LI5TIN ERFYRIRALLA! Fljúgandi start og fjölmenni við opnun þegar yfir 3000 manns mcettu á opnunarhátíð í Kaplakrika fyrir viku istahátíðin í Hafnarfirði hófst með glæsibrag á föstudagskvöldið fyrir viku þegar vel á fjórða þúsund manns komu á tónleika f Iþróttahúsinu í Kapla- krika. Hátíðin hófst með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands, söng hafn- fírskra kóra og einsöng Sigrúnar Hjálmtýsdóttur. Nú er Listahátíðin komin á fullan skrið. Þegar hafa verið opnaðar myndlistarsýn- ingar í Hafnarborg og Portinu. í Hafnarborg sýna Kúbumaðurinn Manuel Mendive og Mexíkaninn Alberto Gutierrez en þau Ragna Róbertsdóttir og Þjóðverjinn Mario Reis sýna í Portinu. Þá hefur tékkneski píanósnillingurinn Peter Mate þegar haldið sína tónleika og í gærkveldi var gítarleikarinn Manuel Bamieco með tónleika. Á hátíðinni er megináherslan lögð á tónlistina. Meðal annarra erlendra tónlistar- manna er búlgarska óperusöngkonan Ghena Dimitrova, Antidogma Musica, sem er þekktasta kammersveit ítala og Cambrian Brass Quintet frá Englandi. Ennfremur koma fram á hátíðinni bandarísku blússöngvaramir Chicago Beau og Deitra Farr og hin vinsæla rokkhljómsveit, Rage Against the Machine, sem verður með tónleika á morgun, laugardag, í íþróttahúsinu í Kaplakrika. Þá er eitt af meginmarkmiðum Listahátíðar í Hafnarfirði að stuðla að nýsköpun og í því skyni hefur hátíðin pantað verk eftir íslensku tónskáldin Atla Ingólfsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Þá verða flutt þrjú ný dansverk sem samin voru sérstaklega íyrir hátíðina eftir þau Ingibjörgu Bjömsdóttur, Nönnu Ólafsdóttur og William Sol- eau. Hafnfirðingar eiga hrós skilið fyrir að standa að þessari glæsilegu listahátíð. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, fær koss að launum fyrir glæsilegan einsöng - A-mvndir E.ÓI. Mcnntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson, bæjarstjórinn í Hafnarfírði, Guðmundur Árni Stefánsson og Sverrir Ólafs son voru mcðal rúmlega þrjúþúsund gcsta, sem hlýddu á Sinfóníuhljómsveitina og söng hafnfírsku kóranna og Diddúar.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.