Alþýðublaðið - 11.06.1993, Side 10
10
Listahátíð í Hafharfirði
Föstudagur 11. júní 1993
Spönnum sem víð
ast svið tónlistar
,Það er engum blöðum umþaðfletta að Nigel Kennedy erþekktastur afþeim öllumu, segir Gunnar Gunnarsson
formaður stjómar Listahátíðar í Hafnarfirði um þá tónlistarmenn sem þarfremja list sína
Peter Mate
Stórkostlegir píanótónleikar
Maður á varla orð til að lýsa þcim því mér fannst maðurinn fara á kostum“, segir Gunnar Gunnarsson flautuleikari um tónleika tékkneska píanóleikarans,
Peter Mate, sem fóru fram síðastliðið sunnudagskvöld. „Þctta eru einhverjir bestu tónleikar scm ég hef hlýtt á. Þarna erum við mcð píanóleikara á hcims-
mælikvarða. Það vekur athygli að þessir píanóleikari kemur utan af landi en hann hefur verið tónlistarkennari á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík síðustu ár.“
Tónleikarnir tókust einstaklega vel og fögnuður áheyrenda var mikill. A-mynd/E.Ol.
„Ég er afar þakklátur Hafnfirðingum og öllum öðrum
sem hafa sýnt þessari listahátíð áhuga og góðar móttökur.
Ég vona að sem flestir geti fundið hér eitthvað við sitt
hæfí“, sagði Gunnar Gunnarsson flautuieikari og for-
_ maður stjómar Listahátíðar í Hafnarfírði þegar Alþýðu-
blaðið hafði sambandi við hann. A þessari listahátíð er
lögð sérstök áhersla á tónlist og við byrjuðum á að spyrja
Gunnar hvernig gengið hefði að fá tónlistarmenn til að
taka þátt í hátíðinni.
rún Óskarsdóttir. Söngtónleikar Ól-
afs Ama em líka spennandi þar sem
hann er að taka þátt í viðurkenndri
alþjóðlegri einsöngvarakeppni en
20 söngvarar vom valdir til að taka
þátt henni. Hann mun syngja á
Listahátíðinni rétt eftir keppnina.
Við reynum að spanna sem víð-
ast svið tónlistar. Við verðum með
nútímatónlist eins og Caput-hópur-
inn og Kolbeinn spilar barrokk m.a.
Þá fömm við yfir í djassinn en Sig-
urður Flosason kemur með norræn-
an djass-kvintett og við fömm yftr í
blúsinn þar sem em Vinir Dóra og
fylgifiskar hans.
Eins og fram hefur komið þá
verðum við með talsverða nýsköp-
un hér á háu'ðinni. Við höfum látið
semja fyrir okkur sérstaklega tón-
verk, leikhúsverk og balietverk.
Þannig höfum við lagt töluverðan
pening í nýsköpun í listum.
Þá er rétt að taka það fram að
hafnftrskir kraftar taka þátt í þessari
hátíð þótt hún sé alþjóðleg. Kórar
bæjarins sungu við opnunarhátfð-
ina og Kammersveit Hafnarfjarðar
tekur þátt í flutningum hjá íslenska
dansflokknum. Þá er Guðrún Ósk-
, Já, það má segja að þetta hafi verið fljúgandi start það sem af er listahátíðinni", segir Gunnar Gunnarsson sem stendur við eitt verka kúbanska myndlistarmanns-
ins Mendieves sem sýnir nú í Hafnarborg
Það hefur gengið mjög vel að fá
tónlistarmenn á þessa hátíð. Svo
þegar fór að nálgast hátíðina fóm
að berast bréf víða að erlendis frá
þar sem menn vom að óska eftir því
að vera með atriði á hátíðinni.
Við höfum reynt að vera með í
bland íslenska tónlistarmenn á há-
tíðinni og svo mjög þekkta erlenda
tónlistarmenn.
Nigel Kennedy þekktastur
Hverjar eru skœrustu stjörn-
urnar sem fram koma á hátíðinni?
Það er engum blöðum um það
fletta að Nigel Kennedy er þekkt-
astur af þeim öllum. Þá er ópem-
söngkonan frá Búlgaríu, Dimitro-
va, mjög þekkt, svo og gítarleikar-
— inn Barmeco sem kemur ffá Kúbu.
Eins má nefna Cambrian Brass
kvintettinn sem kemur ffá Eng-
landi. Það mun því verða fúllt af
þekktum tónlistarmönnum á þess-
ari hátíð. Þá má ekki gleyma ítalska
kammerhópnum Antidogma Mus-
ica.
■ Þá em mjög mörg spennandi ís-
lensk verkefni eins og Caput- hóp-
urinn, Kolbeinn Ámason og Guð-
arsdóttir Hafnfirðingur þannig að
bæjarbúar eiga sína fulltrúa á hátíð-
inni.
+
Rokkað á morgun
Svo verðum við með rokktón-
leika á morgun þar sem stefnir í að
verði metsala á. Þar leikur Rage
Against the Machine og Jet Black
Joe sem er hafnfirsk hljómsveit.
Hvað með aðra atburði?
Það hefur sýnt sig að það er
geysilegur áhugi fyrir gjömingi
Mendives og dönsumm hans frá
Kúbu. Því verður aukasýning á
honum í kvöld. Þau atriði sem við
höfum þegar verið með hafa öll
heppnast mjög vel
Ertu þá ánœgður með viðtök-
urnar hitigað til?
Já, það má segja að þetta hafi
verið fljúgandi start það sem af er
listahátíðinni. Opnunin gekk von-
um framar en það komu yfir 3.000
manns á opnunarhátíðina. Það hafa
margir haft samband við okkur og
látið í Ijós ánægju sína enda fengum
við miklu meiri aðsókn á opnunar-
hátíðina en við áttum von á. Það
sýnir að áhugi Hafnfirðinga og ná-
granna okkar er geysimikill fyrir
þessu framtaki.
Hrópað o^klappað fyrir
Hvernig tókust píanótónleikar
Peter Mate um síðustu helgi?
Maður á varla orð lil að lýsa
þeim því mér fannst maðurinn fara
á kostum. Þetta em einhverjir bestu
tónleikar sem ég hef hlýtt á. Þarna
emm við með píanóleikara á
heimsmælikvarða. Það vekur at-
hygli að þessi píanóleikari kemur
utan af landi en hann hefur verið
tónlistarkennari á Stöðvarfirði og
Breiðdalsvík síðustu ár.
Kanntu einhverja skýringu á
því?
Nei, en að vísu hefur verið tals-
vert um tékkneska tónlistarmenn
hér á Islandi. Þeir eru t.d. nokkrir í
Sinfóníuhljómsveitinni. Ég held að
það hljóti að vera að þeir hafi gefið
landinu svona góð meðmæli að Pet-
er hefur komið hingað. Hann virðist
kunna ákaflega vel við sig hér á
landi og er nú að sækja um vinnu
hér á Suðvesturhominu. En hann er
alveg einstaklega elskulegur dreng-
ur og ótrúlegur spilari enda var
hann klappaður tvisvar upp og
menn hrópuðu af hrifningu í lokin.
Nú ert þú skólastjóri Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar. Verður þú
var við í starfi þínu að tónlistar-
áhugi aukist í tengslum við lista-
liátíð sem þessa?
Já, það er alveg greinilegt að
þetta ýtir undir allt er varðar músík.
Það er einfaldlega þannig að ef það
koma góðir hljóðfæraleikarar á ein-
hvern stað þá streyma böm í skól-
ann og vilja fara að læra. Enda er
aðsókn að skólanum það mikil að
listahátíð hlýtur að hafa ýtt þar eitt-
hvað undir.
Nú er verið að byggja nýjan
glæsilegan tónlistarskóla hér í
Hafnarfirði sem er raunvemlega
fyrsti sinnar tegundar á íslandi fyrir
utan tónskóla Sigursveins. Hann er
sérstaklega hannaður sem tónlistar-
skóli en ég hef nýtt mér tækifærið
nú þegar þessir erlendu gestir og
tónlistarmenn hafa verið að koma
og sýnt þeim teikningar. Þeir lýsa
allir mikilli hrifningu með þetta og
finnst það stórkostlegt framtak.
Sumir hafa haft á orði að þeir hafi
áhuga á að koma hingað að sumar-
lagi til að halda námskeið við skól-
ann.
Er dýrt að halda svona hátíð?
Það er afstætt. Auðvitað kostar
þetta bæjarfélagið peninga en ég er
í engum vafa um að þeir koma inn
aftur með einum eða öðmm hætti.
Þannig má benda á að bærinn eign-
aðist urmul af listaverkum á síðustu
listahátíð sem mynda nú Högg-
myndagarð Hafnarfjarðar og á
þessari hátíð skilst mér að bærinn
eignist eitt skúlptúrverk til. Það sem
skiptir þó ef til vill mestu er hvað
bæjarbragurinn í Hafnarfirði breyt-
ist mikið og mannlíf allt batnar. Ég
held því að þessum peningum sé
ákaflega vel varið. Maðurinn lifir
ekki á brauði einu saman.