Alþýðublaðið - 11.06.1993, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 11.06.1993, Qupperneq 12
12 Föstudagur 11. júní 1993 Stór urriði í Hvammsvík Allt að 15 punda villtir urriðar slíta línur veiðimanna í Hvammsvík „Það slitu tveir svakalegir urriðar hjá mér girnið áðan,“ sagði tólf ára veiðimaður, Axel Sigurðsson, sem titraði af spenn- ingi með stöngina sína, þegar Al- þýðublaðið bar að garði á fimmtudagskvöldið í Hvamms- vík í Hvalfirði. En villtum urrið- um, allt að 15 pundum að stærö, var nýlega sleppt í veiðivatnið í Hvammsvík. Urriðarnir, sem upphaflega voru teknir úr straumvatni á Suðurlandi, hafa tekið mjög vel eftir slepping- una og veiðimenn verið afar ánægðir með tökuna. í tjöminni var fyrir mikið af regnbogasilungi og auk þess nokkur þúsund bleikjur. Eftir að vatnið tók að hlýna hefur verið góð taka, og fjöldi manna sótt veiði um kvöld og helgar. Gunnar Bender, sem ásamt Arn- óri Benónýssyni rekur Hvamms- vík, kvað þá félaga hafa ákveðið að reyna að sleppa talsverðu magni af viíltum urriða, og kanna hvemig hann tæki við sér í tjörninni. „Reynslan af urriðanum er hreint út sagt frábær,“ sagði Gunnar. „Hann tók strikið út í mitt vatn, og byrjaði svo að taka strax um kvöldið. Nokkrir hafa orðið fyrir því að fá stórurriða á agnið, sem hafa ekki látið sig muna um að slíta allt drasl- ið. Mönnum finnst þetta mjög spennandi." Hvammsvík er að verða einn vinsælasti veiðistaðurinn í nágrenni höfuðborgarinnar, ódýr og að- gengilegur, enda koma þangað fjöl- margar fjölskyldur með böm sín um kvöld og helgar og kenna þeim undirstöðu veiðimennskunnar við skilyrði, þar sem vfst er, að menn fái góða veiði. Staðurinn er opinn allan daginn. Gísli Örn Gíslason mcð einn af stór- urriðunum í Hvammsvík í Kjós, sem cr oröinn vinsælasti vciðistaðurinn í nágrcnni höfuðborgarinnar. Þar veiðist í scnn regnbogasilungur, bleikja og urriði. Og hver slær hend- inni á móti því að setja í allt að 15 punda villtnn urriða? ÓDÝRARI GISTING Gisting og golf Gisting, morgunverður innifalinn, aðgangur að níu holu golfvelli, sauna sem staðsett er í hótelinu og sundlaug slaðarins. Gestir geta lagt bílum sínum á bflastæði hótelsins og þurfa ekki að hreyfa hann fyrr en þeir fara. Verð kr. 3-600 á mann í tveggja manna herb. Gisting og eyjaferðir Gisting, morgunverður innifalinn, sigling með Eyjaferðum um Suðureyjar, ca. tvær klst. Verð kr. 5.660 á mann í tveggja manna herb. Gisting og Flateyjarferð Gisting með morgunverði, sigling með ferjunni Baldri til Flateyjar. Verð kr. 5.300 á mann í tveggja manna herb. Flateyjarferð og útsýnisferð um Vestureyjar Gisting, morgunverður innifalinn, sigling með ferjunni Baldri til Flateyjar og útsýnisferð frá Flatey um Vestureyjar. Verð kr. 6.300 á mann í tveggja manna herb. Hódegisverður fró kr. 795. Kvöldverður fró kr. 1.195. Breyttu til! Breiðfírskar sumarnætur Hótel Stykkishólmur ' Sími 93-81330 - Fax 93-81579 Lipovetsky með tónleika í Hafnarborg Leonidas Lipovetsky verður með píanótónleika í Hafnarborg á mánu- daginn kl. 20:30. Hann er af rúss- nesku bergi brotinn og Iék fyrst opin- berlega aðeins 12 ára gamall í heima- borg sinni, Montevideo í Úruguay. Síðan hefur hann leikið í öllum helstu tónleikasölum á Vesturlöndum og hlntið lof gagnrýnenda fyrir listræna túlkun og gallalausa tækni. Lipovetsky nam píanóleik hjá Wil- helm Kolischer f Montevideo og í Juilli- ard School of Music í New York. Þar var hann fyrsti styrkþegi Van Clibum- styrksins og fékk einnig styrk Pan Am- erican Union Fellowship til að læra hjá Rosínu Lhevinne. Hann vann Concerto samkeppnina og kom ffam sem einleik- ari með Juilliard-hljómsveitinni, undir stjóm Jean Morel, sem sigurvegari jreirrar keppni. Hann kennir nú píanó- leik við Tónlistardeild Háskólans í Flór- ída og fer í tónleikaferðir um heiminn á hverju ári. Listahátíð í Hafnarfirði Hvað er á döfinni? Rage Against the Machine í Krikanum Bandaríska rokk-hljóm- sveitin Rage Against the Mac- hine verður með tónleika í Kaplakrika annað kvöld. Á tónleikunum kemur einnig fram hafnfirska hljómsveitin Jet Black Joe sem nýtur sífellt meiri vinsælda hér á landi. Hljómsveitina Rage Against the Machine skipa Zack de la Rocha söngvari, Timmy C. á bassa, Brad Wilk á trommur og Tom Morello á gítar. Þeir þykja spila nokkuð villta þungarokks- músik með punkívafí. Þá þykja þeir róttækir í skoðunum og pól- itískir í söngvum sfnum. Meðal þekktra laga sveitarinnar em Settle For Nothing, Killing in The Name og Builet In The He- ad. Tom Morello er fæddur í New York en ólst upp í Libertyville í Illinois. Faðir hans var félagi í Mau Mau skæruliðahernum sem frelsaði Kenýa undan Bretum. Móðir hans er einn af stofnendum Foreldra- samtaka fyrir Rock og Rap sem berst gegn ritskoðun. Tom lærði f Harvard-háskóla og útskrifaðist þaðan með sæmd árið 1986. Brad Wilk er fædd- ur í Portland í Oregon og bjó í Chicago áður en hann flutti til Suð- ur-Kalifomíu. Timmy C. bassa- leikarinn hlustar á In- side Out og Bad Bra- ins og er hamingju- samur yfir að vera lif- andi. Zack de la Rocha fæddist á Long Beach í Kaliforníu árið 1970 og var alin upp hjá móður sinni í Irvine í sama fylki. Það stefnir í að uppselt verði á tónleika Rage Against the Mac- hine enda hefur hljómsveitin verið mjög vinsæl hér á landi að undanfömu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.