Alþýðublaðið - 17.06.1993, Page 3
3
Fimmtudagur 17. júní 1993
SUJJundar á laugardaginn
Hver er staðo kvenna í
Alþýðuflokknum?
,jig á von á því að þetta verði í senn líflegur og gagnlegur
fundur. Með þessu vilja ungir jafnaðarmenn ræða af einurð
og hreinskilni um stöðu jafnréttismála í Alþýðuflokknum,"
sagði Stefán Hrafn Hagalín, ffamkvæmdastjóri Sambands
ungra jafnaðarmanna, um sambandsstjómarfund sem haidinn
verður í Bláa lóninu, næstkomandi laugardag, 19. júní.
I tilkynningu framkvæmdastjómar SUJ um fúndinn eru
ungar konur sérstaklega hvattar til að mæta á fundinn, og velt
upp nokkmm spumingum: Hver er hin raunverulega staða
kvenna innan samtaka okkar? Er konum mismunað við kosn-
ingar í embætti og við stöðuveitingar? Afhveiju em ekki fleiri
konur í háttsettum embættum? Em konur tregari en karlar til
að taka að sér erfið stjómmálastörf? Ber að taka upp kynja-
kvóta í allar stjómir, nefndir og ráð? Hverjar em framtíðar-
lausnimar?
Fundurinn hefst klukkan 11 á laugardaginn og lýkur klukk-
an 16. Auk hins sérstaka umræðuefnis munu fara ffarn kosn-
ingar í trúnaðarstöður innan Sambands ungra jafhaðarmanna.
Það verður því hægt að sjá í reynd hver staða ungra kvenna er
innan SUJ.
Ráðherrann með sendinefndinni úr Vesturbænum: Jökull, Össur, Þorsteinn Máni og Garpur. (A-mynd: E.Ól.)
Stórfelldar símatruflanir geta þýtt stórtap hjá
ýmsumfyrirtækjum sem reiða sig á síma ogfax
ER PÓSTIIR OG SÍMI
SKAÐABÓTASKYLDUR?
Nútímatækni í símamálum hefur gjörsamlega bmgðist í
Reykjavík í þessari viku. Margslunginn tölvubúnaður virðist
hafa mátað fjölmarga sérfræðinga, íslenska sem erlenda. Þeir
standa ráðþrota og finna enga bilunina í kerfmu. Svo kann að
fara að Póstur og sfmi fari í mál við danska símafélagið sem
annaðist um uppsetningu nýs símabúnaðar með þeim afleið-
ingum að höfuðborg íslands var símalaus að stómm hluta eða
með stórkostlegar símabilanir í tvo daga í það minnsta.
Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins telja mörg fyrir-
tæki sem mjög em háð talsíma og faxi, að þau hafi orðið fyr-
ir vemlegum peningalegum skaða vegna símatruflunarinnar.
Jónas Friðrik Jónsson, lögffæðingur hjá Verslunarráði ís-
lands sagðist hafa orðið var við mikinn pirring hjá félögum í
ráðinu. Hann sagðist ekki hafa nein áþreifanleg dæmi um tjón
af þessum völdum. Hinsvegar sagðist hann ekki telja nokkum
vafa á að um slíkt hefði verið að ræða hjá einhveijum, enda
ljóst að fyrirtækin reiða sig mjög á þjónustu símans og geta
hreinlega ekki starfað án hennar. Hann vissi um marga sem
höfðu misst samband í miðjum samtölum, og það boðar sjald-
an gott þegar menn standa í viðskiptum sín á milli.
Sagði Jónas að erfitt væri að meta hvort Póstur og sími gæti
orðið skaðabótaskyldur vegna tapaðra viðskipta. Erfitt yrði að
forma slíkar skaðabótakröfur, og sönnunarbyrðin mundi án
efa reynast erfið.
Símabilunin er nú talin fúndin, - hún lá í forriti, sem klikk-
aði þegar mikið álag varð á einhvem tiltekinn hluta símkerf-
isins, en engin skilaboð um hvar villuna væri að finna, komu
ffam.
Á þessari mynd má sjá tvo unga „græðlinga“ sem eiga eftir að
vaxa og dafna í íslcnsku umhverfi landinu til góðs.
SKOGRÆKT MEÐ
SKELJUNGI
Á undanfömum ámm hefur áhugi landsmanna á land-
græðslu og skógrækt margfaldast. í upphafi sumars þyrpist
fólk út í náttúmna til að leggja hönd á plóginn við upp-
græðslu. Fyrir síðustu helgi bauð Skógrækt ríkisins að Mó-
gilsá öllum þeim sem vom á leið út úr bæum að heimsækja
rannsóknastöðina og Jtiggja faglegar ráðleggingar starfs-
manna um skógrækt. I vegamesti fékk hver fjölskylda eina
birkiplöntu til gróðursetningar.
Skógræktin og Skeljungur hf. hafa nú tekið ugp formlegt
samstarf á sviði skógræktar undir slagorðinu „SKOGRÆKT
MEÐ SKELJUNGI“. Framlag fyrirtækisins er tengt sölu á
bensínstöðum Skeljungs. Nú þegar hefur skógræktin hlotið
fjögurra milljóna króna framlag, sem er að andvirði 200 þús-
und trjáplantna. Um fjögur hundmð manns lögðu leið sína að
Mógilsá af þessu tilefni.
Össur fær öflugcm liðstyrk
- Þrír knáir Vesturbœingar mótmœla hávaðamengun við Hringbraut.
Hollustuvemd verðurfalið að rannsaka málið
„Mér hafði ekki dottið í hug að
taka þyrfti á þessum málum, en svo
koma níu ára strákar og benda mér
á þetta,“ sagði Össur Skarphéðins-
son umhverflsráðherra eftír fund
sem hann átti í gær með þremur
borubröttum og hugmyndaríkum
Vesturbæingum.
Garpur I. Elísabetarson, 9 ára, átti
frumkvæði að fundinum og hafði Jökul
tvíburabróður sinn og Þorstein Mána
frænda sinn með í för. Þeir hittu Össur
á skrifstofu umhverfisráðherra laust
undir hádegi í gær og áttu gott spjall
um umhverfismál. Garpur gerði ráð-
herranum grein fyrir mikilh hljóð-
mengun frá Hringbrautinni þarsem
dmnur í bílum sem ekið er á miklum
hraða halda vöku fyrir honum. Össur
sagði að þessi mál væm á könnu Holl-
ustuvemdar sem einmitt heyrir undir
umhverfisráðuneytið, og sagði að mál-
ið yrði kannað.
I ffamhaldi af þessu ræddu þremenn-
ingamir nokkuð um umferðarmál við
Össur, enda hafði Jökull orðið fyrir því
óhappi kvöldið áður að biffeið var ekið
á reiðhjól hans. Jökull slapp góðu heilh
betur en á horfðist.
Frændumir færðu Össuri minnisblað
með nokkmm atriðum sem þeir vilja að
hann taki til athugunar. Þar var hávaða-
mengun ffá Hringbraut auðvitað efst á
blaði, en einnig var ráðherrann hvattur
til að beita sér fyrir því að hjólabrautir
verði lagðar og spomað gegn mengun
ffá tóbaksreyk. Þá lögðu Garpur, Jökull
og Þorsteinn Máni til að fleiri tré yrðu
gróðursett og að fjörumar og sjórinn
yrðu hreinsuð.
„Allt em þetta athyglisverð mál. Nú
verðum við bara að láta verkin tala,“
sagði Össur. Og því vom strákamir
auðvitað hjartanlega sammála enda var
það einmitt það sem þeir, harðsnúnir
KR-ingamir, ætluðu að gera í knatt-
spymuleik á móti ÍR eftir að fundinum
með umhverfisráðherra lauk.
Ghena Dimitrova og Sinfóníuhljómsveit íslands.
Tónleikar
í Kaplakrika
18. júní ki. 20:30
Gena Dimitrova er heimsfræg söngkona, ættuð frá
Búlgaríu. Tónleikar hennar nú, eru einstæður
listviðburður hér á landi, sem tónlistarunnendur ættu
ekki að láta fram hjá sér fara.
ALÞ
JÓfpLE<
VHÁTH
LI5TAH
I hafnarfirði
4.-50. JUNÍ
LISTIN ERFYRIRALLA!
Pantið miða tímanlega! Upplýsingar og miðapantanir í síma 65 49 86.
Aðgöngumiðasala:
Bókaverslun Eymundsson í Borgarkringlunni og við Austurvöll. Hafnarborg,
Strandgötu 6, Hafnarfirði. Myndlistarskólinn í Hafnarfirði, Strandgötu 50.
Nigel Kennedy og hljómsveit.
Heimsfrægi og óútreiknanlegi fiðlusnillingurinn, sem
sameinar á svo listilegan hátt jass, rokk og klassíska tónlist
heldur hér einstæða tónleika.
U ALÞJÓÐLEC
. t LI5TAHÁTIO
I HAFNARFIRÐI
4.-50. JUNÍ
LISTIN ERFYRIRALLA!
Pantið miða tímanlega! Upplýsingar og miðapantanir í síma 65 49 86.
Aðgöngumiðasala:
Bókaverslun Eymundsson í Borgarkringlunni og við Austurvöll. Hafnarborg,
Strandgötu 6, Hafnarfirði. Myndlistarskólinn í Hafnarfirði, Strandgötu 50.