Alþýðublaðið - 17.06.1993, Page 5
Fimmtudagur 17. júní 1993
Gotland vill endurheimta fyrri stöðu og verða
5
Genf Eystrasaltsins
Vinsœlasti ferðamannastaður Svía býður upp á víkinga, fomminjar, kirkjur, reyktan bjór, sauðfé og rósir.
Visby er höfuðstaður Gotlands. Á myndinni má sjá hluta af gömlu borginni, borgarmúrana sem reistir voru á þrettándu öld og dómkirkjuna scm byggð var af þýsk-
um kaupmönnum á Ijórtándu öid.
Gotlendingar eru frægir fyrir steinsmíði. Hér má sjá hvemig Olov Nilsson ber
sig að en hann hefur 35 ára reynslu að baki.
Gotland er sögufræg eyja á
miðju Eystrasalti, nánast mitt á
milli Svíþjóðar og Eistiands. Eyj-
an hefur tilheyrt Svíþjóð frá
1647, en hefur einnig verið undir
stjórn Dana og Þjóðverja. Ekki
er víst að Gotland sé á sumarleyf-
islista Islendinga, en eyjan er hins
vegar einn vinsælasti sumarleyf-
isstaður Svía. Islendingar ættu
þó að leggja leið sína til Gotlands
við tækifæri, því margt er sam-
eiginlegt með þessum tveimur
sögufrægu eyjum, þó Gotlend-
ingar hafi sól og sendnar strend-
ur fram yfir okkur. Þetta sannast
m.a. á því að Gotlendingar gera
ferðamannaþjónustuna út á vík-
ingatímann, miðaldabyggingar,
fisk og lambakjöt, og likt og á Is-
landi er þar gamalt Alþingi og
mikilvæg herstöð sem misst hef-
ur hlutvcrk sitt eftir lok kalda
stríðsins. Eftir fall Sovétríkjanna
og sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna
hefur staða Gotlands skyndilega
breyst og vilja eyjaskeggjar end-
urheimta fyrri stöðu sína sem
miðpunktur viðskipta og þjón-
ustu, og gera Gotland að einskon-
ar Genf Eystrasaltsins. Blaða-
maður Alþýðublaðsins var á Got-
landi fyrir skömmu og lýsir því
sem fyrir augu ber.
Borgaramúrar
Visby er höfuðborg Gotlands og
þar búa 40.000 af 57.000 íbúum
landsins. Yfir sumartímann tvö-
faldast hins vegar ibúatalan því
margir Svíar af fastalandinu eiga
þar sumarhús eða fasta búsetu yfir
heitásta tímann. Ferðamannaþjón-
ustan er mikilvæg atvinnugrein, því
um hálf milljón ferðamanna leggja
leið sína til eyjarinnar á ári hveiju.
Þjónusta við ferðamenn gefur af sér
um 8 milljarða íslenskra króna í
Blokk frá því um 1200. í Visby voru
byggð margra hæða steinhús á þrett-
ándu öid, sem varla þckkist á Norð-
urlöndunum á þeim tíma.
tekjur og hefur skapað um 2000
föst ársstörf.
Gamli bærinn í Visby er saman-
safn vel varðveittra fomminja sem
er afar athyglisvert að skoða. Boðið
er upp á tveggja tíma gönguferð um
miðbæinn með leiðsögn. Svæðið
afmarkast af hinum 3,5 kílómetra
langa borgarmúr sem reistur var á
þrettándu öld. Múrinn er mjög heil-
legur og er eini virkisveggurinn í
öllu Svíaríki sem enn er uppistand-
andi.
Gönguferðin hefst við minja-
safnið, sem er mjög glæsilegt, og
gætu menn eytt þar nokkrum dög-
um ef þeir hafa tíma. Þar em at-
hyglisverðar steinristur frá víkinga-
tímanum sem falla vel að þeim lýs-
ingum sem er að finna í Islendinga-
sögunum. Fyrst er gengið í Alme-
dalen þar sem gamla höfnin var áð-
ur, en nú er þar tjöm og útivistar-
svæði. I dag er Almedalen frægur
fyrir að vera samkomustaður fyrir
pólitískar kappræður og tónleika-
hald. Það var Olov Palme sem kom
þessari hefð á árið 1968, sem hefur
haldist síðan. Palme fékk mest
5000 manns á fund á þessum stað
sem öðmm hefur ekki tekist að
leika eftir. Gotlendingar reistu
minnisvarða um Palme eftir dauða
hans 1986.
Frá gömlu höfninni er gengið inn
fyrir borgarmúrinn þar sem er að
finna gömul vel varðveitt hús frá
víkingatímanum og miðöldum,
þegar Gotland var miðstöð verslun-
ar og þjónustu á Eystrasalti. Sum
húsin em ótrúlega vel varðveitt og í
flestum þeirra er ennþá búið eða
starfræktur atvinnurekstur.
Gotland er einnig þekkt fyrir að
vera „kirkju-eyjan“, sökum þess
hve margar gamlar kirkjur em þar.
Flestar kirkjumar vom byggðar á
tólftu og þrettándu öld eða um 100
talsins. Þar af em 92 af þeim ennþá
í notkun.
Víkingabyggð
Víða má sjá ummerki eftir vík-
ingabyggðina á Gotlandi sem lifði
Víkingurinn á myndinni er ekki úr
kvikmynd eftir Hrafn Gunnlaugsson,
heldur lifandi minning víkingatímans
á Gotlandi sem ferðamönnum gefst
kostur á að taka þátt í.
sitt blómaskeið frá 700 til 1100.
Þegar allar samgöngur voru bundn-
ar við hafið komu norrænu víking-
arnir gjaman við á Gotlandi til að
kaupa vistir og þjónustu á leið í
austurveg, eftir rússnesku fljótun-
um til Miklagarðs. 1 bakaleiðinni
komu þeir síðan með dýrmætan
varning sem þeir seldu m.a. á Got-
landi. Gífurlegur fjöldi gull- og silf-
urpeninga sem fundist hefur í jörðu
á eynni er til vitnis um það hversu
umfangsmikil þessi viðskipti voru.
Líkt og við Islendingar hafa Got-
lendingar reynt að markaðssetja
víkingatímann og hefur hann verið
aðdráttarafl fyrir ferðamenn. I vík-
ingabænum Tofta getur ferðafólk
upplifað víkingastemmninguna og
komist í beina snertingu við forfeð-
uma. Þar geta menn hitt kappa eins
og Eirík Blóðöxi og fengið að prófa
vopn hans og klæði. Þá geta áhuga-
samir lært að kasta öxi og tekið þátt
í þeim íþróttum sem stundaðar vom
á þessum tíma. Að kveldi er boðið
til veislu að hætti víkinga þar sem
gestimir klæðast viðeigandi bún-
ingum og rífa í sig heilgrillað lamb
og renna niður með ómældu magni
af öli. Hins vegar mælir sá er þetta
ritar ekki með öli staðarins (Got-
landsdricka), sem hefur verið
bmggað eftir sömu uppskrift síðan
á miðöldum. Um er að ræða ljós-
brúnt öl sem bragðbætt er með
kryddjurtum og bragðast helst eins
og reyktur bjór!
Gotlendingar minnast miðald-
anna einnig með mikilli reisn, enda
átti aðal uppbyggingin sér stað á
þrettándu og Qórtándu öld. Þá reis
upp nútímaleg borg í Visby sem var
langt á undan sinni samtíð í Norð-
ur-Evrópu. Á ári hverju er haldið
upp á þessa blómatíma með svo-
kallaðri miðaldaviku sem byijar 8.
ágúst. Þá klæðast borgarbúar og
ferðamenn ntiðaldaklæðum og
marséra meðfram gömlu borgar-
múrunum.
Steinsmíði, sauðfé og rósir
Hver staður hefur sín einkenni og
þau eru mörg á Gotlandi. Fyrir utan
söguna og fornminjar er Gotland
m.a. frægt fyrir steinsmíði og kera-
mik. Á eynni er nóg af sandsteini
sem hentar mjög vel til smíða og
húsagerðar. Fyrr á öldinni var
námugröftur stærsta atvinnugrein-
in, en í dag er steinsmíðin umfangs-
minni. Nokkrir einstaklingar á suð-
urhluta eyjarinnar hafa viðhaldið
þessari verkkunnáttu og selja tals-
vert af minjagripum sem þeir
höggva í stein.
Sauðfjárbúskapur hefur einnig
aðgreint landbúnað á Gotlandi frá
því sem þekkist á meginlandinu.
Líkt og á Islandi er sauðkindin í
miklu uppáhaldi á Gotlandi og
prýðir fána eyjarskeggja. Á Got-
landi er hins vegar alltaf talað um
Iamb en ekki ær og skiptir þá engu
hve gamlar skepnumar eru. Inn-
fæddir neyta mikils lambakjöts en
að sögn þeirra sem blaöamaður hitti
hefur ekki tekist að markaðssetja
það erlendis og illa gengur að fá
ferðamenn til að borða það.
Gotlendingum virðist þó hafa
gengið betur að vernda land og
gróður fyrir ágangi sauðfjár, en
okkur íslendingum. Til marks urn
þetta er víða fallegur gróður og eitt
af einkennum staðarins em rauðar
(krata)rósir. Þær prýða gjaman
garða við íbúðarhús og em sérlega
áberandi í Botaniska trégarðinum
sem ræktaður hefur verið í tvær ald-
ir.
Haf friðarins
Segja má að Gotland hafí breyst
úr einangraðri eyju í útjaðri hins
vestræna heims í miðpunkt Eystra-
saltsins við lok kalda stríðsins. Eftir
að tengslunum var aftur komið á
við Rússland, Eistland, Lettland,
Litháen og Pólland er Gotland orð-
in miðpunkturinn á hinu nýja
landakorti. Lars Danielsson, sem
starfar hjá sveitarfélaginu, sagði í
samtali við Alþýðublaðið að hug-
myndin væri að gera Gotland mið-
stöð friðar og alþjóðlegra sam-
skipta, og landið yrði þá einskonar
Genf Eystrasaltsins. Hann segir að
það beri að nýta legu landsins og
bjóða upp á aðstöðu fyrir alþjóðleg-
ar stofnanir, ráðstefnur og fundi.
Einnig geti Gotland endurheimt
hluta af fyrri verslunammsvifum og
boðið atvinnurekendum aðstöðu.
Sjálfstæði?
Gotlendingar eiga sitt gamla Al-
þingi, sem þó hefur ekkert vald á
móts við það íslenska. Þó er til
stjómmálaflokkur sem hefur sjálf-
stæði Gotlands og endurreisn Al-
þingis á sinni stefnuskrá. Þessi hóp-
ur stefnir einnig að því að Gotland
verði einskonar fríríki, skattaparad-
ís, sem muni laða að sér erlent fjár-
magn - líkt og víkingasilftíð forð-
um. Það er því aldrei að vita nema
Gotlendingar geti, í framtíðinni,
haldið upp á sjálfstæði sitt líkt og
við íslendingar í dag.
Ef þið viljið smakka reyktan bjór þá skuluð þið fara til Gotlands. „Gotlandsdr-
icka“ er mjög sterkur bjór sem bruggaður hcfur verið á eynni í aldir, cn bragð-
ast eins og hann hafi verið reyktur.