Alþýðublaðið - 17.06.1993, Page 8
MHBUMMB
Fimmtudagur 17. júní 1993
89 TOLUBLAÐ - 74. ARGANGUR
L#TT#
alltaf á miðvikudögum
Gleðitíðindi fyrir hið gjaldeyrisþyrsta þjóðabú
GÍFURLEGUR VÖXTUR
í HESTAÚTFLUTNINGI
Gífurlegur vöxtur hefur verið í útflutningi á íslenskum hest-
um undanfarin ár. Það er ljóst að þessi útflutningur er farinn að
skipta verulegu máli við gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins. Arið
1983 voru flutt út 286 hross en á síðasta ári, aðeins áratug síðar,
var þessi tala komin upp í 2.000. Útflutningurinn hefur þannig
tífaldast á tíu ára tímabili. FOB-verð útflutningsins í fyrra var
um 168 milljónir.
Hversu marga af þessum gullfallegu hestum skyldi vera búið að selja utan? Þessi
fallega mynd birtist í Eiðfaxa í fyrra og er hún tekin þegar stóðhestarekstur í Ár-
bæjarafrétt stúð sem hæst. (Eiðfaxi)
Á þessu súluriti má sjá þróunina á fjöida útfluttra hesta árin 1983 til 1992.
(Fréttabréf Eimskips)
Ef miðað er við að meðalsölu-
verðmæti hests sé um 150 þúsund
þá má ætla að verðmætið sem
fékkst fyrir útflutta íslenska hesta á
síðasta ári hafi verið um 300 millj-
ónir króna. Þetta kemur meðal ann-
ars fram í nýjasta fréttabréfi Eim-
skips. Heimildir Alþýðublaðsins
greina frá því að fjölmörg dæmi séu
um að gæðingur hafi verið seldur
héðan fyrir milljónir króna.
í apnlmánuði síðastliðnum flutti
Eimskip stærsta farm sinn af hest-
um hingað til. Þá voru fluttir út 100
hestar með Laxfossi til Bretlands
og Þýskalands. Þetta eru nokkur
tíðindi því algengast er að hver
farmur áætlunarskipa Eimskips sé
um 50 hestar. Miðað við þær for-
sendur sem við gáfum okkur hér að
ofan þá má ætla að útflutningsverð-
mæti þessa eina farms hafi verið að
minnsta kosti 15 milljónir króna.
Hestamir em fluttir í sérstökum
hestagámum Eimskips en félagið
tók nýlega í notkun fimm nýja
gáma í notkun sem sérstaklega em
hannaðir fyrir hestaflutninga.
Nýtt Róðhústorg, -
eða Sahara Akureyrar?
Svona lítur nýtt Ráðhústorg í
miðbæ Akureyrar út eftirgagngerar
breytingar sem staðið hafa yfir í
hátt á annað ár. Þessar breytingar
em vægast sagt umdeildar. Fyrir
það fyrsta er notagildið dregið í efa
af sumum. Aðrir segja verst hvað
torgið sé orðið grátt og líflaust
svæði, þar sem ekki er að finna eitt
stingandi strá. Áður en torginu var
breytt og það hellulagt, var þar
nefnilega gata og gangstétt um-
hverfis stóran, hringlaga, grænan
reit, sem var grasi gróinn og prýdd-
ur tijám. „Nú er þama grár og skjól-
lítill geymur þar sem það eina sem
gleður augað er mismunandi hellu-
munstur", segja þeir daprir í bragði
sem sakna gamla góða torgsins, en
líkja því nýja við Sahara-eyðimörk-
ina. -A-mynd STH.
Sérleyfisferðir til
ísafjarðar
Sparfaraiöld
fró
Reykjavík
Allrahanda, Guðmundur
Jónasson og Norðurleið
með samtengt áætlana-
kerfi
í sumar verður boðið upp á
sérstök „sparfargjöld" á áætl-
unarleiðinni milli ísaljarðar
og Reykjavíkur séu miðar
keyptir báðar leiðir. Þá borga
menn 4.650 kr. fyrir ferðina
fram og til baka eða helmingi
minna en ella og jafn mikið
og fyrir aðra leiðina.
I þessum mánuði hófust
áætlunarferðir á milli Isa-
Qarðar og Reykjavíkur og
Isafjarðar og Akureyrar með
sérleyfisbílum með sam-
tengdum áætlunum Allra-
handa hf. og Guðmundar Jón-
assonar hf. og Morðurleiðar
hf. Allrahanda ekur leiðina
Flateyri - Brú - Hólmavík,
Guðmundur Jónasson
Hólmavík - Brú - Reykjavfk
og Norðurleið Brú - Akur-
eyri. Ekið verður tvisvar í
viku í júní en þrisvar í viku í
júlí og ágúst.
Sérfargjöldin á milli ísa-
fjarðar og Reykjavíkur gilda
takmarkað, ekki í öllum ferð-
um, og aðeins í takmarkaðan
íjölda sæta hverju sinni. Þá
verður að panta ferðina með
minnst tveggja daga fyrir-
vara.
Tryggvi sýnir
á Mokka
Góður gestur opnar mál-
verkasýningu á Mokka á
sunnudaginn, Tryggvi Ol-
afsson, sem starfar í Kaup-
mannahöfn. Sýningin er
býsna margbreytileg og er
þar að finna myndir gerðar
með tússbleki, lítil málverk
og smámyndir gerðar með
litblýi, litógrafíur og fleira. Sýningin stendur í fjórar vikur.
Píanótónleikar í Norræna húsinu
Sænski píanóleikarinn Carl Pontén heldur tónleika í Norræna hús-
inu á morgun, laugardag, kl. 16. Pontén er búsettur á Italíu. Hann hef-
ur haldið tónleika víða um Evrópu og fengið lof fyrir meðal áheyrenda
og gagnrýnenda. Á efnisskrá em verk eftir Chopin, Stenhammar og
Liszt. Islandsbanki styrkir komu hans hingað til lands og er aðgang-
ur ókeypis og öllum heimill sem njóta vilja.
Stjómarfundur í Miklagarði hf. tók þá ákvörðun á mánudags-
kvöldið að óska eftir því að bú félagsins yrði tekið til gjaldþrotaskipta.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur nú í höndum beiðni um skiptin.
Rekstrarafkoma fyrirtækisins hefur verið afleit og efnahagsstaðan
hmnin. Á endurskoðuðum ársreikningi fyrir 1992 kemur í ljós tap að
upphæð 559 milljónir króna. Eignir í árslok vom taldar 1.624 milljón-
ir en skuldir 1.859 milljónir. Eigið fé fyrirtækisins var þannig neikvætt
upp á 235 milljónir um áramót. Áætlað bókfært verð eigna þann 10.
júní var 876 milljónir og heildarskuldir 1.469 milljónir. Eigið fé var
þannig orðið neikvætt um 593 milljónir króna. Margir undrast það að
stjómendur fyrirtækisins hafa látið fljóta að feigðarósi og talið sér og
öðrum trú um að staðan væri allgóð og batnandi. Svo var ekki. Þá ber
á að líta að trúlega er eignastaðan gróflega ofmetin, t.d. verslunarbún-
aður ýmiskonar, sem ekki er sagður ýkja mikils virði í dag.
ísland í 7. sæti meðal ostaþjóða
f skýrslu yfir mestu ostaþjóðir heims er ísland í 7. sæti ásamt Sviss
og Lúxembúrg. Frakkar, Grikkir og ítalir skipa þrjú efstu sætin. Auk-
in neysla á þessari hollustuafurð má án efa þakka þróttmiklu markaðs-
starfi Osta- og smjörsölunnar, þess ágæta íyrirtækis. Samkvæmt
skoðanakönnun Félagsvísindadeildar fyrir Iðntæknistofnun stendur
engin iðngrein sig eins vel í vömþróun og íslenskur mjólkuriðnaður.
Undirþetta taka þakklátir neytendur. Til viðbótarum mjólkurdrykkju:
Rússar drekka þjóða mest af mjólk, 251,8 lítra á mann; ísland er þar í
öðm sæti með 197,5 lítra. Þessar tölur eiga við árið 1991.
Bragðgóður íslenskur Camembert er framleiddur hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna.
Öld frá fyrstu útskrift
í mars árið 1893 vom fyrstu nemendur Stýrímannaskólans í
Reykjavík útskrifaðir. Þessa minntist skólameistari, Guðjón Ár-
mann Eyjólfsson í skólaslitaræðu nýverið. Á skólaárinu sem nú er
liðið luku 68 nemendur skipstjómarprófum á þrem stigum sem veita
réttindi til stjómar misstórra skipa. Hæstu meðaleinkunnir hlutu tveir
nemendur 1. stigs, þeir Róbert Hafliðason, Grindavík og Þorsteinn
Örn Andrésson, Reykjavík, 9,21. Á 2. stigi urðu efstir og jafnir þeir
Gísli Snaebjörnsson, Patreksfirði og Jóhann Steinar Steinarsson,
Reykjavík, með 9,0; á þriðja stigi varð hæstur Martin Harris Avery,
frá Vestmannaeyjum.
96 milljón króna tap á Landakoti
Rúmlega 96 milljón króna tap varð á rekstri Landakotsspítala á
síðasta ári, mikil umskipti, því 22 milljóna rekstrarafgangur varð árið
á undan. Fjárveitingar til spítalans vom skomar niður um 420 milljón-
ir og starfsemin í endurskipulagningu. Fyrstu tjóra mánuði þessa árs
hefur að auki orðið 21,5 milljón króna tap, þar af em vaxtagjöld vegna
eldri skulda um 10 milljónir. Nú er unnið að því að bregðast við vand-
anum. Meðal annars mun aðgerðum við spítalann fækka nokkuð; út-
boð verða aukin, og hugað að sameiningu legudeilda. Þá verður starfs-
fólki fækkað um 10.
S TIJ T T W J! íl T TIII
Mikligarður í gjaldþrot