Alþýðublaðið - 06.07.1993, Side 3
3
Þriðjudagur 6. júlí 1993
----------7-----------
Islenska sjávarútvegssýningin 1993 stœkkar sýningu eftir sýningu
ÞREFALDA VERÐUR
sýningarplássið
Það er ljóst að íslenska sjávarútvegs-
sýningin sem haldin verður fjórða sinni í
september hefur haslað sér góðan völl
um víða veröld og að vægi hennar hefur
vaxið til muna, sýningu eftir sýningu. Nú
þegar hafa nærri þrjú hundruð íslensk
og erlend fyrirtæki og stofnanir skráð
þátttöku sína í sýningunni. Þar á meðal
eru fjölmargir erlendir sýnendur sem
ekki hafa tekið þátt áður.
Sýningin verður haldin í Laugardalshöll
dagana 15. til 19. september og verða með-
al þátttakenda hópur fyrirtækja í Nova Scot-
ia í Kanada, styrkt af stjómvöldum þar í
landi og fyrirtæki ffá fyrrum Austur-Þýska-
landi. Fjölmargir aðrir aðilar mæta nú í
fyrsta sinni og hinir eldri láta sig ekki vanta.
Ellen Ingvadóttir, blaðafúlltrúi sýningar-
innar, sagði Alþýðublaðinu að sýningin
yrði á 8 þúsund fermetra sýningarrými.
Reistir verða tveir sýningarskálar við höll-
ina, 100 metra langir og um 25 metra breið-
ir, einskonar skyndihús og tækniundur hið
mesta. Við þetta þrefaldast sýningarsvæðið.
Laugardalshöll sem slík hýsir engan veginn
sýningu sem þessa.
Sýningarsvæðið í Laugardal verður þrefaldað
með notkun timburhúsa sem þessara á mynd-
inni. Þau eru sett upp á stuttum tíma og hafa
gagnast vel við hin verstu veðurskilyrði í Bret-
landi. Eitt þeirra var sett upp á þilfari flug-
móðurskipsins Ark Royal þar sem þúsund
gestir voru í húsinu meðan 8 vindstiga ofsarok
lamdi á skipinu og húsinu á dekkinu.
Stór hópur íslenskra fyrirtækja mun taka
þátt í sýningunni og auk íslensku deildanna
verða þama sýningarbásar ýmissa þjóða
sem sýna munu ffamleiðslu sína.
Eins og ævinlega er von á fjölmörgum
gestum á sýninguna, þar af fjölda erlendis
frá. Fyrir íslensk fyrirtæki sem framleiða
rekstrarvörur fyrir sjávarútveginn er sýn-
ingin eðlilega hinn ákjósanlegasti vettvang-
ur hyggi þau á útrás á erlendum mörkuðum.
Skipulagning íslensku sjávarútvegssýn-
ingarinnar 1993 er í höndum bresks fyrir-
tækis, Reed Exhibition Companies, í sam-
vinnu við íslensk samtök í iðnaði og sjávar-
útvegi. Framkvæmdastjóri sýningarinnar er
Patricia Foster.
MARY ELLEN MARK125 AR
„Liðugheita-listamaður“ með sæta hvoipinn sinn. Þessi myndarstúlka sýnir óvenjulega hæfileika sína í Mikla Raj Kamal sirkusnum í borginni Up-
leta á Indlandi. Myndina tók bandaríski ljósmyndarinn Mary Ellen Mark árið 1989. A Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýning á 125 myndum þessa
heimsfræga ljósmyndara og ber hún yfirskriftina: Mary Ellen Mark í 25 ár. Það er vissara að haska sér ef ætlunin er að kíkja á sýninguna því henni
Iýkur af óviðráðanlegum ástæðum miðvikudaginn 7.júlí.
St. Jósefsspítali í Hafnarfirði býr við þröng fjárhagsleg skilyrði
Liðskiptaaðgerðir
æ fyrirferðarmeiri
Bið eftir liðskiptaaðgerð í
mjöðm hjá handlækninga-
deild St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði er nú þrír mán-
uðir. Reynt er að láta sjúk-
linga sem bíða aðgerðar fá
ákveðinn dag til innlagnar.
Hefur þetta fyrirkomulag
reynst vel og tími fólks nýtist
betur, sé hægt að ákveða
innlögn fram í tímann. Með-
allegutími er 12 dagar og
kostnaður á legudag lágur
að hlutlausu mati.
Sérstakt samkomulag varð milli heil-
brigðisráðuneytis og sjúkrahússins þess
efnis að St. Jósefsspítali fjölgaði aðgerðum
af þessu tagi til að létta á þungum biðlistum,
sem mynduðust í kjölfar þess að annari af
tveimur bæklunardeildum Landspítalans
var lokað á síðasta ári.
Aðgerðir þessar hafa verið framkvæmdar
á St. Jósefsspítala undanfarin tíu ár með
góðum árangri og ljöldi annarra stærri og
meðalþungra aðgerða farið vaxandi. Að
sögn talsmanna St. Jósefsspítala hefur kom-
ið í ljós ótvíræð hagkvæmni að fela sjúkra-
húsi af þessari stærð verkefni sem þessi.
„Rekstur hátæknisjúkrahúsa er dýr, en kost-
ir þess að fela minni sjúkrahúsum ákveðin
verkefni bæði sem svokölluð ferilverk og
einnig verkefni sem þurfa innlagnar sjúk-
linga eru ótvíræðir. Með því móti fá há-
tæknisjúkrahúsin meira svigrúm til þeirrar
sjúkraþjónustu sem þar á að vera“, segja
menn í St. Jósefsspítala.
Er nú svo komið að St. Jósefsspítali er í
þriðja sæti meðal sjúkrahúsa í liðskiptaað-
gerðum, - aðgerðimar í ár em orðnar 25
talsins.
„Verkefni sem þetta byggir á miklum
áhuga starfsliðs, bæði á skurðstofu og legu-
deildum spítalans, en lyljadeild leggur
einnig til sjúkrarúm í þessu skyni vegna
helgarlokunar handlækningadeildar frá há-
degi á laugardegi til mánudagsmorguns.
Samhæfing hæfra starfsmanna hefur hér
ráðið úrslitum og aðhaldssemi er gætt, því
spítalanum hefur verið skorinn þrengri fjár-
hagslegur stakkur en öðmm sjúkrahúsum af
svipaðri stærð“, segja þeir á St. Jósefsspít-
ala.
Mörg lfknarfélög og þjónustuklúbbar í
Hafnarfirði hafa reynst sjúkrahúsinu ómet-
anlegur styrkur með gjöfum sínum. Varð-
andi bæklunarlækningar hefur Lionsklúbb-
ur Hafnarijarðar verið styrkasta stoðin og
hefur svo verið í áratug og hefur klúbburinn
bætt við tækjum og áhöldum eftir því sem
starfsemin hefur vaxið.
Hryggur 1/1
sagaður
í grillkótilettur
598.-
Áður pr.kg. 759.-
ATUN
Lambakjöt -
1/2 skrokkar
Bestu kaupin!
Áður pr.kg. 498.
Frampartur 1/2
niðursagaður
398.
Áður pr.kg. 498.-
Hryggir 1/1 Læri 1/1
588.- 599.-
Áður pr.kg. 698i" Áður pr.kg. 679.-
Læri 1/1 Læri 1/1
sagað í sneiðar þurrkryddað
649.- 649.-
Áður pr.kg. 798ia Áöur pr.kg. 899.-
Nóatún 17 - S. 617000 Hamraborg 14, Kóp. - S. 43888
Rofabæ 39 - S. 671200 Furugrund 3, Kóp. - S. 42062
Laugavegi 116 - S. 23456 Þverholti 6, Mos. - S. 666656
JL-húsinu vestur í bæ - S. 28511