Alþýðublaðið - 08.07.1993, Síða 1
Á háannatíma hjá Flugleiðum
FLUGVIRKJAR Í
YFIRVINNUBANN
Flugvirkjar hjá Flugleiðum hf. á
Keflavíkurflugvelli hafa boðað yfir-
vinnuverkfall frá og með næsta laugar-
degi. Samningar við flugvirkja félags-
ins hafa dregist á langinn og eru óút-
kljáðir. Flugvirkjar sem Alþvðublaðið
ræddi við í gær sögðu að frá því að nýja
flugskýlið á Keflavíkurflugvelli var
tekið í notkun „hefði Flugleiðum tekist
áð skerða laun flugvirkja um 30%“,
eins og það var orðað. Flugvirki hjá
Flugleiðum, maður með mikla ábyrgð
væri mun lægri í launum en flugfreyj-
ur, að ekki væri talað um flugmenn.
Guðmundur Þ. Pálsson yfirmaður
tæknideildar Flugleiða hf. á Keflavíkur-
flugvelli sagði að vissulega væri erfitt á
háannatíma félagsins að fá yfirvinnubann
flugvirkja. Nú væri allt reynt til að ráða
ráðum á þann veg að flugfarþegar yrðu
ekki fyrir neinum töfum.
Unnið var af kappi við skoðanir sem nú
liggja fyrir í gær og í nótt og þannig verð-
ur unnið í dag, allt þar til yfirvinnubannið
skellur á.
Flugvirkjafélag Islands tilgreinir ekki í
bréfi sínu til Flugleiða hversu lengi bann-
ið skal standa, það mun halda áfram
„þangað til annað verður samþykkt".
LOKSINS GLÆTA!
Einar Olason, hinn glöggskyggni Ijósmyndari Alþýðublaðsins gekk fram á Glætuna í Hafn'
arstræti 9 í gær. Maðurinn sem bograr handan glersins er að skafa af rúðunni.
„Allir nefna
allt við alla"
- segir Friðrik Sophussonjjármálaráðherra sem þvertekur
fyrir að vera á leið í borgarstjórastólinn, en segist vel geta
hugsað sérað verða „sendiherrafrú“ í París!
„Prófkjör er í nánd og þá er það
gjarnan svo að allir nefna allt við alla.
Einhverjir hafa kannski taiað um
þennan möguleika en það er án minn-
ar vitundar. Ég styð Markús Örn An-
tonsson eindregið,“ sagði Friðrik Sop-
husson fjármálaráðherra í samtali við
Alþýðublaðið í gær. Heimildir blaðs-
ins í borgarstjórnarflokki sjálfstæðis-
manna herma að nafn Friðriks hafi
verið nefnt í sambandi við borgar-
stjóraembættið í Reykjavík.
Friðrik hefur verið orðaður við emb-
ætti sendiherra í París, en í gær ítrekaði
hann það sem áður hefur komið fram í
fjölmiðlum, að það sé ekki til umræðu.
„Menn voru sjálfsagt að velta þessu fyrir
sér af því konan mín er ffambjóðandi
Norðurlanda í stjóm UNESCO. Hljóti
hún kosningu þarf hún að sækja fundi í
París tvisvar á ári, um það bil hálfan
mánuð í hvort skipti. París er skemmti-
legur staður og sendiherrastaðan ekki
síður en þetta hefur einfaldlega ekki ver-
ið rætt. Hinsvegar get ég alveg eins hugs-
að mér að verða sendiherrafrú!" sagði
Friðrik og hló við.
Heimildamaður Alþýðublaðsins úr
borgarstjómarflokki sjálfstæðismanna
(sem telur 20 manns) sagði að nafn Frið-
riks hefði komið upp. Staða flokksins í
Reykjavík væri tæp og ekki eining um
Markús Öm. Friðrik Sophusson styður
hinsvegar Markús Öm eindregið og seg-
ist ekki vera á leið í borgarmálin. Þessar
hugmyndir hafi komið upp á sínum tíma,
þegar Davíð Oddsson hætti sem borgar-
stjóri, en hann hafi haldið að þær væm úr
sögunni.
Friðrik í AB og Hannes Hólmsteinn
íhuga útgáfu tímarits
Verður hrein-
ræktað
hægriblað
- og boðberifrjálshyggju og einkavœðingar,
segir Friðrik Friðriksson
„Komi til útgáfu mun tímaritið verða
óháð og óhlutdrægt en ekki stefnulaust,"
sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson í
samtali við Alþýðublaðið í gær. Hannes
og Friðrik Friðriksson eigandi Almenna
bókafélagsins íhuga nú að hlevpa af
stokkunum tímariti sem yrði „hrein-
ræktað hægriblað“ að sögn Friðriks, og
„boðberi frjálshyggju og einkavæðing-
ar.“
Friðrik sagði að ntálið væri í skoðun:
„Við emm héma megin á flugbrautinni. Ég
geri ekki ráð fyrir að farið verði af stað
nema slíkt blað geti staðið undir sér með
hógvæm upplagi.“
Verið er að kanna áhuga manna og
rekstrargmndvöll blaðsins. Friðrik sagði að
hugmyndir um efni og áherslur vantaði
ekki, og pólitískt tímarit af þessari gerð gæti
„sogað til sín ungt og hæfileikaríkt fólk.“
BESTU KAUPIN í LAMBAKJÖTI
1/2 skrokkur af fyrsta
flokks lambakjöti í poka.
Ljúffengt og gott á grillið
Fæst í næstu verslun.