Alþýðublaðið - 08.07.1993, Qupperneq 3
Fimmtudagur 8. júlí 1993
3
Fyrsta vikan í loðnunni
2% KVÓTANS I BRÆDSLU
UM ÞAÐ BIL 15 þúsund tonn
af loðnu eru komin á land á
loðnuvertíð, sem hófst nú um
mánaðamótin, talsvert fyrr en
venja er til. Byrjunin lofar
góðu og menn eru bjartsýnir.
Þeir eru að takast á við702
þúsund tonna heildarkvóta
þannig af nógu er að taka.
Rétt um 2% kvótans eru því
komin til bræðslu hjá þrem
loðnubræðslum á Norður-
landi og Austfjörðum.
Mest loðna hefur borist til Sfldarverk-
smiðja ríkisins á Raufarhöfn, sem er
næsta höfn við veiðisvæðið, samkvæmt
upplýsingum frá Félagi íslenskra fisk-
mjölsframleiðenda í gær. Þangað höfðu
komið til bræðslu 4.524 tonn um hádegið
í gær og Gígja búin að melda sig með 720
tonn til viðbótar.
Um hádegi í gær höfðu þrír bátar mel-
dað sig með samtals 2.690 tonn, Sunnu-
berg, Gígja og Börkur.
Norski laxinn nær tvöfaldaðist í verði á Evrópumarkaði
Engin hækkun sýnileg á íslenska laxinum
Verðlagið á ferskum laxi er að fara í
himinhæðir, segir í frétt frá Norinform,
norsku upplýsingastofunni. Nýlega
fengu norskir útflytjendur 46 norskar
krónur fyrir slægðan lax, 4-6 kHó að
þyngd. Fyrir aðeins einu ári var verðið
fyrir slíkar afurðir aðeins 27-33 krón-
ur norskar.
„Við getum eiginlega ekki útskýrt
hversvegna verðin eru svo há. í ofanálag
er framboðið á markaðnum mjög mikið.
En eftirspumin er í samræmi við það“,
segir Dag Koteng hjá Landssamtökum
fiskveiðigreinanna í Noregi.
„Viðskiptabannið á norskum fersklaxi í
sambandi við að við höfum tekið upp
hvalveiðar að nýju hafa til þessa haft sára-
lítil áhrif. Þvert á móti upplifum við vax-
andi eftirspum. Engu að síður tökum við
þessar hótanir alvarlega", segir Koteng og
bendir á að Bandaríkin séu nú þegar út úr
myndinni í útflutningi á norskum laxi.
Útflutningur á norskum eldisfiski jókst
öll árin frá 1980 til 1990. Þá varð atvinnu-
vegurinn fyrir áfalli og verðin féllu, en nú
em semsagt bæði verðin og magnið á
fljúgandi uppleið að nýju.
Framleiðslan og útflutningurinn á eld-
isfiski kemur til með að aukast á komandi
ámm, segir Norinform. Margir rannsókn-
araðilar, einkaaðilar og opinberir, hafa á
síðustu ámm náð góðum árangri í að
framleiða ýmsar nýjar tegundir sem skipta
munu miklu máli.
En hvemig er markaðurinn fyrir ís-
lenskan lax?
„Við höfum heyrt um þessi verð Norð-
mannanna en höfum ekki orðið varir við
þessi himinháu verð“, sagði Jóhann Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri íslenskra
matvæla hf. við Alþýðublaðið í gær. „Við
höfum orðið varir við að verð hafa verið
að styrkjast bæði í Evrópu og í Bandaríkj-
unum, en ekki neitt í þessa vemna".
Aron Reynisson, markaðsfulltrúi hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er sama
sinnis: „Við emm ánægðir með að mark-
aðurinn hefur til þessa verið nokkuð stöð-
ugur. En nú má búast við að salan minnki
eins og gerist í sumarhitunum erlendis, þá
selst minna af fiski en meira af grænmeti,
ávöxtum og kjöti“.
Aron sagði að þessar tölur frá Noregi
væm án efa ekki neitt til að byggja á og
væm nú þegar orðin gömul frétt, svo hratt
gerðust hlutimir á þessum markaði.
íslendingar flytja út eitt til tvö þúsund
tonn af laxi á ári, en mestur varð útflutn-
ingurinn í kringum 1990, rúmlega 2000
tonn, hafbeitarlax þá innifalinn. Hlutur
okkar á hinum erlendu mörkuðum em að-
eins dropi í hafið miðað við Norðmenn,
Skota og fleiri þjóðir.
Þríburaljölskyldan í Hlíðarhjalla 71
VIÐ HLÍÐARHJALLANN í
Kópavogi búa þessir fallegu
þríburar: Kamilla Rut, Andri
Már og Aron Pétur - Ragnars-
börn. Með þríburunum hér á
myndinni er hin stolta móðir
þeirra Sigurrós Kristinsdóttir
og ánægða systirin Eva Sól-
veig.
Við vinnslu Kópavogsblaðs Alþýðu-
blaðsins í síðustu viku var því miður farið
rangt með nafn Sigurrósar. Birtum við því
aftur myndina og með réttum myndartexta í
þetta skiptið. Er hér með beðist hjartanlegr-
ar velvirðingar á þessum leiðu mistökum.
Faðir þríburanna, Ragnar Borgþórsson,
benti okkur á þessi mistök og sagði okkur
einnig frá því að það væm ekki þrennir þrí-
burar í Kópavogi heldur femir. Til gamans
má geta þess að allir em þeir búsettir innan
Hjallasóknar.
HROSSA-
RÆKTIN
1992
El
BÚNAÐARFÉLAQ ÍSLANDS
Hrossarœktin
1992
er komin út
Fœst hjá Búnaðarfélagi íslands,
síma 91-630300, búnaðarsam-
böndum um land allt og í helstu
hestavöruverslunum.
Verð kr. 2.200 til áskrifenda og
kr. 3.000 í lausasölu, að viðbœttu
burðargjaldi.
Búnaðarffélag íslands
Samstarff EB og íslands í framtíðinni
DAVÍÐ ODDSSON, forsædsráðherra, og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðhcrra, sóttu sameiginlegan fúnd forsætisráðherra og utanríkisráðherra Noiðurland-
anna í Lófóten í Noregi á dögunum. Þar var fjallað um gang mála í aðildarviðræðum
Finnlands, Noregs og Svíþjóðar við Evrópubandalagið. Forsætisráðherra gerði grein
fyrir afstöðu íslands til Evrópusamstarfsins og kynnti ályktun Alþingis frá 5. maí síð-
astliðnum um samstarf fslands og EB í framtíðinni. Jón Baldvin vakti athygli á þeim
vanda sem upp kann að koma í viðskiptum íslands við Norðurlöndin þrjú, gangi þau í
Evrópubandalagið. Vegna fríverslunar með fisk innan EFTA em engir tollar á sjávar-
vöm í viðskiptum milli EFTA-iandanna, en EB hefúr ekki aflétt öllum tollum af sjáv-
arvömm. Mál þessi verða nánar rædd á norrænum vettvangi.
Stöð 2 allan sólarhringinn
ÞESSA DAGANA em í gangi kynningarútsendingar ffá erlendum gervihnatta-
stöðvum á dreifikerfi Stöðvar 2. Sex stöðvar em kynntar um óákveðinn tíma, Sky
News, Eurosport, Discovery Channel, BBC World Service, CNN og MTV. Páll
Magnússon, útvarpsstjóri, segir að hér sé um að ræða hreina viðbót við 85 klukkutíma
vikuútsendingar stöðvarinnar. Meðan þessar útsendingar standa er Stöð 2 með dagskrá
allan sólarhringinn. Talsvert meiri kraftur í þessari stöð en þeirri sem ríkið stendur fyr-
ir.
Steinullin í taprekstri
AFURÐIR Steinullarverksmiðjunnar hf. á Sauðárkróki seldust á síðasta ári fyrir
368 milljónir, rúm 5 þúsund tonn af steinullarmottum. Tekjuaukning varð um 1,3%, en
það nægði ekki til þess að reka niætti fyrirtækið með hagnaði. Tap varð af reglulegri
starfsemi 24 milljónir króna og rekstrarafkoman 11 milljón krónum lakari en árið á
undan. Skýrist það aðallega af minni sölu innanlands og slakri stöðu sterlingspundsins.
Gengisfellingin í lok síðasta árs hafði líka gífurleg áhrif á fjármagnskostnað fyrirtæk-
isins, misvægi gengis og veiðlags nam um 33 milljónum króna. Eigið fé nú er 190
milljónir og eiginfjárhlutfallið 23,2%.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
NÍUNDA SUMARIÐ í röð gefst tækjfæri til að eiga góða stund í Skálholtskirkju og
hlýða á öndvegistónlist. Á laugardaginn inun Hclga Ingólfsdóttir leika á sembal svo-
kölluð Goldbergtilbrigði eftir Bach. Tónleikamir hefjast kl. 15. Þennan dag mun Jón
Nordal, tónskáld, færa Skálholtskirkju nýtt og viðamikið tónverk fyrir einsöngvara,
kór, strengjasveit og orgel sem flutt verður kl. 17 á laugardag og endurtekið kl. 15 á
sunnudag. Fyrir tónleika Helgu, mun Jón Þórarinsson, tónskáld, flytja erindi um tón-
Iist í Skálholti fyrrog nú. Hefst fyrirlesturinn kl. 14. Áætlunarferðir eru kl. 11.30 frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Erlendar sýningar í Hafnarborg
í HAFNARBORG í Hafnarfirði opna á laugardaginn tvær útlendar listsýningar.
Werner Möller er þýskur listamaður sem sýnt hefur víða um heim. Hann dvaldi í hitt-
eðfyrra í gistivinnustofu Hafnarborgar. Hann sýnir afar fjölbreytt verk. í kaffistofu
Hafnarborgar opnar Craig Stevens ljósmyndasýningu. Stevens lauk masters-prófi í
kvikmyndagerð og Ijósmyndun í Bandaríkjunum 1991. Hann er búsettur hér á landi og
hefur meðal annars starfað hjá Ríkisútvarpinu.
Það kann að vera sól og sumar úti, - en í Fullorðinsfncðslunni heldur skólinn áfram hjó
þcim sem eru að búa sér í haginn fyrir framtíðina.
í skóla í sumarblíðunni
ENDA ÞÓTT suntarblíða leiki við okkur annað slagið, er talsvert af mannskap enn
á skólabekk. Þannig er það hjá Fullorðinsfræðslunni að Hábergi 7. Þar eru í gangi
prófáfangar framhaldsskólanema sem Ijúka munu matshæfum lokaprófum í lok ágúst.
Þá hefst senn aðfaramám háskólanáms f efnafræði fyrir verðandi nentendur í hinunt
ýmsu fræðum heilbrigðismála, sem og fyrir verðandi verkfræðinga og raunvísinda-
menn.