Alþýðublaðið - 08.07.1993, Síða 8

Alþýðublaðið - 08.07.1993, Síða 8
8 Fimmtudagur 8. júlí 1993 Vertu meö draumurinn gæti orðið að veruleika ! Borðsalurinn í Hótel Djúpuvík er einsog byggðasafn. Þar er margt gamalia muna úr öllum áttum. Djúpavík vaknar til lífsins Eitt vistlegasta hótel landsins rekið í nyrsta hreppi sem enn er í byggð á Islandi „Menn henda úrunum sínum þegar þeir koma hingað norður: hérna líður tíminn öðruvísi en í harkinu fyrir sunnan," segir Ás- björn hótelstjóri Þorgilsson í Djúpuvík. Það fer ekki hjá því að ferðalangur verði snortinn af stemmningunni í síldarbænum gamla. Klettabelti Reykjarfjarðar myndar mikilúðlega umgjörð um yfirgefnar byggingar, sem eitt sinn voru vettvangur gullæðis síldaráranna. Þar búa enn miklir veiðimenn af kyni Thorarensena. Milli Gjögurs og Trékyllisvíkur gengur Reykjaneshyma í sjó fram, snoturl fjall og auðvelt uppgöngu. Þaðan er fagurt út- sýni yfir sjó og land. Vanir prilarar geta líka leitað uppi helli í klettabelti Reykja- neshymu. Enn em til sagnir í Ámeshreppi af útilegumanni sem hafðist við í hellin- um áðuren hann komst á hollenska duggu. Ferðamenn ættu að koma við í landi Stóru-Ávíkur og skoða mikinn klett sem á ekki sinn líka á íslandi. Hann barst með hafís frá Grænlandi fyrir þúsundum ára, Ásbjöm og kona hans, Eva Sigur- bjömsdóttir, hafa lyft Grettistaki í Djúpu- vík. Það var eiginlega fyrir misskilning að Ásbjöm keypti niðumíddar og yfir- gefnar byggingar í Djúpuvík fyrir tíu ár- um. Utlitið var ekki sérlega glæsilegt þegar þau komu fyrst til Djúpuvíkur árið 1984. En einungis ári síðar opnaði Hótel Djúpa- vík með pompi og prakt og er nú eitt al- vistlegasta hótel landsins. Hótel Djúpavík gekk áður undir nafninu Kvennabragg- inn, og var aðsetur blómarósa síldarár- anna. Umsvifm á Djúpuvík vom mest milli 1934 og 1950 og þá var rekin þar ein stærsta og fullkomnasta síldarverksmiðja í heiminum. Eftir að sfldin synti sinn sjó tóku víð áratugir hrömunar og eyðingar. En nú er semsagt aftur uppgangur í Djúpuvík. Ferðamenn leggja í síauknum mæli leið sína norður allar Strandir, en Ámeshreppur er nyrsti hreppur á íslandi sem enn er í byggð. Ögn norðar er hin foma veiðistöð á Gjögri, sem útvarps- hlustendur kannast við úr veðurfregnum. Litríkasta flugvél íslands. Ný Domierflugvél íslandsflugs á Gjögri. Þangað flýgur félagið tvisvar í viku, á mánudögum og flmmtudögum. Það er tilvalið að skella sér í helgarferð til Djúpuvíkur. Hótel Djúpavík. Á árum áður gistu blómarósir sfldaráranna í þessari byggingu, og hét þá Kvennabragginn. Nú er boðið upp á níu tveggja manna herbergi. Matsalurinn rúniar 60 manns og boðið er uppá ljúffenga rétti, ekki síst úr ríki hafsins. (A- myndir: H.J.) gráhvítur og alsettur litlum silfurlitum flögum sem glitra í sólskininu. 1 landi Stóm-Ávíkur er líka að finna sögufrægan vog þarsem galdramenn end- uðu líf sitt á báli: Strandamenn vom stór- tækastir í galdrafárinu sem geisaði á 17. öld. Trékyllisvíkin er sögufrægur staður, og kemur meðal annars við sögu Flóabar- daga. I skólanum að Ámesi geta ferða- menn fengið svefnpokapláss á sumrin. Ekki er úr vegi að skoða kirkjur tvær í Ár- nesi. Önnur er líklega elsta kirkja Strandasýslu en hin var reist fyrir fáum ámm. Miklar deilur spunnust vegna kirkjubyggingarinnar, og vakti athygli al- þjóðar, enda skiptust hreppsmenn í tvær fylkingar og vom ekki alltaf spömð stóm orðin. Nú em allar deilur úr sögunni og báðar kirkjumar notaðar. Að Eyri við Ingólfsfjörð er merkilegt eyðiþorp. Það beið hægt andlát efdr að sfldin fór, og vekur sérkennilegar tilfinn- ingar að ganga um þetta dána samfélag. I Norðurfirði er verslun í kaupfélag þarsem til skamms tíma var hægt að kaupa allt milli himins og jarðar. Framtíð verslunar í Norðurfirði er hinsvegar í óvissu um þcssar mundir enda rambar kaupfélagið á barmi gjaldþrots. Stutt er frá kaupfélaginu að bænum Krossnesi. Þar er skemmtileg útisund- laug, þarsem hægt er að svamla í æva- fomu vatni. Það kemur úr einhverjum elstu uppsprettum sem fundist hafa á jörðinni. Að öllu samanlögðu er Ámeshreppur á Ströndum sérstæð og áhugaverð náttúm- paradís. Hótelið í Djúpuvík er skemmti- legur áningarstaður þarsem hægt er að dvelja í góðu yfirlæti hjá hjónunum Ás- bimi og Evu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.