Alþýðublaðið - 06.08.1993, Qupperneq 6
6
MYNDLIST, SMÁBÁTAR & HÁSKÓLINN
Föstudagur 6. ágúst 1993
Didda H. Leaman
opnar sýningu
Ung listakonn, Didda H. lxaman, opnar
sýningu í Gallerí II, Skólavörðastíg 4 A á
morgun. Á sýningunni verða olíumálverk,
klippimyndir og teikningar unnar með
blandaðrí tækni ásamt þrívíðum verkum.
Sýningin stendur yfir til 19. ágúst og er opin
daglega frá kl. 14 - 18. Didda útskrífaðist úr
Fjöltæknideild MHÍ 1987 og úr málaradeild
Slade School of Fine Art í London 1989. Hún
hefur áður haldið einkasýningu í Hafnar-
galleríi og FÍM salnum og tekið þátt í sam-
sýningum.
I N N A N LA N D S
Akureyri 6.490
Egilsstaðir 8.SS0
Hornafjörður 7.570
Húsavík 7.300
ísafjörður 6.080
Patreksfjörður 5.890
Sauðárkrókur 5.860
Þingeyri 5.830
Vestmannaeyjar 4.330
/ /
Fokker 50 flytur þig
á fljúgandi ferð milli Reykjavikur
og ntu áfangastaða
á íslandi á ótrúlegu APEX verði
Miðað er við að greitt sé fyrir báðar leiðir, fram
og til baka, með a.m.k. tveggja daga fyrirvara og að
dvalið sé lengur en þrjár nætur. Bókunum er ekki hægt
að breyta. Flugvallarskattur, 330 krónur, er inni-
falinn og sætaframboð er takmarkað.
Það hefur aldrei verið jafnhagstætt að fljúga innanlands.
FLUGLEIÐIR
þjóðbraut innanlands
Tilkynning frá stjóm
Smábátafélags Reykjaness
í tilkynningu frá Smábátafé-
lagi Reykjaness kemur fram
að stjórn félagsins mótmælir
harðlega þeim fréttaflutningi
sem fram hefur komið um
veiðar á undirmálsfiski smá-
báta. Félagið segist reiðu-
búið til að leggja opinber-
lega fram upplýsingar frá
Fiskmarkaði Suðumesja þar
sem fram kemur að hámark
undirmálsfisks á svæði
Smábátafélags Reykjaness
sé aðeins um 5 prósent.
Stjóm Smábátafélags Reykjaness
segist styðja hugmyndir um að til komi
tafarlaus svipting veiðileyfís allra fiski-
skipa, sem staðin eru ítrekað að verki
við veiðar á undirmálsfiski umfram
leyfilegt magn.
Jafnframt segist stjómin ítreka fyrri
ályktanir um veiðar smábáta. Smábáta-
félag Reykjaness varar og við fram-
komnum hugmyndum um skerðingu á
veiðum þeirra, þar sem því muni fylgja
stóraukið atvinnuleysi og byggðaröskun
um land allt.
Endurmenntunarstofnun Háskólans
Nám í matstækni
hefst í haust
Ör þróun gerir störf þeirra
sem fást við og meta
fasteignir æ flóknari. End-
urmenntunarstofnun HÍ
hefur undanfarin ár staðið
fyrir námi í matstækni í
samstarfi við Mats-
mannafélag íslands. Fyr-
irhugað er að hefja námið
í þriðja sinn í haust. Nám-
ið tekur tvö ár og verður
kennt tvisvar í viku kl. 16
-19 frá lok september til
maí hvort árið. Samtals
eru kenndar um 300
klukkustundir.
Nárnið er sniðið fyrir umsýslumenn
fasteigna, starfsmenn byggingafulltrúa,
tryggingafélaga, byggingafélaga, banka
og annarra lánastofnana og loks rekstr-
arráðgjafa og fasteignasala.
Umsjónarmaður með náminu er
Þórður Búason verkfræðingur, Fast-
eignamati ríkisins. Verð fyrir hvert
misseri er 47 þúsund krónur á núgild-
andi verðlagi. Greiðslum má dreifa
samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsóknareyðublöð vegna námsins
og frekari upplýsingar fást á skrifstofu
Endurmenntunarstofnunar Háskóla ís-
lands. Frestur til að sækja um er til 1.
september næst komandi.