Alþýðublaðið - 17.09.1993, Síða 1

Alþýðublaðið - 17.09.1993, Síða 1
* Ur skinku yfir í kalkún JÓHANNES FLYTUR INN KALKÚN Hvað gerir landbúnaðarráðuneytið? Búvörulögin heimila innflutning anni innlendir framleiðendur ekki eftirspurn - Framleiðandinn segir: Önnum eftirspurn - Jóhannes í Bónus segir það fjarstœðu Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bón- us, er að flytja kalkún til landsins sem væntanlegur er á morgun. Þá er spurt, á að leyfa blessuðum dýrunum að komast á borð neytenda? Kalkúninn kcmur í gegnum tollgæsluna á Keflavíkurflug- velli en hún heyrir undir valdsvið utan- ríkisráðherra. Eftir úrskurð forsætisráð- herra í skinkumáli Hagkaups lét Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, búvöru- lögin ná yfir innflutning á soðnu kjöti. Það hefur utanríkisráðuneytið véfengt og talið ólögmætt. Ámi Páll Ámason, lögfræðingur og starfsmaður utanríkisráðuneytisins, segir um þennan kalkúninnflutning Jóhannesar að samkvæmt búvömlögunum beri að leita álits framleiðsluráðs landbúnaðarins varð- andi innflutninginn. „Búvömlögin segja að innflutningur skuli því aðeins leyfður að framleiðsluráð staðfesti að innlend fram- Ieiðsla anni ekki eftirspum. Hið athyglis- verða í málinu er það að burtséð frá því hvort utanríkisráðuneytið viðurkenni að bú- vömlögin taki yfir þetta eða ekki, þá full- nægir innlend framleiðsla á kalkúni ekki eftirspurn," segir Ámi Páll. — Reykir í Mosfellssveit em einu framleið- endur kalkúns í landinu. Þar á bæ segjast menn heldur betur anna eftirspum, oft komi það fyrir að afloknum stórhátíðum að versl- anir sendi þeim afganga. Jóhannes í Bónus segir þetta Ijarstæðu. „Það vom engir kalkúnar á markaðnum hér fyrir síðastliðna páska. Þar fyrir utan er þessi vara sem ég er með kalkúnalæri. Hér verður þú að kaupa 4-6 kílógramma kal- kún en átt ekki kost á því að fá hluta úr hon- um. Við emm með allt aðra vöm heldur en þeir á Reykjum em með. Það er nú nýtt að þeir anni eftirspurn, ég man nú þá tíð þegar ég var að selja kalkún héma áður að þeir gátu aldrei annað eftirspum." Jóhannes segist ætla að fá það skjalfest í dag frá kaupmönnum sem vildu kalkún fyr- ir páskana að hann var ekki til. „Þess vegna reyndu menn nú að fá leyfi fyrir innflutn- ingi á kalkúni fyrir síðustu páska.“ Jóhannes í Bónus segir aó framleiðandi anni ekki eftirspurn á kalkúni. Hafi hann rétt fyrir sér leyfa búvörulögin innflutning. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Skýrsla um skattsvindl sýnir varhugavert siðgœði lands- manna - fjármálaráðherra boðar hert eftirlit og viðurlög SJÖ AF HVERJUM TÍU ERU TIL í SKATTSVIK „Af þessari skýrslu má draga þá ályktun að skattsiðferði hafi hrakað á síðustu árum, en kannski eru svörin nú hrcinskilnari en fyrr“, sagði Frið- rik Sophusson, tjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í gær. Þar var kynnt mikil skýrsla nefndar scm ráðherrann skipaði í lok síðasta árs til að kanna umfang skattsvika og ráð við þeint. í skoðanakönnun sem gerð var kemur sú hrikaiega staðreynd fram að Islendingum þykir skatt- svindl nánast eðlilegur hlutur. Sjö af hverjum tíu íslendingunt er reiðubú- inn tii skattsvika, gcfist tækifærið til. Nefndin telur að 16 milljarðar króna komi ekki til skatts, allt að 4,3% lands- framleiðslu. Tap ríkissjóðs er talið vera 11 milljarðar króna, en einhver frávik í báðar átú frá þeirri tölu trúleg. Meðal úrræða til bóta á þjóðarmein- inu, leggur nefndin til aukinn mannafla til skattrannsókna og efúrlits ásamt þyngri viðurlögum gegn skaltsvikum. Fjármálaráðherra sagði á fundinum í gær að hann mundi vinna að því að skatt- rannsóknarstjóri fengi til Iiðs við sig vaska sveit manna til þessara verka. Ráðherra sagði ennfremur að unnið væri á mörgum sviðum við að setja und- ir skattalekann. Nefnd hefur verið skip- uð til að endurskoða reglur um rekstrar- kostnað og reiknað endurgjald auk ann- arra atriða sem snerta tekju- og eignar- skatt. Unnið er að endurskoðun á lögunt urn bókhald, - og áhersla er lögð á upi> rætingu svartrar atvinnustarfsemi, sem talin er vera að breiðast út. Sérsveitir skattrannsóknastjóra munu herja á þenn- an markað. Þá er fjármálaráðherra að taka upp viðræður við dómsmálaráð- herra um endurskoðun á ákvæðum skattalaga, bókhaldslaga og almennra hegningarlaga með tilliti til hertra refs- inga við skattsvikum. Snorri Olsen, formaður skattsvika- nefndarinnar, hafnaði því aðspurður, að Virðisaukaskattkerfið hefði brugðist vonum manna, þessi skýrsla væri enginn áfellisdómur yfir það kerfi. Eigi að síður virðist ljóst að það hefur lítinn vanda leyst. Sjá nánar um skýrsluna um skattsvindl - Blaðsíðu 4 Alþýöublaðið cr í dag helgað Sjávarútvegssýningunni í I.augardal. Eldhuginn og afreksmaður- inn kunni Jósafat Hinriksson er þckktur fyrir að láta cngan troða sér um tær. Þarna cr hann þó ekki að grípa til vopna gegn einum cða neinum heldur að handfjalla gamla byssu sem cr meðal gamalla muna úr safni hans sem hann hcfur ilutt á sýninguna. En Jósafat sýnir einnig og kynnir toghlera sína scm hafa öðlast miklar vinsældir meðal skipstjómannanna víðs vegar í hciminum. Sjá nánar blaðsíður 5, 6, 7 og 8 Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Merkur fornleifafundur starfsmanna Árbœjarsafns við Grjótagötu talinn vera MANNVISTARLEIFAR FRÁ LANDNÁMSÖLD Starfsmenn Árbæjarsafns hafa fundið leifar af vegg og scti, sem var með lang- veggjum, en ofan á því voru svefnbálkar forfeðra okkar. Þessi nierki fundur kom í ljós við gröft á spildu við norðan við Grjótagötu fyrir ofan Aðalstræti. Bjami F. Einarsson, fomleifafræðingur hjá Árbæjarsafni sagði að veggurinn væri Miðstjórn ASÍ kom sanian til fundar í gær til þess að ræða hugmyndir heil- brigðisráðherra um sjúkratrygginga- gjald, eða það sem nú gengur undir nafn- inu heilsukort. Fáeinir miðstjórnarmenn höfðu heyrt um þessar hugmyndir í frétt- um Sjónvarpsins kvöldið áður, en þótti samt ástæða til þess að álykta. 1 ályktuninni segir orðrétt: „Miðstjórn ASI mótmælir harðlega öllurn áformum ríkisstjómarinnar um að selja aðgang að heilbrigðiskerfi landsmanna. Gjaldtaka með þessum hætti bitnar þyngst á þeim sem langveggur gerður úr hreinu torfi. Ekki sagði Bjami unnt að fullyrða hverskonar hús hér hefði staðið, mannabústaður, fjár- hús eða fjós, setið út af fyrir sig sannaði ekkert í því efni. Fomleifarannsóknum var um það bil að ljúka þegar komið var niður á þessar rústir hússins, sem Bjami telur tví- mælalaust að séu meðal elstu mannvistar- leifa sem fundist hafa hér á landi, ef til vill minnst mega sín. Kostnaði í heilbrigðis- kerfrnu verður að mæta með almennri skatt- heimtu.“ Eins og sést á þessari ályktun þá er mið- stjórnin að krefjast þess að almennir skattar verði hækkaðir til þess að mæta auknunr kostnaði í heilbrigðiskerfinu. Nokkrir mið- stjómarmenn sátu hjá þegar ályktunin var afgreidd og tveir miðstjómarmenn vom á móti. Þeir telja að fyrst verði að leita eftir betri skýringum og upplýsingum frá heil- brigðisráðherra um það hvað heilsukortin fela í sér, áður en ASÍ sendir frá sér harð- orða ályktanir. þær elstu. Sænsk kona gróf á svipuðunt slóðum á ámnuni 1971-75 og fann þar þijá veggi en engin gólf. Tæknilegar rannsóknir á þeim fundi leiddu í Ijós að þar væm úmmerki eft- ir landnámsmenn í Reykjavík. Einn munur hefur fundist við uppgröft starfsmanna Árbæjarsafns. Það er lóð eða sakka úr klébergi eða tálgusteini, sem er lin bergtegund. Sagði Bjarni að ekki væri hægt að leiða líkur að því frá hvaða tíma sá grip- ur er, en fallegur væri hann. Kvaðst hann ekki fyrr hafa séð slíkan grip hér á landi. Uppgreftri mun haldið áfram um sinn vegna þessa fundar fomleifafræðinganna. Flestum dettur í hug bústaður Ingólfs land- námsntanns, en ekki vildi Bjami fara nánar út í þau fræði að sinni. § Oloffur Ragnar og Alþýöubandalagið „Formaðurinn er með her og Nató, - en hvaða stefnu hefur flokkurinn? For- maðurinn vill kvótakerfið og sölu veið- leyfa, - en hvað með fiokkinn? Formað- urinn var með EES, en er ekki fiokkur- inn á móti? Formaðurinn vildi einu sinni aukið frelsi í landbúnaðamtálum. - en er ekki flokkurinn andsnúin því? Formað- urinn kastaði fyrstur manna fram hug- myndinni um skólagjöld í háskólanum, - en er ekki flokkurinn á annarri skoð- un? Formaðurinn hefur lýst því, að það eigi að auka þjónustugjöld, - en er ekki fiokkurinn líka á móti því?“ - Sjá leiðara blaðsins í dag. ASÍ vill hækka skatta - tilþess að mœta kostnaði í heilbrigðiskerfinu

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.